Eining - 01.09.1946, Blaðsíða 1
STÓRSTÚKUÞINGIÐ
i
\
l
Fulltrúar stórstúkuþingsins staddir á Þingvöllum.
Ljósm.: Sig. Guðmundsson.
Fertugasta og sjötta þing Stórstúku
íslands var háð í Reykjavík dagana 5.
—9. júlí s.l. Þingið hófst með guðs-
þjónustu í dómkirkjunni, Séra Jakob
Jónsson messaði og flutti kraftmikla
og ágæta ræðu. Þingsetningin fór svo
fram strax á eftir og var það mjög
hátíðleg stund. Stórtemplar, séra Krist-
inn Stefánsson, setti þingið, minntist
látinna félaga Stórstúkunnar og bauð
fulltrúa velkomna til þingsetu. Alls
voru mættir 93 fulltrúar, 22 tóku stór-
stúkustigið, en 13 hástúkustigið.
Skýrsla stórtemplars eraðþessusinni
24 blaðsíður í þingtíðindunum og gerir
grein fyrir fjárhag Stórstúkunnar, út-
breiðslustarfi í ýmsum liðum, happ-
drætti templara, útgáfustarfsemi, Upp-
lýsingastöð Reglunnar, húsmáli, marg-
víslegu menningarstarfi, og ástandi og
framtíðarhorfum í bindindisstarfi og
áfengismálum þjóðarinnar. Skýrslan
ber vott um vaxandi starf Reglunnar,
og að það verður margþættara menn-
ingarstarf með hverju árinu sem líður.
Verður ekki annað sagt, en að fram-
kvæmdanefndin hafi verið vakandi á
verðinum, og á hún, og þá ekki sízt
stórtemplar, þakkir skilið fyrir mikið
starf. Góðs viti er það, hve fjárhagur
Reglunnar hefur batnað. Styrkurinn
frá ríkinu er nú að þessu sinni rúm-
lega 100000 kr. hærri en undanfarið
ár.
Mikill áhugi og góður samhugur ríkti
á þinginu, þegar rædd voru áfengis-
málin og lagðist þingið í heild mjög
fast á þá sveif, eins og helztu tillögur
þess bera vott, að stefna bæri að rót-
tækum aðgerðum.
Séra Kristinn Stefánsson var endur-
kjörinn stórtemplar í sjötta sinn.
I tilefni nýafstaðins 60 ára afmælis
Stórstúku Islánds bauð bæjarstjórn
Reykjavíkur fulltrúum stórstúkuþings-
ins í skemmtiför til þingvalla og veitti
þar myndarlega framreiddan miðdegis-
verð. Var svo virkjunin við Ljósafoss
skoðuð á heimleið og þótti fulltrúun-
um förin í heild hin bezta.
Þá bauð Stórstúka íslands fulltrúun-
um í skemmtiför að Jaðri, landnámi
Reykjavíkur templara, og veitti þar
kaffi í hinum reisulegu húsakynnum,
sem komið hefur verið upp á staðnum
fyrir sérstakan dugnað, aðallega yngri
kynslóðarinnar í templarasveit Reykja-
víkur. Þótti fulltrúunum gott og gaman
þar um að litast.
Þingstúka Reykjavíkur stóð fyrir
myndarlegu skilnaðarsamsæti. Þinginu
höfðu borizt mörg heillaskeyti, einnig
mjög uppörvandi kveðjur og samþykkt-
ir frá prestastefnu íslands og hinu
glæsilega landsmóti ungmennafélag-
anna að Laugum. Á báðum þessum
merkilegu mannfundum voru tillögurn-
ar um róttækar aðgei'ðir í áfengismál-
um þjóðarinnar, mjög einróma og í