Austurland - 06.04.2000, Page 7
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
7
Hótel Egilsbúð hefur að
undanförnu leitað að
matreiðslumanni í stað
Lofts Gíslasonar sem er á förum
til starfa á nýjum veitingastað
Sigga Hall í Reykjavík.
Á ýmsu hefur gengið í leitinni
að eftirmanni hans og bersýni-
lega ekki auðvelt að fá menn til
starfa hingað austur enda mikil
þensla í greininni. Sagan segir að
einn hafi hafnað starfinu á þeim
forsendum að hann nennti ekki
að vinna „þarna fyrir vestan“ og
annar sagðist hafa unnið áður úti
á landi og aldrei ætla að gera það
aftur.
Við nánari eftirgrennslan kom
í ljós að hann hafði unnið eitt
sumar á Þingvöllum...
Nokkur átök hafa verið á
bak við tjöldin um
ráðningu upplýsinga- og
kynningarfulltrúa Fjarðabyggðar,
en búist er við að bæjarstjórn
gangi frá ráðningunni í dag,
fimmtudag. í stöðuna þóttu helst
koma til greina þau Elma Guð-
mundsdóttir og Jón Björn
Hákonarson, sem ráðgjafanefnd
um kynningarmál mælti með að
yrði ráðinn.
Vinnuveitendur Jóns Björns
virðast þó vissir um niðurstöð-
Myndarlega stúlkan á húsinu á Akt
myndinni heitir Amelia fæðingu var
Rún Pétursdóttir. Hún grömm aö þy
sentímetrar.
hennar eru Ing
dórsdóttir og
' Gunnarsson.
Skemmtanir
A rtnltȒll
una því fyrir allnokkrum dögum
hófu að birtast í Skjávarpinu
auglýsingar um laust starf mark-
aðs- og þjónustufulltrúa Skjá-
varps á Austurlandi. Það er ein-
mitt starfið sem Jón Björn er í
um þessar mundir...
Afjörur Austurlands rak
nýlega Dagfara, tímarit
Samtaka herstöðvaand-
stæðinga, sem enn virðast vera
til. Mjög fáar auglýsingar eru í
blaðinu, en fáeinar styrktarlínur
frá fyrirtækjum á borð við Mál
og menningu og lögfræðistofu
Atla Gíslasonar, þess gamal-
reynda félagshyggjumanns. Það
sem vakti athygli Austurlands var
þó myndarleg styrktarlína frá
Síldarvinnslunni í Neskaupstað.
Skyldu Hörður og Eimskipafél-
agið vita af þessu...?
uðvitað vita allir að það
er ljótt að hlæja að
óförum annarra, en
þessi mistök eru of skondin til að
þagað sé yfir þeim. I þeim dálki
DV, þar sem sagt er frá fæðing-
um, var nýlega greint frá mynd-
arlegri dalvískri stúlku að nafni
Amelía Rún. Ekki efast Austur-
land að hún hefur verið foreldr-
um sínum mikil gleðisending, en
varla þó svo að DV-menn hafi
þurft að nefna dálkinn sinn upp
á nýtt og kalla hann „Skemmtan-
ir“, eins og stóð þar skýrum
stöfum...
77/
hamingju
20 ára
Margrét Ágústsdóttir
í Neskaupstað verður tvítug
8. apríl
Sylvía Dögg Halldórsdóttir
á Reyðarfirði verður tvítug
8. apríl
50 ára
Guðrún Valtýsdóttir
á Reyðarfirði er fimmtug
í dag, 6. apríl
Sumarvinna
Auglýst er eftir fólki
í eftirtalin sumarstörf:
FJARÐABYGGÐ
Flokksstiórn í vinnuskóla
Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og hafi einhverja
reynslu af umgengni við unglinga og af almennum garðyrkjustörfum.
Almenn störf í aarðvrkiudeild
Umsækjendur verða að vera 16 ára eða eldri.
Almenn störf í áhaldahúsi
Umsækjendur verða að vera 16 ára eða eldri.
Skráning ferfram á skrifstofum sveitarfélagsins á Eskifirði, Reyðarfirði
og í Neskaupstað dagana 10., 11. og 12. apríl nk.
Umsjónarmaður verklegra framkvæmda
Marinó Stefánsson Sími 861 9026
J^Con u koöú2
Laugardagskvöldið 8. apríl
Borðhald hefst kl. 20
Matur, tískusýning o.fl.
Tvíeykið Jón og Bjarni heldur
uppi fjörinu til kl. 03:00
Verð kr. 2.900.
Kr. 500 eftir miðnætti
Aldurstakmark á ball 18 ár
Pizzutilboð:
Föstudag - laugardag - sunnudag.
2 áleggstegundir og 21 Pepsi á kr. 1.490.
Veisluþjónusta:
Fermingar
Brúðkaup
Erfidrykkjur
Litlar eða stórar veislur
Hvar og hvenær? Þú átt valið
Leitið tilboða
FOtSHÓTEL
Reyðarfirði S. 474 1600 og 861 2288
Hefst fimmtudaginn 6. apríl. 25 tegundir.
Komið og gerið góð kaup.
SPARKAUP
Neskaupstað Sími 477 1301
Aðrar sýningar: Laugardag 8. apríl, mánud. 10. apríl, miðvikud. 12. apríl,
ftistud. 14. apríl, laugard. 15. apríl og sunnud. 16. apríl.
Allar sýningar kl. 20:30, nema sú síöasta sem er kl. 15:00.
Miðaverð kr. 1.500. Miðapanlanir i síma 471 1546.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs