Eining - 01.11.1942, Blaðsíða 6

Eining - 01.11.1942, Blaðsíða 6
6 E I N I N G störfum sínum: „Þú ættir nú ekki að fara út í kvöld, heldur hvíla þig“. Ef til vill er þetta oft skynsamlegt, en reyndin mun oftast verða sú, að hann fer út, og hvert fer hann? Hafið þið nokkurn tíma sagt við hann: „Ætlar þú ekki að fara á æfingu í kvöld, þegar þú ert búinn að borða og jafna þig. Þú hefðir gott af að fá þér hreyfingu og bað eftir dagsverkið". Ég efast um að þetta fyrirfinnist. En því ekki að reyna þetta, kynnast félag- inu, sem hann aðhyllist, félögunum, sem hann umgengst og fylgjast með þeim raunum, sem hann tekur þátt í. Og svo en eitt ótalið, sem ég veit, að er ykkur mikils virði. Þið vitið þá, hvar hann er: Þegar almenningur hefur fengið full- an skilning á ágæti íþrótta, sem meðali til þess að beina unga fólkinu frá allri óreglu og um leið þjálfa líkama sinn, þá verður krafan um t aðbúnað til íþróttaiðkana fyrir æskulýðinn svo sterk, að slíkt verður talið jafnnauð- synlegt og skólar. Það er því áskorun mín til foreldra og aðstandenda æsku- manna, að hugleiða þetta mál og koma með í starfsemi íþróttahreyfingarinnar á þennan óbeina hátt. Frá mínu sjónar- miði er það jafn sjálfsagt og eðlilegt og áskoranir þeirra til barna sinna, að neyta ekki áfengis eða tóbaks. Hjálpið íþrótamönnum til þess að koma hér upp alhliða íþróttamenningu, þar sem með fræðslu og skynsamelgum aðferð- um er unnið gegn því eftir föngum, að menn þurfi að leita heimsendanna á milli að einhverju heilsulyfi eða bjarg- ráði við bilaðri heilsu. Hjálpið til að varðveita það, sem allir þrá og enginn vill missa: Heilsu, hreysti og mannvit. Frímann Helgason. lMtihill í raun. Aldurhniginn skipstjóri lýsir Nelson, hinum fræga herforingja Englendinga, á þessa leið: „Ekki mikið að sjá. Lítill snáði, sem skrölti léttur og horaður, eins og laufblað, í fötum sínum. Ekkert að sjá, blessuð verið þið, ljúfur eins og barn. Eineygður og einhendur, hálfur maður og sjóveikur eins og þriggja mánaða hvolpur, þegar illt er í sjó. Er ekki þyngri en skipsdrengur. En — í athöfnum, er leggja skal til orustu, þá er hann eins og logandi eldur — flam- ing fire“. Heilbrigöur ugi. „Stafur heimilisagans og skólaagans er eins og stafur Arons. Kasti menn honum frá sér, þá verður hann að högg- ormi; en sé hann tekinn og lagður inn í helgidóminn frammi fyrir augliti guðs, þá ber hann blóm og ávexti". Dr. Bath. IIVERNIG MÆLIST I»<J? Framkoma manna, hegðun og nautnaval, er ágætur mælikvarði á menningarþroska þeirra og siðfágun. Mestu nautnir hins sannmenntaða og þroskaða manns, er: samlíf við fagrar listir, skapandi bókmenntir, gáfaða og upplýsta menn og náttúru- fegurð. Að sitja og rabba við gáfaða og fróða menn, er þeim sönn nautn. Beztu nautnir hins vanþroskaða og skepnulega manns, er: matur, nautnalyf, svo sem áfengi, tóbak og önnur slík æsandi meðul, og fullnæg- ing kynhvatanna. Hvað segir þessi mælikvarði um stærð þína? Hvers konar nautnir velur þú? Stríðshostnaöur. Á árunum 1776 til 1910 eyddu Banda- ríkin $4.000.000.000 til hernaðar. Það voru 6 stríð á 134 árum. I heimsstyrj- öldinni fyrri eyddu þau $23.000.000.000 í 19 mánaða styrjöld. Hvað nú verður er enn ekki séð. Á 120 árum — 1790—1910 — eyddu allar hernaðarþjóðir heimsins $22.000.- 000.000 í 14 mikil stríð. í síðustu heims- styrjöld, er stóð rúm fjögur ár, eyddu þær $186.000.000.000. Hvað nú verður er enn ekki séð. Þá liðu 13.500.000 manna hungurs- neyð í Kína. Þá fórust 12 miljónir manna um heim allan í innflúensunni. Hún var fimm sinnum mannskæðari en styrjöldin. Álitið er að í öllum heimin- um hafi farist 6 milljónir manna í styrjöldum á árunum 1790—1910, en 10 milljónir á rúmum 4 árum í síðustu heimsstyrjöld. Hvað verður nú? Ðrengshapur. „Amerískur Rhodes-stúdent í Oxford var spurður um það, hvað honum þætti merkilegast í háskólalífi Englendinga. Hann svaraði: „Það þykir mér merki- legast, að hér eru þrjú þúsund ungir menn, er hver og einn kysi heldur að tapa leik en að leika hann ódrengilega". „íslendingar", bl. 26. 3Mcnntun. „Menntun er ekki það, að troða sem allra flestum staðreyndum viðvíkjandi sem allra flestum atriðum inn í sem flest höfuð á sem allra styztum tíma. Hún er samræmisfagur vöxtur manns- ins alla vega — líkamlega, vitsmuna- lega og andlega“. O. Wallace, skólastjóri við Sherborne skóla. Tilkynning frá ríhisstjórninni Gallaðar sprengjukúlur eða sprengj- ur falla stundum nálægt æfingastöðv- um, án þess að springa. — En þó að þær hafi ekki sprungið, geta þær samt verið mjög hættulegar, ef þær eru snert- ar. Sérhver sprengja eða sprengikúla er því hættuleg lífi og limum manna. Söfnun slíkra sprengja sem minja- gripa, er því hættulegur leikur, sem get- ur kostað annað hvort mikil meiðsli eða lífið. Reynið ekki að flytja slíkar ósprungn- ar sprengjur eða sprengikúlur til hern- aðaryfirvalda til athugunar, heldur merkið staðinn með smá vörðum og til- kynnið til næstu herbúða, en hermenn þaðan munu gera nauðsynlegar ráð- stafanir. Það er lífsnauðsyn að hver einasti maður á heimilinu kynni sér og fari nákvæmlega eftir eftirfarandi reglum: 1. Snertið ekki neinn þann hlut, sem líkist sprengju, sprengikúlu eða stórri byssukúlu. 2. Tefjið ekki lengur í námunda við þessa hluti en nauðsyn krefur. 3. - Leyfið engum að safna slíkum hlutum, sérstaklega ekki börnum. 4. Merkið staðinn með smá vörðum og tilkynnið til næstu herbúða. Lesið þetta og útskýrið það fyrir þeim sem ekki hafa lesið það eða þurfa nán- ari skýringa á því. Dómsmálará&uneytið, 21. október 19U2. Lfósmyndasfofa mín er flulí á Laugaveg 12, í fullkomnari og stærri húsakynni en áður. SigurðMir Guðinundsson ljósmyndari. ttúllu- og hleragerðin. FLOSI SIGURÐSSON. Klapparstíg 8. Símar 3820 og 3363. Smíðum trawllilera fyrir mútorbáta. Allar stærðir. Vindla- og cigarettu- KVEIKJARAH nýkomnir. BRISTOL, Bankastræti. ísafoldarprentsmiðja h.f.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.