Austurland


Austurland - 13.03.1997, Side 5

Austurland - 13.03.1997, Side 5
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997 5 Minning Látirni er í Esbjerg í Dan- rnörku Henning Rasmussen, sem þar var borgarstjóri urn fimmtán ára skeið, frá 1964- 1979. Henning var áhugamaður utn norrænt samstarf og vina- bæjartengsl og í borgarstjómar- tið hans var tekið upp vina- bæjarsamstarf milli Esbjerg og Neskaupstaðar. Hann kom hingað tvívegis á þessurn árum ásamt Ebbu konu sinni og þau eignuðust hér kunningja og vini. Allir sem kynntust Henn- ing Rasmussen hrifust af mann- inum. Hann hafði afar sterka útgeislun og sameinaði mikla hlýju og virðuleika. Hugur hans til Neskaupstaðar kom vel í ljós eftir snjóflóðin 1974, en hann átti stóran þátt i að vinabæimir færðu okkur snjóbíl að gjöf. Heiming Rasmunssen fædd- ist i Viborg á Jótlandi árið 1926. Hann lauk hagfræðinámi' l'rá háskólanum í Arósum og var þá þegar orðinn mjög virkur í ungliöahreyfingu danskra sósíaldemókrata. Hann fluttist til Esbjerg 1956 sem kennari við Esbjerg Hojskole og var kjörinn i borgarstjórn 1958. Hann hætti setu þar eftir eitt ár vegna starfa í Kaupmannahöfn og 1960 var hann kjörinn á þing. Aftur lá svo leiðin til Es- bjerg og inn í borgarstjómina og árið 1964 tekur hann við starfi borgarstjóra. Næstu finnntán árin em enn í dag talin mestu uppgangsár Esbjerg. Þá reis íjöldi bygginga, sem í dag setja mikinn svip á bæinn og Esbjerg varð ótvírætt forystuafl á Vestur-Jótlandi og fimmti stærsti bær landsins. Árið 1979 bað Anker Jörgen- sen, sem þá var að mynda ríkis- stjórn, Henning um að koma til liðs við sig. Hann gegndi því kalli og varð innanríkis- og dómsmálaráðherra Danmerkur næstu þrjú ár og sat svo áffam á þingi til 1994. Síðustu tvö árin sem forseti danska þjóðþings- ins, sem þykir mesta virðingar- staða þar í landi. Hann var um alllangt skeið formaður dönsku sveitarstjórnarsamtakanna og starfaði í bindindishreyftng- unni. All staðar ávann hann sér virðingu fyrir störf sín og hefur fengið þau eftirmæli, sem sjald- gæf em um stjórnmálamann, að hvergi beri skugga á hans feril. Henning Rasmunssen naut því miður ekki langs ævikvölds og átti við hörð veikindi að stríða síðustu tvö árin. Ég veit, að hans er sárt saknað í Esbjerg þar sem hann á vísan stað í sögu bæjarins. Við sem kynntumst honutn í gegnum vinabæjasamstarfið kveðjum hann með þökk og virðingu og sendum Ebbu, börnum þeirra tveimur og bamabömum innilegar samúð- arkveðjur. Kristinn V. Jóhannsson Erunn að tgka upp fallegan eumarfatnað og Stills í Dgnmörku. frá SAND WICH Ljósai- dra;4it og fleita Verslunin Kristal Hafnarbraut 3 - Neskaupstað M 477 1850 Frá Sundlaug Neskaupstaðar Opnunartími sundlaugarinnar fyrst um sinn: Mánudaqa tH föstudaqa frá kl. 7.00-10.00 og 17.00-20.00 Lauqardaqa frá kl. 10.00-18.00 Sunnudaga frá kl. 10.00-14.00 Gufubað konur mánudaga- miðvikudaga og laugardaga Gufubað karlar sunnudaga- þriðjudaga og fimmtudaga Forstöðumaður Fermingar Vinsælu sérmerktu fermingapennastatífin kosta 4.400,- til ykkar komin. Einnig ýmis önnur gjafavara úr steini. 720 Borgarfiröi eystri sími 472 9977 ■ tax 472-9877 Takið eftir Kynning á hinni frábæru Clean Trend, umhverfisvænu hreingerningalínunni veður í blómabúðinni Laufskálanum, Neskaupstað, í dag finuntudag 13. mars 1997 frákl. 16.00- 18.00. Lauflétt hreingerning. Komið - Skoðið. Allir Velkomnir. Miglena best Árshátíð Blaksambandsins var haldin um síðustu helgi. Þar var Miglena Apostalova Þrótti valin besti leikmaðurinn í 1. deild kvenna. Valið fer þannig fram að liðin tilnefna bestu og efnilegustu leikmennina en liðin mega ekki velja leikmcnn úr eigin liði. Óhætt er að segja að Norð- firðingar geti verið stoltir af blökurunum sínum því í heildina fengu 9 blakarar tilnefningu. Þeir sem fengu tilnefningu sem bestu leikmennirnir í 1. deild karla voru , Entil Gunnars- son og Apostol Apostolev, cfni- legasti leikmaðurinn í fyrstu deild karla Brynjar Pétursson, í 1. deild kvenna fcngu tilncfn- ingar sem bestar, Petrún Bj. Jónsdóttir, Svetlana Morochina, Unnur Ása Atladóttir og Migl- ena Apostolova, sent cins og áður sagði var svo valin bcsti leikmaðurinn og Guðrún .lóns- dóttir og Hjálmdís Zöcga fcngu tilnefnignu sem efnilegustu lcik- mennirnir í 1. deild kvenna. Blak Þróttur R. og ÍS tryggðu sér um helgina deildarmeistara- titlana í blaki. Karlaliöið okkar tapaði báðum leikjum sínum 0-3 gegn Þrótti R. og ÍS og tóku báðir leikimir aðeins 104 mín- útur. Leikurinn við ÍS fór 15-2, 17-16 og 15-0 og leikurinn við Þrótt R. 15-7, 15-6 og 15-13. Liðið hafnaði í öðru sæti með 34 stig en Þróttur R. varð deildar- meistari sem áður sagði með 42 stig. Þróttur vann Víking í kvenna- flokki 2-3 og tók leikurinn 106 mínútur. Fimrn hrinur þurfti til að fá fram úrslit en lokatölur urðu 15-12, 8-15, 15-10, 13-15 og 11-15. Liðið tapaði svo fyrir IS á sunnudaginn 0-3 og fóru hrinumar 15-7, 15-10 og 15-10. IS varð þar með deildanneistari en Þróttur N. í öðru sæti. Ekki er hægt að segja annað en úrslit þessara leikja hafi verið vonbrigði, en á það verður aö líta að vegna ófæröar flugleiðis var farið með rútu suður og má segja að bæði liöin hafi komiö beint í leiki laugardagsins cftir 15 tíma akstur. Það er hins vcgar spurning hvort metnaður for- ráðamanna blaksins að koma ekki of seint í lciki hafi þarna ekki gengið of langt. Þessunt leikjum átti auðvitað aó fresta eins og t.d. leikjunum í hand- boltanum og körfuboltanum, Sem frestað var vegna sam- gönguerfiðleika. Þaó þarf cng- inn að efast um að þreyta hefur setið í leikmönnum eftir svona langt rútuferóalag og það cr án efa ein ástæða ófaranna. En þrátt fyrir allt má vel vió una að hafna í öðm sæti, úr- slitakeppnin er eftir og úrslita- leikurinn í bikarkeppni kvenna verður á laugardaginn. Hann verður leikinn í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og hefst eftir því sem best er vitað kl. 12.30 og verður sjónvarpað beint. Aðalfundur Félags eldri borgara í Neskaupstað verður haldinn sunnudaginn 16. mars kl. 16.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál 3. Kaffiveitingar Félagar eru hvattir til að mæta Ath. Allir 60 ára og eldri eru velkomnir í félagið. Stjórnin

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.