Austurland - 13.08.1998, Side 7
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
7
Um launakjör bæjarfulllrúa
Sl. föstudag birtist undarleg og
óvönduð frétt í DV þar sem
launakjör bæjarfulltrúa í nýsam-
einuðu sveitarfélagi Eskifjarðar,
Reyðarfjarðar og Neskaupstaðar
voru gerð að umtalsefni. Þetta
var aðalfrétt blaðsins umræddan
dag og birti það m.a. flennimynd
af bæjarstjóm Neskaupstaðar frá
síðasta kjörtrmabili á forsíðu
ásamt uppsláttarfyrirsögn um að
bæjarráð hins nýja sameinaða
sveitarfélags hefði hækkað laun
sín um 300 prósent. Eg hef orðið
var við að fólk haldi að hér séu
hinir kjörnu fulltrúar að
skammta sér há forstjóralaun og
því er full ástæða til að gera
grein fyrir nokkrum þáttum sem
snerta þetta mál:
- Bæjarráð hins nýja sveitar-
félags fjallaði um tillögu um kjör
bæjarfulltrúa, bæjarráðsmanna
og fulltrúa í nefndum á fundi r
síðustu viku. Sú tillaga sem lögð
var fram var samþykkt einróma
en hún á eftir að hljóta afgreiðslu
bæjarstjómar. Tillagan fól í sér að
bæjarfulltrúar og bæjarráðsmenn
fengju greidd föst laun en ekki
yrði einungis greitt fyrir setu á
formlegum fundum eins og tíðk-
aðist í sveitarfélögunum þremur
fyrir sameiningu. Þessi föstu
laun skyldu vera 11,4% af þing-
fararkaupi eða um 25 þúsund
krónur á mánuði. Fulltrúum r
nefndum yrði hins vegar greitt
fyrir hvem fund og yrði þóknun
til almenns nefndarmanns 4000
kr. fyrir fundinn en 8000 kr. til
formanna nefnda. Forseti bæjar-
stjómar og formaður bæjarráðs
skulu samkvæmt umræddri til-
lögu fá greidd tvöföld bæjarfull-
trúalaun enda em gerðar meiri
kröfur til þeirra um vinnufram-
lag en til annarra bæjarfulltrúa.
- Laun þessi eru miðuð við
stærð hins nýja sveitarfélags og
áætlað nauðsynlegt vinnufram-
lag bæjarfulltrúa, bæjarráðs-
manna og nefndarmanna. Allur
samanburður við þau laun sem
greidd vori í sveitarfélögunum
þremur fyrir sameiningu er út í
hött. Hér er um að ræða nýtt
sveitarfélag og föst laun en ekki
greiðslur fyrir setu á einstökum
fundum. Ef DV hefði í frétt sinni
borðið umrædd kjör saman við
kjör sveitarstjómarmanna í sam-
bærilegum sveitarfélögum þá
hefði varla verið um uppsláttar-
frétt að ræða, en þess í stað ber
blaðið kjörin saman við þær
greiðslur sem áður trðkuðust til
bæjarfulltrúa á Eskifirði. DV
velur sér viðmið til að fá út sem
hæsta prósentuhækkun launanna
og segir það mikið um eðli DV
sem fjölmiðils.
- Til þessa hafa kjör sveitar-
stjórnarmanna á Austurlandi
verið bágborin r samanburði við
þau kjör sem gilt hafa víða
annars staðar. Þessi staðreynd
hefur leitt til þess að algengast
hefur verið að sveitarstjómar-
menn hafa tapað á því efnahags-
lega að gegna sveitarstjórnar-
starfi. Af þessum ástæðum hafa
ýmsir hæfir sveitarstjómarmenn
fljótlega gefist upp á starfmu og
eins hefur þessi staðreynd komið
í veg fyrir að hæft og reynslu-
mikið fólk gefi kost á sér til
sveitarstjórnarstarfa. Kjör
sveitarstjórnarmanna þurfa að
vera þannig að allir eigi að geta
átt þess kost að sinna þeim án
þess að bera af þeim efnahags-
legan skaða. Að sama skapi má
halda því fram að störf af þessu
tagi ættu ekki að vera sérstak-
lega eftirsóknarverð launanna
vegna.
- Störf sveitarstjómarmanna
eru sífellt að verða umfangs-
meiri enda verkefni sveitarfélaga
að verða fjölþættari. Þessi stað-
reynd ásamt stækkun sveitar-
félaga með sameiningu hlýtur að
hafa áhrif á hvaða þóknun skal
greiða fyrir sveitarstjómarstörf.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
er sveitarstjóm skylt að ákveða
hæfilega þóknun til kjörinna
fulltrúa og allir sanngjarnir
menn hljóta að sjá að hæfileg
þóknun er breytileg og hlýtur að
fara eftir verkefnum og stærð og
íbúafjölda sveitarfélags.
- Við sameiningu sveitarfé-
laga verður að byggja upp nýtt
stjórnkerfi sem hefur önnur ein-
kenni en þau stjómkerfi sem áð-
ur voru við lýði. Stjórnkerfi
stærri sveitarfélaga gera gjaman
meiri kröfur til manna og
verkefni kjörinna fulltrúa,
nefnda og ráða verða víðtækari.
Sem dæmi má nefna að einungis
6 faglegar nefndir starfa í nýju
sameinuðu sveitarfélagi Eski-
fjarðar, Neskaupstaðar og Reyð-
arfjarðar en slíkar nefndir voru
samtals um 30 í sveitarfélögun-
um þremur fyrir sameiningu.
Þetta þýðir að mun meiri vinnu
er krafist af nefndarmönnum nú
en áður og með einhverjum hætti
er nauðsynlegt að taka tillit til
þess.
- Sá sem þetta ritar er þeirrar
skoðunar að sameining sveitar-
félaga leiði vart af sér sparnað
Góð veiði hefur verið í Norð-
fjarðará í sumar og dæmi eru um
að menn hafi náð allt að 18
fiskum á hálfum degi. Stærsti
fiskur sumarsins sem veiðst hef-
ur er bleikja sem mældist 4 1/2
pund en það var Kristján J.
Kristjánsson sem veiddi hana á
Wiskey.
Að sögn Kristjáns eru að-
stæður í ánni allar hinar bestu og
óvenju skemmtilegar miðað við
árstíma. T.d. er hitastigið hárrétt
og einnig hefur það mikið að
segja að óvenju mikið vatn er í
hvað snertir launagreiðslur til
kjörinna fulltrúa. Sameiningin
hefur miklu frekar í för með sér
hagræðingu í embættismanna-
kerfi, aukinn styrk sveitarfélags-
ins sem stjórnsýslueiningar og
möguleika á fjölþættari þjón-
ustu. Það er í reyndinni grund-
vallaratriði að fólk fáist til að
gegna sveitarstjórnarstörfum og
þá mega hinir efnahagslegu
þættir ekki verða tii þess að fæla
frá.
Að lokum þetta. Umræður
um kjör sveitarstjórnarmanna
eru af hinu góða eins og reyndar
allar umræður um sveitarstjórn-
armál. Það er hins vegar brýnt að
þessar umræður séu málefnaleg-
ar og heiðarlegar en ekki í þeim
stíl sem einkennir fréttaflutning
DV.
Smári Geirsson
ánni miðað við árstíma. Mest
veiðist að venju á flugu, og þá
helst ljósar flugur, appelsínugul-
ar flugur á borð við Wiskey,
rauðar og gular eins og Mickey
Finn og heimasætan hefur einnig
gefist vel.
Eins og venjulega hafa fundist
nokkrir nýir veiðistaðir í ánni í
ár. Einnig er útlit fyrir gott
framhald en stórstreymt er þessa
dagana sem þýðir að nýr
göngufiskur er að ganga r ánna.
Ovenju góð skilyrði
í Norðfjarðará
Norðfjörður í
Næstkomandi laugardag verður
sýnt í Danska ríkissjónvarpinu,
Danmarks Radio, stöð 2, sér-
stakur þáttur þar sem fjallað
verður um Danann og mjólkur-
ffæðinginn Jeff Clemmensen. Um
er að ræða þátt í seríu þar sem
fjallað er um danska ríkisborg-
ara erlendis og verður 5 - 6 mín-
útna símaviðtal við Jeff í þættin-
um. í tengslum við viðtalið verð-
ur srðan sérstök kynning á Nes-
kaupstað sem Þórarinn Hávarðs-
son hefur tekið saman, en um
sérstaka samvinnu milli hans og
sjónvarpsstöðvarinnar dönsku er
að ræða. I þessari samantekt
verður sýnt frá kraftakeppninni á
Neistaflugi, en Jeff sá um hluta
skipulagningar hennar, sýnt frá
SVN, mjólkurstöðinni, frá skíða-
svæðinu í Oddsskarði ásamt
fleiru. Myndimar hefur Þórarinn
verið að taka undanfamar vikur
en hluti þeirra kemur þó úr safni
hans.
í samtali við blaðið sagði Jeff
að ljóst væri að þeir sem standa
að þættinum væru búnir að
Danska Ríkissjónvarpinu
vinna heimavinnuna sína og það
vel. Þeir vissu t.d. mikið um
pólitfkina á staðnum, en héldu
þó að hér væri rekið einhvers-
konar kommúnrskt stjómkerfi.
Þeir höfðu einnig mikinn áhuga
á að vita hvemig nafnið Litla
Moskva væri til komið og
hvemig stæði á því að sett hefði
verið upp sérstakt skilti við
bæinn með þessu nafni.
„Þeir spurðu einnig nokkuð
út í atvinnulífið en sú staðreynd
að enginn íbúi staðarins væri
atvinnulaus kom þeim nokkuð
spánskt fyrir sjónir“, sagði Jeff
að lokum.
Danski mjólkurfrœðingurinn Jeff Clemmensen veðrur í Stœrsti fiskur sem landað liefur verið úr Norðfjarðará þetta
aðalhlutverki þegar Danska ríkissjónvarpið mun fjalla um sumarið er 41/2 punda bleikja sem Kristján J. Kristjánsson veiddi
danska ríkisborgara erlendis nœstkomandi laugardag. Ljósm. as á dögunum. Ljósm. S.Þ.