Austurland - 26.06.1991, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR, 26. JÚNÍ 1991.
Austurland
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Útgeíandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritneínd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson og Smári Geirsson
Ritstjóri: Smári Geirsson (ábm.) S 71630
Ljósmyndari: Ari Benediktsson
Ritstjórnarskrifstofa: S 71750 og 71571
Auglýsingar og dreifing:
Sólveig Hafsteinsdóttir © 71571, 71750 og 71930
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Egilsbraut 8 ■ Pósthólf 75 ■ 740 Neskaupstaður ■ © 71750 og 71571
AUSTURLAND er aðili að Samtökum baejar- og héraðsfréttablaða
Prentun: Nesprent
Ferðaþjónusta og umhverfísvernd
Árleg vertíð ferðaþjónustu stendur nú yfir og nær
'hámarki á næstu vikum. Þessi atvinnugrein skilar nú
um tíunda hluta af gjaldeyristekjum landsmanna og
þeim störfum fer fjölgandi sem henni tengjast um
land allt. Hér á Austurlandi munar orðið verulega
um ferðaþjónustu í atvinnulífi, bæði í þéttbýli og
strjálbýli. Ferðamannavertíðin hefur verið að lengj-
ast ár frá ári, og eiga þar hlut að máli íslendingar og ekki síður útlendir
ferðamenn.
Af örum vexti ferðaþjónustunnar má ráða að unnt á að vera að treysta
hana til muna sem arðbæra atvinnugrein. Hér á Austurlandi hafa menn verið
að fika sig áfram með nýjungar til að laða að ferðafólk með góðum árangri,
t. d. á vegum Jöklaferða og siglingum á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi.
Þjónusta veitinga- og gistihúsa fer batnandi ár frá ári og nú eru menn farnir
að átta sig á að þróa verður jafnframt framboð á afþreyingu til að fá ferðamenn
til að staldra við.
Það sem dregur erlenda ferðamenn hingað er fyrst og fremst náttúra
landsins. Hún er sú auðlind sem við erum að nýta sem undirstöðu í þessari
atvinnugrein, ekki síður þegar um er að ræða ferðir landsmanna sjálfra. Pað
skiptir því höfuðmáli í ferðaþjónustu ekki síður en í fiskveiðum að virða þau
takmörk sem náttúran setur. Umhverfisvernd þarf því að vera óaðskiljanlegur
þáttur ferðaþjónustu með góðu skipulagi og takmörkunum eftir því sem við á.
Góð umgengni hvarvetna ætti að vera kappsmál og sjálfsögð menningarvið-
leitni. En vegna ferðamanna þarf víða að koma upp aðstöðu í þeirra þágu
til að tryggja góða umgengni og koma í veg fyrir náttúruspjöll. Á þessu sviði
er mikið verk að vinna. Aðstaða til móttöku ferðamanna á fjölförnum stöðum
er víða engin eða næsta ófullkomin. Þetta á ekki síst við um eftirsótta staði
til skoðunar fjarri þéttbýli, t. d. við Dettifoss. Á slíkum stöðum leysa fámenn
sveitarfélög ekki vandann og því verða fleiri að koma þar við sögu. Sama
máli gegnir um vegabætur og lagningu göngustíga. Alls staðar blasa verkefnin við.
Steingrímur J. Sigfússon beitti sér sem samgönguráðherra í síðustu ríkis-
stjórn fyrir mótun opinberrar ferðamálastefnu og lagabreytingum á sviði ferða-
mála. Tillögur lágu fyrir síðasta Alþingi, en Sjálfstæðismenn í Efri deild
hindruðu því miður afgreiðslu þeirra á lokastigi. Þær tillögur gerðu m. a. ráð
fyrir stuðningi við grunnþætti ferðaþjónustu í hverju kjördæmi með uppbygg-
ingu ferða- og upplýsingamiðstöðva og stuðningi ríkisins við ferðamálasamtök
landshlutanna til að tryggja starf ferðamálafulltrúa.
Þá gerðu þessar tillögur ráð fyrir skipulegum aðgerðum til að hlúa að
umhverfisvernd í tengslum við ferðaþjónustu. í því skyni var m. a. samþykkt
í Neðri deild að ekki minna en þriðjungi af mörkuðum tekjustofni Ferða-
máiaráðs verði varið til umhverfismála tengdum ferðaþjónustu.
Samþykkt nýrra laga um ferðaþjónustu er aðkallandi verkefni, ekki síst til
að tryggja umhverfisvernd og gera öllum landshlutum kleift að verða gildir
þátttakendur í þróun þessarar atvinnugreinar. Jafnframt þarf að stuðla að
því að fyrirtæki í ferðaþjónustu verði áfram sem mest í höndum íslendinga
sjálfraog þessi atvinnugrein verði til að treysta byggð sem víðast á landinu.
Hjörleifur Guttormsson
Neskaupstaður
Knattspyrnufréttir
Stelpurnar áfram í bikarnum
Sl. miðvikudag spiluðu þær
gegn Sindra á Höfn og unnu
nokkuð létt 4-1. Það voru þær
Anna 2, Karitas Jónsdóttir og
Jóna Lind Sævarsdóttir sem
skoruðu. í næstu umferð þurfa
stúlkurnar að fara til Akraness
og spila við ÍA. í kvöld er aftur
á móti næsti deildarleikur og
koma bikarmeistarar Vals í
heimsókn. Síðast sluppu ís-
landsmeistarar UBK með
skrekkinn. Hvað gerist í kvöld?
Enn tap hjá strákunum
Meistaraflokkur karla tapaði
þriðja leiknum í röð er Magni
kom í heimsókn og sigraði 3 -
2 í leik þar sem Þróttur virtist
hafa undirtökin svo til allan leik-
inn. Hörður Rafnsson og Guð-
bjartur Magnason skoruðu. í
gærkvöld spiluðu Huginn og
Þróttur í bikarnum á Seyðisfírði
en úrslitin voru ekki ljós er blað-
ið fór í prentun.
Yngri flokkar
3., 4. og 5. flokkur spiluðu á
Reyðarfirði í síðustu viku og
urðu úrslit þessi:
3. fl. Valur - Þróttur 3-2
Nemendur knattspyrnuskólans ásamt Sigurði Jónssyni og Guðbjarti
Magnasyni. Ljósm. Guðmundur Haukur Pórsson
4. fl. Valur - Þróttur 1-11
5. fl. a Valur - Þróttur 0- 1
5. fl. b Valur - Þróttur 1-6
Knattspyrnuskóli
Sigurður Jónsson atvinnu-
maður með Englandsmeistur-
um Arsenal er í heimsókn þessa
dagana og leiðbeinir ásamt
Guðbjarti Magnasyni. Hann
kemur einnig til með að líta á
æfingar annarra flokka. Nem-
endum knattspyrnuskólans var
öllum afhentur nýr bolti í þess-
ari viku.
Karitas valin í landsliðið
Karitas Jónsdóttir hefur verið
valin í 22 stúlkna landsliðshóp
sem er að undirbúa sig fyrir Evr-
ópukeppnina.
Samningur við
Sparisjóð Norðfjarðar
Líkt og í fyrra hefur knatt-
spyrnudeild Þróttar gert samn-
ing við Sparisjóð Norðfjarðar
og spilar í búningum merktum
þeim. Einnig hefur deildinni
borist að gjöf frá Sparisjóðnum
og málningarfyrirtækinu Pensli
sf. nýir upphitunargallar.
Úrslit í 4. deild
Höttur - KSH 5-0
Leiknir - Austri 5-1
Sindri - Valur 4-1
Firmakeppni
Hestamannafélagsins Blæs
Hfestamannafélagið Blær á
Norðfirði hélt sína árlegu firma-
keppni 8. júní sl. og var þar
keppt undir nafni þrjátíu og
tveggja fyrirtækja. Tókst
keppnin vel í alla staði og fara
helstu úrslit hér á eftir:
1. Blossi. Eigandi og knapi
Leifur Jónsson. Keppti fyrir
ESSO.
2. Fjalar. Eigandi og knapi
Sigurður Sveinbjörnsson.
Keppti fyrri Viðskiptaþjónustu
Guðmundar Ásgeirssonar.
3. Sikill. Eigandi og knapi
Guðbjörg Friðjónsdóttir.
Keppti fyrir Sparisjóð Norð-
fjarðar.
4. Bára. Eigandi og knapi
Halldóra Jónsdóttir. Keppti fyr-
ir Viðskiptaþjónustu Austur-
lands.
5. Funi. Eigandi og knapi Páll
Jónsson. Keppti fyrir Rafgeisla.
Knapi mótsins var valin Guð-
björg Friðjónsdóttir.
Samhliða firmakeppninni fór
fram unglingamót fyrir 16 ára
Pórarinn Guðnason á fálmandi tölti á Lukku sinni. Ljósm. hb
3. Snorri Jónsson. Keppti á
og yngri. Orslit urðu eftirfar-
andi:
1. Jóna Þórðardóttir. Keppti
á H-Blesa.
2. Sigrún Þorsteinsdóttir.
Keppti á Háfeta.
Fleigi.
4. Katrín
Keppti á Sólon.
5. Halldóra
Keppti á Rauð.
Einarsdóttir.
Jónsdóttir.