Austurland


Austurland - 06.04.2000, Page 4

Austurland - 06.04.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 Austuiland Ritstjóm, afgreiðsla og auglýsingar: Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður » 477 1750 - Fax: 477 1756 Netföng: austurland@eldhorn.is og austurland@strik.is Ritstjóri: Karl Th. Birgisson (ábm.) » 477 1092 og 861 9047 Blaðamaður: Jón Knútur Ásmundsson Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir » 477 1571 Útgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir Umbrot: Austurland Prentun: Nesprent hf. Austurland er í Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða Næst á dagskrá: Önnur mál Austfirðingar standa nú í kunnuglegum sporum. Eftir um það bil tvö ár verður tekin um það ákvörðun hvort álver rís í Reyðarfirði. Þá ákvörðun munu taka íslenskir fjárfestar og hugsanlegir samstarfsaðilar þeirra hjá Hydro Aluminium í Noregi. Einmitt af því að þetta eru afar kunnugleg spor ættu Austfirðingar að vera farnir að skilja, að það er ekki undir rikisstjórn íslands eða austfirzkum sveitarstjórnarmönnum komið hvort hér rís álver eða ekki. Álver rís ekki þótt Halldór Ásgrímsson belgi sig. Álver rís ekki þótt forstjóri Hydro Aluminium komi til landsins, eins og Valgerður Sverrisdóttir heldur af einhverjum ástæðum að skipti máli. Álver rís ef væntanlegir eigendur þess sjá sér hag í því. Það er einföld stað- reynd sem vendingar síðustu viku hafa rækilega undirstrikað. Þess vegna gera Austfirðingar nú bezt í því að draga djúpt andann, halla sér aftur og hugleiða með hvaða hætti öðrum innviðir samfél- agsins verða helzt styrktir á næstu misserum. Það getur til dæmis gerzt með löngu tímabærum samgöngubótum, m.a. jarðgöngum, en einnig með því að hlú að og örva annars konar atvinnustarfsemi sem byggir ekki tilkomu sína á örvæntingu stjórnmálamanna. í vikunni kynntu íslensk miðlun, Tæknival og Cisco Systems fyrirætlanir sem eru dæmi um slíka atvinnuuppbyggingu. Fyrirhugað er að setja upp allt að níu íjarvinnustöðvar víðs vegar á landsbyggð- inni á þessu ári og því næsta. Stöðvarnar verða beintengdar sín á milli —• gögn, hljóð og mynd flytjast tafarlaust og örugglega á milli staða — þannig að í raun má líta á þær sem einn vinnustað. Þetta verður fyrsta fyrirkomulagið sinnar tegundar í heiminum og er traust vísbending um það hversu tölvu- og fjarskiptatækni er á háu stigi hérlendis. Þessi fyrirtæki munu veita allt að þrjú hunduð manns atvinnu og ugglaust fleirum í afleiddum störfum. Það er ríflega sá fjöldi sem hefði fengið störf í 120 þúsund tonna álveri. Og þetta gerist án þess að stjórnmálamenn reyti hár sitt og án þess að samfélagið logi stafnanna á milli í illdeilum. Hér er ekki lítið gert úr áformum um stóriðju og virkjanir eða þeim heillavænlegu áhrif sem slík atvinnustarfsemi hefði á byggðarlög á Austurlandi. Hins vegar er skynsamlegt að nú, þegar stund gefst til að setja önnur mál í forgang, einbeiti Austfirðingar sér að því að byggja upp annars konar tækifæri, annars konar atvinnuvegi, sem útheimtir minni pólitíska og tilfmningalega orku að skapa. Fordæmi Islenskrar miðlunar, Tæknivals og Cisco er hvatning til þess. Tímabært er að við tökum upp næsta dagskrárlið í samfélagslegri umræðu: Önnur mál. Háfeti skrifar Einhver mesti feluleikur landsins fer fram þessa dagana. I felum eru fram- bjóðendur til formanns Samfylk- ingarinnar. Það er hreint með eindæmu hvað lítið ber á bar- áttunni um formennsku í flokki, sem ætlað er að verða stærstur flokka á Islandi. Einhverju lífi á þó að reyna að blása í lognmoll- una, því nú hefur verið boðað til funda með þeim. Fundurinn fyrir Austurland verður á Reyðarfirði í kvöld. Þegar Háfeti fór að velta þess- um fundi fyrir sér, sótti á hann kvæði, sem Steinn Steinarr orti til vinar síns, Jóns Sigurðssonar, kadetts. Það hefst svo: Jón Kristófer, kadett í Hernum! í kvöld verður samkoma háð, og Lautenant Valgerður vitnar um veginn að Drottins náð. Og svo verður sungið og spilað á sítar og mandólín tvö. Ó, kotndu og höndlaðu Herrann, það hefst klukkan rúmlega sjö. Það er ekki nema von, að Há- feta detti í hug einhvers konar hallelújasamkoma, þegar minnst er á væntanlegt formannskjör. Frambjóðendurnir hafa báðir lýst því yfir að hinn sé slíkur öðlingur, að ekki komist hnífurinn á milli þeirra, og vináttan er svo grunn- múruð, að hvorki heyrist hnjóð né last. Þetta getur ekki gengið. Það á að berjast um vegtylluna. Verst er, ef þeir líta ekki á formennskuna sem neina vegtyllu, og séu í reynd að berjast um hvor þeirra eigi að fórna sér fyrir hinn, besta vin sinn. Háfeti krefst skýrra svara á fundinum i kvöld „Háfeti vill ekki heyra eitthvert þrugl um að frambjóðandinn hafi látid undan fjölda áskorana" Því meir, sem Háfeti velti fyrir sér fundinum, því verr leist hon- um á alla þögnina. Það dettur ekki einu sinni neinum í hug að yrkja kvæði um þá félaga. Það minnsta, sem frambjóð- endurnir geta gert, er að gera Háfeta og öðrum, sem fundinn sækja grein fyrir því, hvað það er, sem gerir akkúrat hann svo hæfan til að taka að sér formennsku í Samfylkingunni. Össur var fyrri til að tilkynna framboð. Því færi vel á því, að hann byrjaði og gerði fundinum grein fyrir því, hvers vegna Össur Skarphéðinsson sé sá, sem kjósa á. Því næst ætti Tryggvi að segja frá því umbúða- laust, hvers vegna Tryggvi Harð- arson sé hæfari en Össur til sama embættis. Það hlýtur hann að telja sig, annars hefði hann ekki farið að bjóða sig fram gegn Össuri. Og þeir verða að tala tæpi- tungulaust. Það þýðir ekkert að fela sig bak við einhverja moð- suðu um að þeir hafi fundið fyrir þrýstingi stuðningsmanna um land allt. Háfeti ætlar ekkert að efast um það, en einhver rök hafa stuðningsmennirnir haft fyrir þessum þrýstingi. Þau rök vill Háfeti fá að heyra, því með því að fara í framboð, hefur frambjóð- andinn fallist á þau og gert þau að sínum. Enn síður vill Háfeti heyra eitt- hvert þrugl um að frambjóðand- inn hafi látið undan fjölda áskor- ana. Samfylkingin þarf nefnilega á öllu öðru að halda en formanni, sem lætur undan. Samfylkingin þarf formann, sem stendur fast á stefnumálum hennar og gefur ekki tommu eftir, nema til að vinna tvær. Þá er aldrei að vita nema ein- hverjum dytti í hug að hnoða saman eins og einni vísu um þá félaga: Samfylkingarfólk fyrir austan áfund skulutn kotna í kvöld. Þar Tryggvi mun tróna á palli og tala utn væntanleg völd. Og Össur mun undir það taka í enduróm hljótnar það vel. Ó, kotttið og heyrið þá herra þar hrinda hvor öðrum í Hel. Au stu rl a n d f y ri r 3 0 á ru m Fjórar milljónir érid 2000 Hvað mundi verða álitið um hjón sem tækju 4 milljónir og kveiktu í þeim, eða einstakling sem brenndi 1,5 milljónum? Þau eða hann væru vafalaust álitin meira en lítið geðbiluð. En þetta eru einmitt hjón og einstaklingar að gera, sem reykja 1 pk. af sígarettum á dag, sem kosta 47 kr. pakkinn. Árið 2000 í árslok, ættu hjónin 4.178.762.00 kr. og hefðu í vexti á ári 292.500.00, miðað við lægstu vexti. Dágóður skildingur það? Einstaklingurinn ætti í árslok ársins 2000 1.718.025 kr. eða sá sem reykir 1 pk. á dag, dágóður lífeyirissjóður það! Hjón um tvítugt gætu átt þennan sjóð um fimmtugt og gott betur, því þetta er miðað við verðið á sígarettum í dag, sem trúlega eiga eftir að hækka eitthvað til ársins 2000. Og hægt að fá hærri vexti með því að leggja inn til lengri tíma. [...] j-j- 3. apríl 1970. AÐ HANDAN eftir Gary Larson „Fíflið þitt! Þú eyðir tvöþúsundkalli í reykskynjara og við erum ekki einu sinni búin að finna upp eldinn."

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.