Austurland


Austurland - 13.03.1997, Síða 7

Austurland - 13.03.1997, Síða 7
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997 7 HVAÐ ER ÍSLENSKT DAGSVERK? ísicnskt dagsverk ‘97 er söfn- unar- og uppfræðsluverkefni á vegum námsmannahreyfinga á Íslandi. I'eir sem að verkinu standa eru: Félag framhalds- skólanemenda, Iðnnemasamband íslands, Stúdentaráð Háskóla ís- lands og Bandalag íslenskra sér- skólanema, eða um 30.000 námsmenn. Verkefnið er í raun grein af meiði verkefnis sem á sér langa sögu á öðrum Norðurlöndum þar sem það hefur verið umiið undir heitinu Nordisk Operation Dags- verk, eða Norrænt dagsverk. íslenskir nemendur hafa tvívegis tekið þátt i verkefninu. Það var árið 1985 og 1991 þegar öll Norðurlöndin unnu saman að því að gera dagsverkefni er helgað' var börnum og ungmennum fátækra landa t.d. Brasilíu. Það verkefni skilaði mjög góðunt árangri. I ár tilcinkum við dagsverk okkar börnum og ungmennum á Indlandi sem eiga við mikla tátækt og erfiðleika að stríða. Peningarnir sem safnast af ís- lcnsku Dagsverki eiga að notast til að stuðla að bættum mennt- unarmöguleikum indverskra ung- mcnna. Fimmtudaginn 13. mars yfir- gcfur fjöldi íslenskra náms- manna skólastofur sínar þ.á.m. nemendur Vcrkmenntaskóla Austurlands og gefa dagsverk í þágu ungs t'ólks á Indlandi. Og eins og áður sagöi fara allir þcir peningar sem fást fyrir hin ís- lensku dagverk í að leggja grunn að framtíð stéttlausra jafnaldra okkar á Indlandi. Þessi vinnudagur fer þannig fram að fyrirtæki bæjarins (þau sem vilja) kaupa sér starfsmann í hálfan dag á tæpar 2000 kr. og mega þau virkja starfsmanninn í hver þau störf er þeim sýnist. Einnig er nemendum reyndar leyft að kaupa sér frí á sama verði umræddan dag og mega þeir þá að sjálfsögðu haga frí- tíma sínum að vild. Enginn kemst upp með að skrópa í vinnu sinni þennan dag því vel er fylgst með öllu og séð til að hver nemandi mæti á sinn vinnustað, eða fái íjarvistarstig ella. Hefúr tilskipaður hópur ungmenna úr nemendaráði gengið um síðustu daga og rætt við flest fyrirtæki bæjarins og boðið þeim að kaupa sér einn eða fleiri starfsmenn. Svo er öllum nemendunum rað- að niður á vinnustaði og eiga þeir vafalaust eftir að standa sig með mikilli prýði. Kannski halda sumir að nú séu framhaldsskólanemar að snapa sér frí en það er nú ckki alls kostar rétt. Þeir sem fara ekki út að vinna verða að mæta í skólann, og ef þeir gera það ekki fá þeir fjarvistarstig fyrir alla þá tíma sem þeir slepptu. Menntunarmöguleikar ung- menna á Indlandi eru sáralitlir vegna fátæktar og viljum við leggja okkar að mörkum við að bæta skilyrði indverskra ung- menna til menntunar. Til dæmis um vel heppnað dagsverk má taka það er íslenskir nemendur tóku þátt í dagsverkinu Norræna árið 1991. Þá söfnuðust 4,3 milljónir króna, sem nýst hafa til þess að bæta hag tæplega íjögur- þúsund brasilírskra ungmenna. Upphaflega stóðu vonir til þess að unnt yrði að aðstoða um tvö- þúsund ungmenni svo að verk- efnið skilaði mun betri árangri en ráð var fyrir gert. Vonumst við til að ná jafnvel betri árangri í þetta skiptið og látum nú hendur standa fram úr ermum og söfnum handa jafn- ingjunt okkar á Indlandi. OKKARFRAMLAG SKIPTIR MÁLI!!! F.h. nemenda Verkmennta- skóla Austurlands. Ólafía Zoéga. Hótel Egilsbúð fær viður- kenningu fyrir GÁMES INESKAUPSTAÐURI er fyrsta matvælafyrirtækiö á Austurlandi sem fær viðurkcnn- ingu heilbrigöiseftirlits fyrir uppsetningu og virkni GAMES- kerfis. GAMES er skammstöfun fyrir greining áhættuþátta og ntikilvægra cftirlitsstaða og er kerfi fyrir innra gæðaeftirlit í matvælafyrirtækjum. Markmið GÁMES cr að tryggja öryggi matvæla. í samtali við stjórnendur Hótels Egilsbúðar kom fram að þeim hafi ekki litist á kröfu heilbrigðisyfirvalda í fyrstu og að vissulega hafi talsverð vinna farið i að setja kcrfið upp. Nú þegar reynsla er komin á kerfið og skráningar allar orðnar þjálli þá sé þetta lítið mál. I raun er GÁMES-kerfið tæki sem gerir starfsfólk meðvitaðra um ábyrgð sína og eykur því metnað í starfi. Hcr fara því augljóslega saman hagsmunir týrirtækis og viðskipta- vina. Öllum matvælafyrirtækjum í landinu ber a.m.k. að taka svo- kölluð fyrstu fimrn skref í innra eftirliti og stærri fyrirtækin eiga að setja upp GÁMES-kerfi. Mörg fyrirtæki eru langt komin með þessa vinnu og vonandi verður innan skamms hægt að sjá skjöl þessu til staðfestingar hjá sem flestum fyrirtækjum. I’i'ill Sigurjónsson frumk\’œmdastjóri Egilsbúðar og matreiðslu- mennirnir Diuna Fjölnisdóttir og Jónþór Gunnarsson. Ljósm. Pjesta. Hátt í 200 manns notfærðu sér kennslu í skíðagöngu ODDSSKARÐ __________ Hátt í 200 manns notfærðu sér kcnnslu Skíöa- sambands íslands í skíðagöngu á skíðasvæðinu í Oddsskarði sunnu- daginn 2. mars. Lciðbcinandi var Óskar Jakobsson og honum til aðstoðar Hjálmar Jóelsson á Egilsstöðum. Þátttakendur voru á öllum aldri en þcir eldri þó fjölmennari en yngra fólkið. Þessi kennsla var liöur I ferö SKÍ um landið til aö kynna skíöagönguna. Stofnfundur áhugasamtaka um verndun hálendis Austurlands AUSTURLAND Næstkomandi sunnudag mun áhugahópur um verndun hálendis Austurlands halda stofnfund þar stofnuð verða formleg samtök um þessi mál. Fundurinn verður haldinn í Golfskálanum að Ekkjufelli og hefst kl. 15.00. Um tveggja ára skeið hefur hópur áhugafólks um vemdun hálendisins verið starfandi með óformlegum hætti, en nú er sem sagt ætlunin að stofna formleg samtök. Megin- markmið hinna nýju samtaka verður að vinna gegn öllu því sem spillt getur viðkvæmri nátt- úru svæðisins og að sporna gegn einhliða áróðri varóandi virkj- anaáætlanir á Austurlandi. Verð- ur þetta m.a. gert meó því aó halda ráðstefnur og gefa út kynningarefni. Það er orðið tímabært að grasrótarsamtök láti í sér heyra og komi á framfæri skoðunum sínum varöandi þessi mál. Þetta er ekki síst brýnt núna í ljósi síðustu frétta af virkjana- málum hér austanlands, en ný- lega hafa birst fréttir um áætlanir um breytingar á Fljótsdalsvirkj- un og fyrirhuguöu Eyjabakka- lóni. Undirbúningsnefnd stofn- fundarins hvetur alla, sem láta sig náttúru Austurlands varöa, til aó mæta á fundinn. Alli ríki og Finnbogi á vinsældarlistanum AUSTURLAND Tvö austíirsk fyrir- tæki Harðfrystihús Eskifjaröar og Síldarvinnslan hf. eru á lista Frjálsrar verslunar yfir vinsæl- ustu fyrirtækin 1997. Þessi fyrirtæki eru í 27.-35. sæti list- ans og hafa ekki veriö á slíkum lista f'yrr en njóta nú samkvæmt þessari könnun söniu vinsælda og t.d. flugfclagið Atlanta, Ingvar Helgason og íslandsflug, svo einhver séu nefnd. Ný fjármálaþjóniista fyrir aldraða NESKAUPSTAÐUR lýsti Landabanki íslands úti- búið í Neskaupstað nýja þjón- ustu til handa íbúum Breiða- bliks, íbúða aldraðra, og sjúkl- inga á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Þjónustan felst í því að allir þeir sem búa á Breiðabliki og dvelja á FSN og eru í viðskiptum við Lands- banka íslands geta hringt í bankann og fengið senda heim peninga, sem þeir þurfa að taka út úr bankanum eða eru að fá senda til sín heiman frá, auk þess sem önnur þjónusta verður veitt eftir því sem við veróur komið. Sama þjónusta stendur öðr- um elli- og örorkulífeyrisþeg- um til boða. Hjörvar Jensson útibús- stjóri sagði að með þessu væri verið að bregðast við þörf. Það hefðu verið nokkur brögð að því að einstaklingar föluðust eftir heimsendingarþjónustu og því vcrið ákveðið að bjóða hana öllunt sem af einhverjum ástæðum, eiga ekki hægt um vik að koma í útibúið.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.