Austurland - 27.10.1988, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR, 27. OKTÓBER 1988.
Reyöarfjörður
Nýja heilsugæslustöðin
Eins og við sögðum frá fyrir Auðbergur Jónsson yfirlæknir,
skömmu var ný heilsugæslustöð Hannes Sigmarsson læknir, Þór-
opnuð á Reyðarfirði á dögun- ey Baldursdóttir ljósmóðir
um. Á efri myndinni getur að (situr), Gíslunn Jóhannsdóttir
líta húsið sem hýsir starfsemina læknaritari og Ásta Guðný Ein-
og á þeirri neðri er starfsfólkið. þórsdóttirlyfjatæknir.
Talið frá vinstri eru á myndinni: Myndir ÁMS
Þakkir til allra þeirra sem gerðu mér
10. október sl. ánægju- og
eftirminnilegan.
Björn Gígja
Neskaupstað
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Ingibjargar Sigurðardóttur
Stekkjargötu 3, Neskaupstað
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað
Eyþór Pórðarson
Ólína Porleifsdóttir Björrgvin Jónsson
Porleifur Þorleifsson Ellen Ólafsdóttir
Hallbjörg Eyþórsdóttir Stefán Pálmason
Elínborg Eyþórsdóttir Sigfús Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Safna gömlum uppskriftum
Ferðamálaráð íslands, Kven-
félagasamband íslands, Klúbb-
ur íslenskra matreiðslumeist-
ara, Ríkisútvarpið, Rás 1 og
Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns
íslands munu á næstunni beita
sér fyrir söfnunarherferð, til að
bjarga gömlum íslenskum mat-
aruppskriftum og öðrum fróð-
leik varðandi íslenska matar-
gerð.
í tilefni af þessu hefur verið
samin spurningaskrá sem verð-
ur dreift til allra kvenfélaga
landsins og víðar, þar sem menn
eru beðnir að skrá niður það
sem þeim kann að vera útbært
afslíkuefni, frá því um eða fyrir
rniðja öld. Þá eru staðbundnar
aðferðir við verkun og mat-
reiðslu heimafengins hráefnis
vel þegnar, jafnvel þó að yngri
séu. Einnig er beðið um orðtök,
vísur, sögur eða annað af því
tagi um mat og eldhúsverk.
Ríkisútvarpið mun hafa fast-
an vikulegan þátt sem tengist
þessu á rás 1 kl. 93(l á ntiðviku-
dagsmorgnum, á næstunni. Þar
verður fjallað um íslenskan mat
Neskaupstaður
Opið hús hjá
Náttúrugripasafninu
í tilefni norræns tækniárs mun
Náttúrugripasafnið í Nes-
kaupstað verða opið sunnudag-
inn 30. október kl. 13 - 17, en
þann dag er áformað að öll nátt-
úrugripasöfn í landinu hafi opið
og kynni starfsemi sína.
I tilefni dagsins mun verða
sett upp í húsakynnum safnsins
sýning fugla sem flækjast hingað
frá nálægum löndum, en þessa
dagana hefur þó nokkuð sést af
slíkum fuglum. Má þar t. d.
nefna gráhegra, dvergkráku,
silkitoppu, gráþröst, svartþröst
og fjallafinku. Einnig verður
sýning á geitungum og geitunga-
búi en ýmislegt bendir til þess
að þeir séu að nema land á Is-
landi.
Þá verður gestum boðið að
skoða berg og skordýr í
smásjám. Náttúrufræðingar
verða á staðnum og leiðbeina og
fræða gesti um náttúrufræðileg
efni m. a. fugla- og plöntuskoð-
un og steinasöfnun.
Náttúrugripasafnið er til húsa
að Mýrargötu 37-neðri hæð.
Fréttatilkynning
frá ýmsum sjónarhornum og
spurningum varpað til hlust-
enda. Þeir sem áhuga hafa á að
viðhalda íslenskum matarhefð-
um eru hvattir til að fylgjast með
og leggja sitt af mörkum.
Nánari upplýsinga má leita
hjá matráði samstarfsnefndar-
innar, en það skipa: Hallgerður
Gísladóttir safnvörður 0 91-
29999, Sigurvin Gunnarsson
matreiðslumeistari 0 91-52499
og Steinunn Ingimundardóttir
hússtjórnarkennari 0 91-27430.
Heimilisfang er: íslenskur
matur, pósthólf 161, 121
Reykjavík. Fréttatilkynning
Til sölu
er íbúð að
Blómsturvöllum 3
Neskaupstað neðri hæð
Upplýsingarí síma 71714
eftir kl. 20 (Alla)
NESKAUPSTAÐUR
Norðfirðingar - nágrannar
Munið tónleika
Kolbeins Bjarnasonar, flautuleikara og Gísla
Eyjólfssonar, gítarleikara í safnaðarheimilinu
sunnudaginn 30.október kl. 1700
Þeir leika sónötu e/Hándel, lög úr dýrahringnum
e/Stockhausen, Ijúfar melódíur e/Atla H.
Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Hjálmar H.
Ragnarsson o. m. fl.
Verið velkomin
Menningarnefnd
VIKURBITINN
Samlokur, langlokur, öl, gos og kaffi
Allar samlokur langlokur meö fersku áleggi og einnig er hægt að fá
samlokur með salati
Víkurbox með roast beef, kartöflusalati o. fl. - Laxi, brauði og grænmeti
o. fl. — Skinku, salati o. fl. - Hangiáleggi, salati o. fl. - Síld, brauð egg o. fl.
Einnig er til partíklaki í pokum
Komið, smakkið og prófið nýjar langlokur
Opið kl. 9 — 20
ÍKURBITINN
Hafnarbraut 22 Neskaupstað