Austurland - 06.04.2000, Side 1
50. árgangur
Neskaupstað, 6. apríl 2000.
14. tölublað
Einn árekstur
á dag
Mikið hefur verið um
árekstra í Norðfirði að
undanförnu og má
segja að einn hafi orðið á degi
hverjum. Fæstir eru þeir alvar-
legir, en þó varð harður árekstur
sl. föstudag við Kirkjubólsaf-
leggjarann þar sem tveir bílar
lentu saman. Bílarnir eru mikið
skemmdir og telst því mildi að
ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Lögreglan þakkar það bílbelta-
notkun og því að öll börn voru í
bílstólum.
Lögreglan hefur eftir trygg-
ingafélögum að hvergi á Austur-
landi sé hærri tíðni árekstra en á
Norðfirði, hvort sem um er að
kenna erfiðu gatnakerfi eða
öðru. Ekki hefur lögreglan ná-
kvæma tölu yfir árekstra sem
orðið hafa á þessu ári en þeir
skipta tugum.
Sýnum
tillitssemi
Þórður Júlíusson hesta-
maður í Norðfjarðarsveit
kom að máli við blaðið
og vakti athygli á umferðarmál-
um í sveitinni. Eins og ástandið
er nú í sveitinni þá eru allar reið-
leiðir utan þjóðvegarins ófærar
vegna snjóa og hestamenn því
nauðbeygðir til að nota hann.
Þeir sem ganga sér til heilsu-
bótar eru þessa stundina eins
settir og hestamenn. Því er það
afar mikilvægt að ökumenn sýni
tillitssemi og hægi á þegar þeir
mæta eða aka fram úr hesta-
mönnum og gangandi vegfar-
endum til að draga úr hættu á
slysum.
Með vorkomunni batnar
ástandið að þessu leyti en alltaf er
þó nokkur umferð hestamanna
og gangandi vegfarenda á þjóð-
veginum sem ökumenn eiga að
taka tillit til samkvæmt
umferðarlögum.
Formannsefni i Samfyikingunni heimsækja Austurland:
„Ég er alveg
óhræddur“
m m
- segir Ossur Skarphédinsson
Formannsefnin í Samfylking-
unni, Tryggvi Harðarson og
Össur Skarphéðinsson, halda
opinn fund á Fosshóteli á Reyðar-
firði í kvöld. Þar kynna þeir
áherslur sínar og hugmyndir um
framtíð Samfylkingarinnar. Einn-
ig verður ijallað um einstök mál,
svo sem stjórnun fiskveiða og
stóriðjumál á Austurlandi.
1 tilefni heimsóknarinnar hafði
Austurland samband við fram-
bjóðendurna og spurði þá sömu
spurningarinnar:
Afhverju ættu austfirskir
kjósetidur að styðja þá?
Össur: „Stefna okkar Tryggva
er ákaflega svipuð að mörgu leyti.
Ég held að fólk verði að meta
okkur að einhverju leyti út frá
fyrri reynslu okkar en ég tel mig
hafa mjög skýra sýn á þau mál
sem eru brennidepli og hvernig
megi byggja Samfylkinguna upp
sem flokk.“
Tryggvi: „Það er nú erfitt að
svara svona spurningu. Við Össur
munum að öllum líkindum halda
sitt hvora framsöguna og fólk
verður auðvitað að reyna byggja
afstöðu sína að einhverju leyti á
þeim. Ég mun kynna mín
áherslumál sem eru í fyrsta lagi
menntamálin, i öðru lagi sjávar-
útvegurinn, í þriðja lagi heilbrigð-
ismálin og í fjórða lagi velferðar-
kerfið. Ég hlakka nú fyrst og
fremst til að koma þarna hitta
fólk og heyra hljóðið í mönnum.“
Telur þú, Össur, að afstaða þín
til stóriðju og virkjana á Austur-
landi hafi skaðað stöðu þína
meðal austfirskra Samfylking-
armanna?
Össur: „Hef fundið fyrir
miklum stuðningi á
Austurlandi."
„Mér finnst nú að blaðamaður
ætti kynna sér málin áður hann
spyr svona spurningar. Ég hef sagt
það áður að ég væri ekki mótfall-
inn þessum framkvæmdum á
Austurlandi ef Fljótsdalsvirkjun
færi í lögformlegt umhverfismat.
Ef niðurstaða úr slíku mati hefði
verið jákvæð þá myndi ég sætta
mig við hana. Mér finnst þetta
Tryggvi: „Hlakka til að heyra
hljóðið f mönnum."
lýðræðisleg leið. Satt að segja
hefur það komið mér á óvart hve
miklum stuðningi ég hef fundið
fyrir á Austurlandi þannig að ég
er óhræddur," sagði Össur.
Þeir félagar munu svara spurn-
ingum fréttamanna og gesta á
fundinum hefst klukkan hálfníu í
kvöld og er öllum opinn.
Síldarvinnslan fjárfestir
Skíði, skemmtun
og gott skap
Mikið verður um dýrðir
um páskana í Fjarða-
byggð en þá verður
haldið „Páskafjör í Fjarðabyggð".
Ýmsir aðilar standa að fjörinu, en
Ferðamálafélag Fjarðabyggðar
hefur umsjón með framkvæmd-
inni.
Að sögn Jóhanns Tryggvason-
ar, stjórnarformanns Skíðamið-
stöðvarinnar í Oddsskarði, er
þetta gömul hugmynd sem verið
er að hrinda í framkvæmd.
„Þetta hefur staðið til lengi en
það hefur alltaf vantað gistirými.
Nú er það vandamál leyst og því
ekkert lengur til fyrirstöðu. Hug-
myndin er sú að virkja allt í
Fjarðabyggð sem hefur aðdráttar-
afl og reyna að skapa skemmti-
lega stemmningu í kringum þessa
hátíð. Skíðamiðstöðin mun spila
stórt hlutverk en fólk virðist vera
farið að tengja páskahátíðina í
auknu mæli við skíðaíþróttina.
Mjög fjölbreytileg dagskrá verður
á boðstólum, m.a. páskaeggjamót
fyrir ungu kynslóðina, öldunga-
mót í svigi og snjóþoturall. Við
munum leggja áherslu á skíði,
skemmtun og gott skap,” sagði
Jóhann í samtali við blaðið.
Utan þessa verður ýmislegt
annað í boði. Ferðafélag
Fjarðamanna verður með tvær
gönguferðir, sundlaugin verður
opin, Brján verður með tónlistar-
veislu og margt fleira.
Síldarvinnslan hf. stefnir að
því að flytja bolfiskfram-
leiðsluna, sem hingað til
hefur verið í „gamla“ frystihús-
inu, inn í nýja fiskiðjuverið á
þessu ári. Að sögn Björgúlfs
Jóhannssonar forstjóra er ætlunin
að öll starfsemi fyrirtækisins verði
flutt inn eftir á árinu. „Þetta hef-
ur staðið lengi til og stefnan er að
klára þetta á árinu. Öll starfsemin
verður flutt nema skrifstofurnar
en þær verða enn á sínum stað,“
sagði Björgúlfur.
Flutningurinn á bolfiskvinnsl-
unni kostar ýmsar breytingar í
fiskiðjuverinu og undanfarið hef-
ur fyrirtækið staðið í fjárfesting-
um á nýrri tækni, m.a. nýrri
vinnslulínu frá Marel. „Sú tækni
mun gera okkur kleift að fjölga
möguleikum í fiskvinnslu, en við
þurfum ekki einungis að Qárfesta
í nýrri tækni því það þarf líka að
útbúa betri aðstöðu fyrir starfs-
fólk,“ sagði Björgúlfur.
Hann sagði ennfremur að þetta
væru ekki einu fjárfestingarnar
sem fyrirtækið stæði í um þessar
mundir. „Við erum enn að skoða
þann möguleika að reisa nýja
kæli- og frystigeymslu. Ætlunin
var að hefja framkvæmdir á þessu
ári en þeim verður að öllum
líkindunt frestað í bili.“
Björgúlfur sagði að lokum að
orðrómur um aðrar fjárfestingar
á vegum fyrirtækisins ætti ekki
við rök að styðjast.
Á aðalfundi Síldarvinnslunnar
um næstu helgi verða þessar
breytingar kynntar frekar.
Sfmsvari
878 1 474
Skíöaskáli
s. 476 1 465
Þróunarstofa Austurlands rrr
www.austur.is
Ávallt eitthvað nýtt
Skíðamiðstöð Austurlands
í Oddsskarði