Ingólfur - 11.06.1945, Síða 2

Ingólfur - 11.06.1945, Síða 2
* INGÓLFUR Endurskoðun síjórn- ar skrárinnar INCÖLFUR Nokkrir Þjóðveldismenn RiUtjóri: PiALLDÓR JÓNASSON Iráur: 2802 og 3702) Af(re*ð«l« i Ingólfshvoli kl 1—3 e. h.; gími 2923 ENfiÓLFUR kemur út fvrst um BÍnn. eftir þvi sem hentunleikar um prentun hlaðsins levfa. — Misserisverð kr. 12,00. PraatnaiSja Jón* Hrltuunu Forsetinn fastur í sessi. Eíns og reyndar áSur var vitaS, Lefur Sveinn Björns- son orðið sjálfkjörinn ríkis- forseti fyrir næstu fjögur ár. Ef til vill er öllum ekki enn fullljóst hvílíkur sigur það er fyrir þjóðina, að fyrsti forseti hennar skyldi verða henni að slíku eining- artákni. — En vonandi kemur það smátt og smátt betur í Ijós, hversu miklu betur hefur til skipazt inn stofnun þjóð- höfðíngjavaldsins en efni sýndust standa til. Einmitt þetta atriði hefur orðið mörgum þjóðum eitt hlð erfiðasta, svo mikilsvert sem það jafnan hefur reynzt og ekki sízt nú á tímum. Islendingar iiafa og sjálf- ir á sínum tíma komizt í þá raun, að þeir sáu enga aðra íausn en þá, að ganga á hönd og hlíta einni og sömu for- ustu. En svo var ástatt, að þjóðin átti þá sjálf ekki til neínn mann, er hun öll gæti saínast um. Og svo gekk hún undir erlendan konung ó- sigruð og ótilneydd af öðru en sinni eígin sundrungu. Og, svo hefur það verið aJlari tírnarin. Aldrci voru horin á þjóðina vopn. Það sern á hana herjaði var hennar eigin illa fylgja — sundrungin, sem hún aldrei gat kveðið niður, af því að slík óvættur hræðist ekk- ert nema forustu. — For- usluíanst samkomulag Iiræð- *ist hún sízt af öllu. Það er einmitt í þann jarðveg, sem hún sáir fræjum sínum með heztum árangri. Og var það svo nokkur furða, þótt sú kennd vakn- aðí' rneð þjóðinni, er gyldi varhuga við því, er sjálf sundrnngaröflin fóru að íeika einingu og ætluo n að stofna ríki í landinu á ekki traustara grundvelli en sínu eigin sarnkorn ulagi ? Þótt óhug slægi á þjóðina, cr eðíI þessa samkomulags gat ekki einu sinni dulið sig undir sjálfri viðhöfn stofn- hátíðarinnar, þá ber nú að fagna þeim atburði, þareð ætla má, að hann verði þjóð- inni varanleg áminning um að hún má aldrei treysta for- sjá sundrungarinnar og sízt þegar sundrungin læzt vera sammála. Það var dýrmætt í sjálfu sér, þegar þjóðin heimtaði forsetavaldið af flokkunum. En þótt hún hefði það fram að fá að kjósa forset- ann, þá var svo sem ekki bit- ið úr nálinni fyrir það. Flokkarnir liöfðu hugsað sér að slást um forsetakjörið eft- ir sem áður og liafa nú ekki einu sinni getað setið á sér með að auglýsa það. Við þessu hefði þjóðin nú staðið öldungis óviðbúin ef svo hefði ekki viljað til, að hún hafði eignast forseta- efni, sem hún stóð svo ein- huga um, að flokkavaldið treystist ekki til að hagga neinu um það í þetta sinn. Ef þjóðinni nú auðnast að skilja hvaða hnoss lienni hefur í skaut fallið með for- setavaldinu, þá skilst henni og væntanlega, að sá vand- inn er meiri, að missa það ekki aftur. — Nú hefur hún sameiningartáknið á hend- inni næstu fjögur árin. Það er dýrmætur tími til að læra hvers virði það er — læra að skilja, að það er nú þetta, sem algerlega sker úr um það hvort hún er hér enn löndum ráðandi og húsbóndi á sínu heimili eða hvort hún telur sig hafa brugðið búi og stráir svo silfri sínu á völl- inn bara til að sjá menn berjast. ★ Á þessum fjögra ára tíma verður þjóðin líka að læra að skilja að um leið og hún hefur náð þjóðhöfðingja- valdinu undan flokkunum, þá* er það ekki lengur lýð- ræðilegt vald, lieldur þjóð- ræðilegt og hætt að vera flokksbundið. Forsetinn á að hafa mik- ið vald: — fara með sjálft aðalumboð þjóðarinnar — en helzt sjaldan að þurfa til þess að taka. Hann á því yfirleitt ekki að þurfa að bera hita og þunga dagsins, til þess að geta því betur verið á verði um aðalstefn- urnar í þjóðlífinu. Þótt þjóðin eigi staðfast þjóðhöfðingjavald, þarf hún engu að síður að eiga óflokks bundna löggjöf, stjórn og dómsvald og getur eins fyr- ir því þurft á sínum Chur- chill og Roosevelt að halda þegar í harðbakka slær. Það sem á að gera þjóðina enn harðari í Jónas Giiðmundsson: I. í allmörgnm greinum, sem ég skrifaði í blöðin Vísi og Þjóðólf -— og síðar í Ingólf — árin 1943 og 1944 ræddi ég nauðsyn þess, að skipuð yrði sérstök nefnd til þess að end- urskoða stjómarskrá íslenzka lýðveldisins, því stjórnarskrá sú, sem vér nú búum við, er úrelt orðin í flestum greinum og mörg ákvæði liennar þver- brotin af Alþingi sjálfu svo til árlega. Með þjóðinni fékk þessi til- laga mín mjög. góðar undirtekt- ir og þegar samvinna núver- andi stjórnarflokka hófst var það tekið upp sem eitt af stefnumálum núverandi stjóm- ar, að þessi nefnd yrði skipuð, og henni falið <>í samráði við liina þingkjörnu stjórnarskrár- nefnd Alþingis að gera upp- kast að nýrri stjómarskrá. Er því svo komið nú, að nefnd 20 manna og kvenna er komin á laggimar til þess að endursemja stjórnarskrá ís- lenzka lýðveldisins og er þá hin önnur af þeim jirem kröfum, sem ég bar fram fyrir þjóðar- innar liönd í greinum mínum, komin í framkvæmd. Má ég una Jjessu vel, því hvað sem segja má um skipun þessarar nefndar — og hún sé valin eftir allt öðmm reglum en ég ætlaðist til upphaflega, — er enginn efi á |>ví að hún mun inna af liendi mjög þýð- ingarmikið undirbúningsstarf við sköpun hinnar nýju, ís- lenzku lýðveldisstjórnarskrár. Eins og getið hefur verið í hlöð um og útvarpi em stjórnar- skrárnefndirnar tvær í raun og vem. Er önnur þeirra skipuð 8 mönnum, öllum kosnum af Alþingi, en hin skipuð 12 mönnum, skipuðum af forsæt- isráðherra eftir tilnefningu hinna fjögra stjórnmálaflokka, sem fulltrúa eiga á Alþingi. I hinni Alþingis-kjörnu stjórnarskrárnefnd eiga sæti: Gísli Sveinsson, sem er formað- ur |>eirrar nefndar, og Gunnar sókninni fyrir því að ná forsetanum, löggjöfinni, stjórninni og réttargæzlunni undan stjórn flokkanna, á að vera vitundin um það, að hún gerir einmitt flokk- unum sjálfum mest gagn með þessu, eða þeim taug- um í Jieim, er tilverurétt eiga. Er kannske ekki munur fyrir alla þá, sem einhverja hagsmuni hafa að verja, að vita/af einhverju valdi, sem stendur við stýri og gætir laga, heldur en að þurfa allt af sjálfir að standa í stríði og liðssafnaði til að sækja sinn rétt með valdi og und- ir högg andstæðinga? Thoroddsen frá Sjálfstæðis- flokknum, Jónas Jónsson og Hermann Jónasson frá Fram- sókn, Einar Olgeirsson og Haukur Helgason frá kommún istum og Stefán Jóhann Stef- ánsson og Haraldur Guðmunds- son frá Al}>ýðuflokknum. I hinni nefndinni, 6em nefnd er ráðgjafar og aðstoðarnefnd í stjórnarskrármálinu eiga j>essi 12 sæti: Sigurður Eggerz, formaður nefndarinnar, Auður Auðuns og Jóliann Möller, til- nefnd af Sjálfstæðisflokknum. Hjálmar Vilhjálmsson, Guðrún Björnsdóttir og Halldór Krist- jánsson, tilnefnd af Framsókn- arflokknum. Sigurður Thorlac- ius, Elísabet Eiríksdóttir og Stefán Ögmundsson tilnefnd af Kommúnistaflokknum og Guð- mundur Hagalín, Svava Jóns- dóttir og Jónas Guðmundsson tilnefnd af Alþýðuflokknum. Þessi nefnd, sem síðar var talin, kom saman á fyrsta fund sinn 22. maí s. 1. í Reykjavík, og liefur hún J>ar með hafið störf sín. Er því þess að vænta að nú fari nokkur skriður að koma á stjórnarskrármálið aft- ur, enda mun ekki af veita, ef endurskoðun ætti að vera lok- ið fyrir þinglok 1946 eins og ráðgert er í samkomulagi stjórnarflokkanna. II. Þar sem meginatriði greina minna frá því síðari hluta árs- ins 1943 og fyrri hluta árs 1944 sem birtust í „Vísi“, munu nú mörgum gleymd, og sumir hafa kannske aldrei séð j>au, vil ég taka hér upp einn kafl- ann úr þeim, eða j>ann sem fjallar um skoðun mína á því hvemig liin nýja stjórnarskrá j>urfi að vera hyggð. Sá kafli heitir: „Nýtt þjóðskipulag“ og ev þannig: „Það, sem j>ess vegna verður að gera nú þegar, er «ð laka allt okkar þjóSfélagskerfi, til rœkilegrar endurskoöunar. Og það má ekki horfa í }>ó það komi við hagsmuni einhverra og kosti miklar fórnir á ýms- um sviðum að korna nauðsyn- legum breytingum í frain- kvæmd. AUar atvinnugreinir okkar verður beinlínis að end- urskipuleggja. Sú endurskipu- lagning eða „umbreyting“ verð ur að fara fram á vísindalegum og hagfraiSilegum grundvelli, en ekki pólitískum. Það getur ekki lengur verið um }>að að ræða, að það fái að vera „til- finningamál“ einhverra svo- kallaðra stjómmálamanna, hvort stór, ræktanleg svæði af Islandi skuli látin ónytjuð og fúna niður til einskis gagns, eða hvort þau skuli tekin til ræktunar og ábýlis fyrir hundr uð eða jafnvel þúsundir manna. Við erum vaxin upp úr þeirri vitleysu. Það má heldur ekki vera komið undir geðþótta fáeinna manna, livort gert er út á fisk eða síld á Islandi eða livort hér er rekinn iðnaður, sem veitt getur arð og atvinnu. Vilji þeir, sem fé eiga, ekki leggja féð í atvinnurekslur, verður þjóðin sjálf að grípa til ann- ara ráða, frekar en að svelta eða selja sig í erlendan }>ræl- dóm. Að sjálfsögðu er J>að enn heppilegasta leiðin, svo langt sem náð verður með þeim hætti, að einstaklingar eða fé- lagsheildir leggi fé sitt í at- vinnurekstur þjóðarinnar og taki J>ar bæði nokkra áhættu og eigi rétt á hæfilegum arði og vernd }}jóðfélagsins til starfa. Sú leið sýnist eiga lang bezt við einstaklingshyggju norrænna og engilsaxneskra þjóða. En að það eitt eigi að ráða, ef einstaklingsframtakið ekki nægir, nær vitanlega engri átt. Svipað er að segja um hús- næðismálin. Það má ekki og getur ekki lengur verið háð duttlungum einhverra „ósýni- legra“ máttarvalda í }>jóðfélag- inu, hvort menn, sem ætla að reisa sér heimili og hafa til j>ess skilyrði, geti fengið hæfi- legt húsnæði til íbúðar eða ekki. Það mál verður að leysa sem hvert annað raunhæft við- fangsefni alþjóðar, án allra „tilfinninga“ og vangaveltna um hvað „passar fyrir flokk- inn“ eða „stefnuna“. Alla félagsmálalöggjöf J>jóð- arinnar verður að endurbæla stórkostlega. Fræðslukerfi landsins verður að umsteypa, J>ví }>að hefur reynzt illa á flest um sviðum. S veitarsl jórnski pu I aginu þarf að gjörbreyta og færa mik ið af verkefnum Aljnngis til fjórðungs{>inga eða fylkis{>inga, svo sveitarfélögin verði hinum mikilvægu verkefnuin vaxin, sem þeirra bíöa í framtíðinni. Ú trýrning atvinnulcysisins verSur beinlínis aS verSa stjórn arskrárákva’Si, líkt og fáta’kra- framfœrslan varS þaS, um 1874. Verði það, mun J>ví smátl og smátt útrýmt með skynsam- legri löggjöf, líkt og trygging- ar eru nú að útrýma gömlu- fátækraframfærslunni. Bankapólitíkin verður að miðast við hina hreyttu stefnu og aldrei er liægara um vik að breyta henni en einmitt nú, þegar skuldir við bankana eru tiltölulega litlar, baknarnir sjálfir vel stæðir og erlendar inneignir miklar. En öll þessi breyting J>arf að fara fram nokkurnveginn sam- tímis og undir stjórn, sem hef- ur öruggt fylgi alls meginhluta J>jóðarinnar til framkvæmd- anna“. ★ Ég er enn þeirrar sömu skoð- unar og hér kcmur fram. Ég tel ennþá að eitthvert mesla nauðsynjamál þessarar J>jóðar sé að framkvæma gagngerða endurskoðun á stjórnarskránni Niöurl. á 3. síðu.

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/827

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.