Austurland


Austurland - 13.03.1997, Page 4

Austurland - 13.03.1997, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997 „Viljum opna Egilsbúð upp á gátt“ -segja Birgir Búason og Guómundur R. Gíslason sem ráöa munu þar húsum næstu árin Fyrir réttri viku undirrituöu þeir Birgir Búason og Guðmundur Rafn- kell Gíslason samning við bæjarráð Neskaupstaðar um leigu á félags- heimilinu Egilsbúð til 5 ára. Þeir taka viö rekstrinum á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Dagsetningin er táknræn aó þeirra sögn. t»aó vakti nokkra athygli þegar Páll Sigurjónsson ákvað aö hætta rekstri en í tíó hans og framan af Guðmundar Ingvasonar einnig, hefur verió bryddað upp á mörgum nýjungum í Egilsbúð og starfsemi aukin á flestum sviðum frá því sem áóur var. í viðtali viö Austurland í lok janúar sagóist hann hafa talið tímabært aö hleypa að nýju fólki meö nýjar hugmyndir. Nú er sem sagt Ijóst hverjir það veröa sem koma til með að spreyta sig á rekstri „höfuðstaðar skemmtanalífs á Ausíurlandi". Austurland spjallaði við veróandi framkvæmdastjóra Egilsbúðar um bakgrunn þeirra og það sem framundan er. Samningurinn undirritaður. Frá vinstri; Guðmundur Rafnkell Gíslason, Guðmundur Bjarnason bæjar- stjóri og Birgir Búason. Ljósm. SÞ Hvor um sig með mikilvæga reynslu Birgir er ekki ókunnugur í Egilsbúð en hann var kokkur þar um 4 ára skeið og flutti frá Neskaupstaó siðasta haust. Guð- mundur hefur reynslu af skipu- lagningu skemmtanahalds en hann hefur unnið við þrjár Neistaflugshátíðir auk þess sem hann skemmti sjálfur um land allt með hljómsveitinni Súellen, hér á árunum áður. Þeir eru held- ur ckki margir sem hafa oftar tekið þátt í skemmtanahaldi í Egilsbúð cn Guðmundur R. Þá var hann einnig í rekstrarstjórn Egilsbúðar frá árinu 1990 þar til hún var lögð niður i fyrra þegar nefndakerfí bæjarins var tekið til endurskoðunar. Það ætti því að blasa við hver grunn verkskipt- ingin verður milli framkvæmda- stjóranna tvcggja. Þeir Birgir og Guðmundur gcrðu með sér samning áður en þeir gengu frá umsókn um rcksturinn. Þeir eru sammála um að það taki nokk- urn tima að ná tökum á svona rekstri og töldu því ráðlegt að hugsa dæmið scm langtímaverk- efni. „Þaö þarf fímm ára áætlanir til aö gera mcnningarbyltingar" segir Guðmundur, „svo við hitt- umst á lcynilcgum fundi í Blönduskála á Blönduósi, til að ganga frá lausum endum" bætir Birgir við. Ástæðan fyrir þcssurn fundarstað er sú að Birgir cr nú búsettur í Borgarnesi cn Guð- mundur á Akurcyri. Hugmyndavinnan komin á fullt Þeir félagar cru grcinilega búnir vinna sína heimavinnu og hafa orðið vel mótaðar hug- myndir um áherslur í rekstrin- um. Á fundi með bæjarráði á dögunum lögðu þeir frarn lista með luigmyndum um ýmis við- t'angsefni, bæði tengd dagskrá í luisinu og innri gæðamálum. Þessum hugmyndum hyggjast þeir hrinda í framkvæmd þegar þeir luifa tekið við cn til að nefna eitthvað af listanum þá er ein huemvndin að auka úrval af heimsendum mat. Birgir hefur t.d. kynnt sér kínverska matar- gerðarlist en kínverskur matur er seldur með heimsendingarþjón- ustu víða unt heim. Þá hyggjast þeir bjóða upp á „a la carte“ mat- seðil í Fjallasalnum um helgar og leggja áherslu á vandaða þjónustu, notalegt umhverfi og góðan mat. Einhverjar breyting- ar verða á húsnæðinu en engar byltingar fyrst i stað. Efnt verður til námskeiða fyrir starfsfólk og jafnvel almenning. „Við viljum opna húsið upp á gátt sem félagsheimili og vonum svo bara að það fari vel saman við annan rekstur í húsinu. Við gerum okkur ljóst að það skilar ekki öll starfsemi beinum arði og við ætlum að reyna að vera víð- sýnir og líta á björtu hliðamar á þessu öllu saman“ segir Guð- mundur. Fyrsta útspil er ekki ákveðið en þeir Birgir og Guð- mundur eru ákveðnir í að stefna að veglegri dagskrá um sjó- mannadagshelgina. Leiga og bindandi framkvæmdaáætlun Leigusamningurinn tók nokkxum breytingum frá því sem verið hefúr. Nýmæli í honum em einkum þau að nú stefna leigu- takar að greiðslu leigu eftir ár en hingað til hafa rekstraraðilar annast reksturinn án þess að sér- stakt endurgjald hafi komið fyrir. Greiðsla á leigu og leigu- upphæð er svo háð framvindu í rekstrinum. Þegar rekstrarforminu var breytt á sínum tíma var Egilsbúð talsverður baggi á bæjarsjóði og leigufyrirkomulagið því hag- kværnt fyrir bæjarsjóð þótt sér- stök greiðsla hafi ekki komið fyrir. Nýju leigutakarnir telja hins vegar eðlilegt að greiða leigu en gera í staðinn kröfú um að bæjaryfirvöld geri bindandi áætlun urn framkvæmdir við húsið og viðhald þess. Þetta atr- iði telja leigutakar mjög mikil- vægt svo viðhald og endurbætur verði markvissari. Oþarft að ilnna hjólið upp aftur Jafnframt því að hafa undir- ritað leigusamning við bæjarsjóð þá hafa Birgir og Guðmundur handsalað samning við Pál Sigur- jónsson um að taka við hans rekstri á Pizza ‘67 og umboði fyrir Úrval-Útsýn. Auk þcss kaupa þeir af Páli ýmsan búnað sem þcssu fylgir. „Þessum samn- ingi fylgir svo leiösögn Páls inn í reksturinn. Það cr óþarfí að vera aö finna upp hjólið aftur og aftur" segir Guðmundur. Nýbakaður kennari í framkvæmdastjórastólinn Sem áður sagði er Guömund- ur búscttur á Akurcyri til vors þar sem hann er að Ijúka kenn- aranámi við Háskólann á Akur- eyri. Þegar samningurinn gengur í gildi 1. maí verður hann aö byrja í prófúm en Birgir kemur austur um miðjan apríl og bjarg- ar málum þar til prófum lýkur. En er þetta það sem Guðmundur hafði séð fyrir sér að loknu kennaranámi? „Eg hef aldrei einblínt á kennslu sem framtíð- arstarf þótt ég hafi valið þetta nám. Þetta er góð almenn mennt- un og nýtist við margt. Loka- verkefnið mitt fjallar t.d. um stjórnun og heimfærist beint upp á stjómun Egilsbúðar ef því er að skipta. Þetta er mjög spenn- andi verkefni og mér finnst þetta ákveðin draumastaða, enda mjög á mínu áhugasviði.“ Tilhlökkunarefni að koma aftur Birgir hefur verið matreiðslu- meistari á Mótel Venus í Borgar- nesi frá því að hann fór frá Nes- kaupstað en líst mjög vel á að snúa aftur þótt dvölin syðra hafi ekki verið löng. „Mér líkaði mjög vel að búa í Neskaupstað og nú þegar spennandi starf er í deiglunni þá er bara tilhlökkun- arefni að koma aftur“ segir Birg- ir sem er ættaður frá Eskifirði. Dvölin í Borgamesi hefur þó verið ágæt, að hans sögn, en rætumar liggja fyrir austan. Aðalfundur Björgunarsvcitar SVFÍ í Neskaupstað vcrður haldinn sunnudaginn 16. mars n.k. kl. 20.00, að Ncsi, húsi fclagsins Dagskrá: Vcnjulcg aðalfundarstörf Önnur mál Fclagar Ijölmennið Stjórnin

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.