Austurland - 13.03.1997, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997
Austurland
Málgux" Alþýðuhaiitialagsins á Austurlandi
Utgcfandi: Kjördæmisráö AB á Austurlandi
Kitnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjarnason, Smári Geirsson og Steinuim L. Aðalsteinsdóctir
Ritstjóri: Steinþór Þórðarson (ábm) S 471 2391 og 854 8850
Blaöamaöur: Elrna Guðmundsdóttir S 477 1532 og 894 8850
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurla@eldhom.is
Austurland er aðili aá Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
IJmbrot og setning: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Bankafrumvörpin leysa engan vanda
Nú í vikunni komu fram á Alþingi fjögur
stjórnarfrumvörp sem varða ríkisbankana og
tjárfestingalánasjóði. Hér er um stórmál að ræða á
islenskan mælikvarða. sem munu verða umdeild á
Alþingi og meðal almennings. Samkvæmt frum-
vörpunum á að breyta Landsbanka og Búnaðar-
banka- í hlutafélög og heimilt verður að selja
einkaaðilum allt að 35% hlutatjár í þeim. Þetta er
afar óskynsamleg ráðstöfun. Lengi hefur verið um
það rætt að þörf væri á að styrkja bankakerfíð í landinu og einfalda það, t.d.
með þvi að sameina Landsbankann og Búnaðarbankann. Með því hefði
skapast örlugur banki sem hefði haft forsendur til að standast vaxandi
alþjóðlega samkeppni. Einnig hefði átt að athuga kosti þess að sameina
Búnaðarbankami og Sparisjóðina í öfluga keðju til þjónustu við almenning.
Með slíkum aðgerðum hefði mátt lækka tilkostnað, m.a. fækka útibúum, og
ná fram lækkun vaxta.
Ríkisstjórnin valdi hins vegar ekki þessa leið heldur leggur allt kapp á að
koma einkaaðilum'að kjötkötlunum með sölu á hlut í ríkisbönkunum. Bank-
amir verða eftir sem áður smáar einingar, illa búnir undir samkeppni og
afleiðingamar geta m.a. orðið hækkandi vextir.
Hugmynd bankamálaráðherra Framsóknarflokksins er ekki að fækka
bankastjórum. Nýlega var ráðinn þriðji bankastjórinn við Landsbankann til
5 ára án uppsagnarákvæða. Þess sjást heldur ekki nein merki að lækka eigi
laun bankastjóranna sem mikið var rætt um á dögunum. Með því að breyta
ríkisbönkunum i hlutafélög verður það ráðherra bankamála sem skipar í
bankaráóin í stað þess að Alþingi kjósi í þau. Sama ráðhena er ætlað að
skipa í stjóm nýs Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóðs.
Hér er þvi á feróinni samþjöppun pólitísks valds og það sama verður líklega
uppi á teningum eftir að Kolkrabbinn og aðrar stórsamsteypur auka áhrif sín
i bönkunum meó kaupum á hlutafé þeirra. Þær breytingar sem hér eru lagðar
til sverja sig í ætt vió margt annað sem ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæð-
isflokks hefur staðið fyrir, þ.e. að treysta hag hinna ríku á kostnað fjöldans.
Treystum siðferðilega mælikvarða
Fréttir af síauknum erfðabreytingum lífvera og einræktun hafa fengið
marga til að staldra við og spyrja, hversu langt eigi að ganga í krafti tækni
og vísinda. Meó erfðabreytingum eru rnenn að tikta við sjálft stafróf lífsins
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Með einræktun er gengið gegn öllum
viðteknum gildum og aftengt það öryggi sem lífheimurinn nýtur með fjöl-
breytni og náttúrulegri blöndun erfðavísa. Blind og siðlaus hagnaðarvon
knýr menn til tilrauna og síðan framleiðslu með þessum aðferðum. Gífur-
legum fjárhæóum er þegar variö í rannsóknir og framleiðslu erföabreyttra
lífvera, beint og óbeint, og kaupendur eru ekki upplýstir unr það með vöru-
merkingum þegar slíkar afurðir eru settar á nrarkaó.
Löngu er tímabært að svara því, hvort skynsamlegt sé að feta áfram þessa
braut. A Alþingi hefur sá er þetta ritar lagt fram tillögu urn að setja á fót
lífsiðfræóiráó til aó fjalla um þessi efni, fræða almenning og veita stjórn-
völdum og öórum ráðgjöf.
Björgunarafrekum fagnað
Landsmenn allir fagna giftusamlegri björgun 39 rnanna úr greipum
hafsins á einni viku. Þrjú mannslíf töpuðust og sú hörmulega staðreynd
undirstrikar hvaó hér var í liúfl á heildina litió. Landhelgisgæslan og
þrautþjálfaðir starfsmenn hennar hafa unnið ótrúleg afrek. Landsmönnum
hlýnar urn hjartarætur vió slík tíðindi og fámenn þjóð getur rneð réttu verið
stolt yfir árangri björgunarmanna. Þaó hefur sannast þessa síðustu daga,
hversu farsæl ákvörðun það var að íslendingar festu kaup á fullkominni
björgunarþyrlu. Hjörleifur Guttormsson
Getraunaleikur
Þróttar og Pizza 67
Baráttan á toppnum heldur
áfram, einn hópur, Trölladeig
náði 11 réttum um helgina og
skaust í efsta sætið ásamt Þrem-
ur fuglunr sem náðu 10 réttum.
Forustusauðimir frá því í síðustu
viku, Tippverkur, náði aðeins níu
réttum og eru nú í 3-6 sæti. I
kvennakeppninni náðu Dúilumar
10 rétturn og hafa nokkuð ör-
ugga fomstu en Sparidísimar og
Lækjarlummumar gætu velt þeim
úr efsta sætinu ef þær taka sig á
síðustu vikumar.
Þar sem átta bestu vikumar
gilda í keppninni, hópamir losa
sig við tvær lélegustu vikumar,
birtum við stöðuna núna þar sem
búið er að kasta frá tveimur
lélegustu vikunum.
KARLAR:
1-2 Þrírfuglar 59
1-2 Trölladeig 59
3-6 Tippverkur 58
3-6 Sigurjón Kr 58
3-6 Mamma og ég 58
3-6 Barðinn 58
7-8 LEA 0 57
7-8 Táarinn 57
9 HB ráðgátur 56
10 West End 55
11 Gufumar 54
12-13 Trölli 53
12-13 Homi 53
14-15 Quartz 52
14-15 HIP 52
16 SÚNbúðin 51
Nesk hafa 59 stig og síðan koma
Tippverkur, Sigurjón Kr..
Mamma og ég og Barðinn frá
Nesk og GNG frá Sey og Heilsa
KONUR
1
2
3
4
5
Dúllumar 55
Sparidísirnar 53
Lækjarlummur 52
B2 50
United girls 49
6-7 Enskumar 47 frá Esk. með 58 stig. Aldrei hefur
6-7 Pool girl 47 keppnin verið svona jöfn og
8 Frúin í öðm 44 verður mjög spennandi að fylgj-
9 BK 39 ast með tveimur síðustu vikun-
Getraunaþjónusta Þróttar er
opin föstudaga kl 17-19 og
laugardaga kl 10-13,30.
Skrifstofa Knattspymudeild-
ar er opin á sama tíma.
Kaupstaðakeppnin
Það em hvorki fleiri né færri
en sex hópar með forustu í
Kaupstaðakeppninni með 75 stig
síðan koma tveir hópar með 73
stig og enn fleiri eiga möguleika
á efsta sætinu þegar tvær verstu
vikumar hafa verið teknar frá.
Þá er staðan þannig að Hjörtur
frá Sey. hefur forustu með 60
stig, Þrír fuglar og Trölladeig frá
um og sjá hver tryggir sér
40.000 kr vinningin.
En staðan eftir 8 vikur er
þannig.
1-6 Tippverkur Nesk 75
1-6 Sigurjón Kr Ncsk 75
1-6 Þrír fuglar Ncsk 75
1-6 GNG Sey 75
1-6 Heilsa Esk 75
1-6 Trölladeig Nesk 75
7-8 Hjörtur Sey 73
7-8 LEA 0 Ncsk 73
9-10 Táarinn Nesk 72
9-10 Mamma og ég Nesk 72
11-13 Loðna Esk 71
11-13 HB ráðgátur Nesk 71
11-13 Göddi Sey 71
14-15 West End Ncsk 70
14-15 Dúllumar Ncsk 70.
Cefðu forsket í
Mr
M
Pixel Pentium 133 MHzlmeö:
16 Mb EDO minni j|
1600 Mb hörðum diski
3,5' disklingadrifl
15' Qume LNi 5E ííatur lággeísja liiaskjár
64 bita PCI flýtiskjákort 1 Mb
Windows 95 á ..........
íslenskt lyklaborð
6 hraða geisladrif
16 bita hljóðkort
80 watta hátafálillllllj
10 geisladiskar í pakka
Tveggja hnappa mús
Athugið; Þetta er oðeins ein uiíœrsla af mörgum mögulegum
A8tl«$
Miðási 1, Egilsstöðum
Sími 471 2266
Austfirðingur vikunnar
Austfiréingur vikunnar er að þessu sinni Einar Torfi
Einarsson útvarpsstjóri Verkó-Aust sem sendir þessa
dagana út á FM 101.4
Fullt nafn? Einar Torfí Einarsson
Fæðingardagur? 10. ágúst 1980
Fæðingarstaður? Neskaupstaður
Heimili? Sæbakki 1 Neskaupstað
Núverandi starf? Útvaipsstjóri
Önnur stört? Hljóðfæraleikari
Fjölskylduhagir? Fender gítar
Bifreið? Engin - ennþá
Uppáhaldsmatur? Svínasteik
Helsti kostur? Fljótur að læra
Helsti ókostur? Tek of mikið að mér
Uppálialds útivistarstaður? Portið við Egilsbúð
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Hljóðfærahúsið
Hvert langar þig mest að fara? Á stórtónleika
Áhugamál? Tónlist, hljóðfæraleikur
Uppáhalds stjórnmálamaður? Einar Már Sigurðarson
Uppáhalds íþróttafélag? BN
Hvað ætlarðu að gera um helgina? Spila með hljómsveitinni Yokon á Fáskrúðsfirði og vera á
fullu í útvaipinu