Austurland


Austurland - 06.04.2000, Blaðsíða 8

Austurland - 06.04.2000, Blaðsíða 8
Epli og appelsínur 145 kr. kg Hvitlaukstvífaökur Svínarif Kjarnagrautar Kraft þvottaduft Snúðar frá Kexverksmið junni Tilboð Nýtt frá HeUsuhúsinu: Olífulauf Dandelionrá! Trönuberjatöflur m/ C vítamini ■ f, a\\a daga frá M l0.oo-Jo a 19 0o NESBAKKI @477 1609 og 8971109 Elsta landsmálablað lýðveldisins Stofnað 1951 Austurland Neskaupstað 6. apríl 2000 Verð í lausasölu kr. 170 Mikil þátttaka á kristnitökuhátíð Kristnitökuhátíðin sem haldin var um síðustu helgi á Norðfirði gekl: „frábærlega vel" svo vitnað sé í orð séra Sigurðar Rúnars Ragnarssonar sóknarprests. Hátíðin hófst á með sunnudagaskóla en þar mættu u.þ.b. hundrað manns, bæði börn og fullorðnir. Fullt var út af dyrum í hátíðarguðsþjónustunni þar sem séra Svavar Stefánsson predikaði og ríkti mikil hátíðarstemming. Að lokinni hátíðarguðsþjónustu var haldið í Egilsbúð þar sem nemendur í Tónlistarskólanum komu fram. Ýmsir munir voru einnig til sýnis, meðal annars hundrað og tíu biblíur á jafnmörgum tungumálum, en þær hafa verið í eigu Óskars Björnssonar síðan árið 1953. Á myndinni er Óskar fyrir framan hluta af Biblíunum. Sjá nánar á bls. 2. Öfund frá Eskifirði stefnir á toppinn Ein efnilegasta hljómsveit Austurlands um þessar mundir er rokkhljóm- sveitin Öfund frá Eskifirði. Hljómsveitina skipa Eiríkur Þór Hafdal trommuleikari, Karl Stock gítarleikari, Jóhann Örn Jónsson bassaleikari og Aron Haraldsson söngvari. Öfund var stofnuð síðastliðið haust og síðan hafa staðið yfir þrotlausar æfingar. Á dögunum var samþykkt á bæjarstjórnarfundi að veita þeim félögum styrk til að fjármagna nokkra stúdíótíma, en þeir hafa að undan- förnu haldið til í hljóðverinu á Seyðis- firði við upptökur. I samtali við Austur- land sögðust þeir vera mjög bjartsýnir á framhaldið og mikið verður að gerast á næstunni. „Við erum nýbúnir að taka upp tvö lög sem verða á safnplötu sem Menntaskólinn á Egilsstöðum ætlar að gefa út. I sumar höld- um við svo aftur í stúdíó og tökum upp sex lög til viðbótar. Ef allt fer vel þá reynum við að gefa út heila plötu í haust,“ sagði Eiríkur Þór í samtali við blaðið. Frá vinstri: Eiríkur Þór Hafdal, Aron Haraldsson, Karl Stock og Jóhann Örn Jónsson fremst á myndinni. Innbrot - en engu stolið Aðfaranótt sunnudags var brotist inn í verslun Elísar Guðnasonar á Eskifirði, en ekki hefur féleysi knúið viðkomandi áfram því engu var stolið að því er best er vitað. Að sögn lögreglunnar er ekki vitað hvað innbrots„-þjóf- inum“ gekk til né heldur hver var að verki. Nýr framkvæmdastjóri hjá Tölvusmiðjunni Magnús Þ. Ásgeirsson, sem starfað hefur hjá Staðarvalsnefnd um stóriðju í Reyðarfirði, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Tölvu- smiðjunnar ehf. Magnús tekur við starfi Jóns Fjölnis Albertsson- ar sem mun sinna sérverkefnum hjá fyrirtækinu í kjölfar breytinga sem nú standa yfir, en fyrirtækið Tölvumyndir keypti nýverið helmingshlut í Tölvusmiðjunni. Samningur Tölvusmiðjunnar og Tölvumynda er liður í að efla rekstrarþjónustu og hugbúnaðar- þróun utan höfuðborgarsvæðis- ins með sterkri starfsemi, dreif- ingu verkefna og uppbyggingu á þekkingu. Borgarafundur um Neistaflug Næstkomandi þriðju- dagskvöld verður hald- inn opinn borgara- fundur um framtíð og fyrir- komulag Neistaflugs. Fundur- inn verður í Blúsklúbbnum og hefst kl. 20:30. Að sögn Jóns Björns Hákonarsonar er til- gangurinn að hvetja til umræðu og fá fram hugmyndir um það sem brydda mætti upp á á næstu hátíð. Jón Björn hefur ásamt Guð- mundi Gíslasyni og Ólafi Egils- syni og Laufeyju Sigurðardóttir, nemendum í Verkmenntaskól- anum, þegar lagt nokkrar meg- inlínur að næsta Neistaflugi, en á næstunni verður auglýst eftir starfsmönnum til að móta há- tíðina nánar. Ætlunin er að „blása til sóknar“, að sögn Jóns Björns, og fá á Neistaflug stór- hljómsveitir sem þegar hefur verið haft samband við. Þá verður komið til móts við gagn- rýni með því að stórauka fram- boð á atriðum fyrir börn, m.a. með leiktækjum. Þá hafa Gunni og Felix lýst eindregnum áhuga sínum á að heimsækja Fjarða- byggð aftur, en þeir áttu hér góða daga sl. sumar. Unglingar munu einnig fá sitthvað við sitt hæfi, en rætt hefur verið við rekstraraðila Valhallar á Eskifirði um að þar verði haldnir dansleikir með 16 ára aldurstakmarki. Þetta er einnig liður í að færa Neistaflug út víðar um Fjarðabyggð en verið hefur. Þá hafa Neistaflug og Austur- land tekið saman höndum um keppni um einkennislag Neista- flugs árið 2000. Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar um fyrirkomulag keppninnar hjá Bjarna Frey Ágústssyni í Tónmenntaskólanum, en gert er ráð fyrir að lögum sé skilað á snældum og nótum fýrir 1. maí. Bjarni Freyr mun ásamt öðrum góðum listamönnum æfa lögin og flytja á lokakvöldi í Egilsbúð þann 20. maí. Þar munu dóm- nefnd og gestir í sameiningu velja besta lagið. Nýsmíði úr stáli og áli - SVN Vélaverkstæði S 477 1603

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.