Eining - 01.11.1948, Qupperneq 2

Eining - 01.11.1948, Qupperneq 2
2 E I N I N G Söngkorcan * Guðrún A. Símonar Það leyndi sér ekki, áð mannþröngin, sem beið þess að geta ruðst inn í Gamla Bíó föstudaginn 8. október s.l., átti von á einhverju mjög eftirsóknarverðu. Húsið fylltist á svipstundu og út fóru tilheyrendur söngkonunnar ekki von- sviknir. Ungfrú Guðrún Á. Símonar söng lög eftir bæði innlenda og erlenda höfunda, hina nafnfrægu, við mikla hrifningu tilheyrenda. Ungfrúin var kölluð fram hvað eftir annað, hún varð að syngja aukalög og blómunum rigndi yfir hana allan tímann. Hinir dómbæru og sérmenntuðu menn hafa lokið miklu lofsorði á söng ungfrúarinnar. Sigurð- ur Skagfield segir: ,,Rödd ungfrú Símonar er fögur og mikil sópranórödd, sem hefur fengið góða þjálfun, . . . það var ánægjulegt að hlusta á þessa ungu söngkonu, sem virt- ist hafa ótæmandi raddmagn. Hvílíkur fengur fyr'ir eitthvert óperuhús að þjálfa þenna íslenzka úrkraft... Á söngskránni voru hinar heimsfrægu óperuaríur úr ,,Mefistofele“, Cavaller- ina Rusticana og Aida. Það væri synd að segja, að ungfrúin hefði ekki skilað þessum stóru óperum vel — frá radd- legu sjónarmiði — því að hún bókstaf- lega þeytti þeim út með krafti hinnar söngglöðu söngkonu, sem elskar að láta takt og tempi fljúga út í veður og vind og syngja eins og guðs innblásin mad- onna“. Dagblaðið Vísir segir: „Söngskemmt- un ungfr. Guðrúnar Á. Símonar var glæsileg í alla staði. Reykvíkingar bundu fyrir löngu miklar vonir við sönghæfi- leika hennar og hún hefur uppfyllt þær . . . Söngur ungfrúarinnar var ör- uggur, hreinn og stórbrotinn, svo að langt þarf til að jafna“. Að þessu sinni hefur ungfrúin haldið þrjár söngskemmtanir við mikla aðsókn og aðdáun og hrifningu tilheyrenda sinna, en söngferill hennar er þessi: Aðeins 17 ára kom hún fram í fyrsta sinn. Söng þá í útvarpið og vakti þegar mikla eftirtekt. Það var 9. nóvember 1941. Næstu tvö árin söng hún nokkr- um sinnum í útvarpið og náði miklum vinsældum, en sérstaklega hlaut hún að- dáun og lofsorð blaða og útvarpshlust- enda, er hún söng í útvarpið sígild lög með aðstoð útvarpshljómsveitarinnar 17. apríl 1944. Til fyrstu sjálfstæðu söngskemmtana sinna efnir hún svo 20. marz 1945, þá 21 árs, og söng þá fimm sinnum fyrir fullu húsi í Gamla Bíó og við mikla hrifningu tilheyrenda. Að- stoðarmenn hennar voru þá Fritz Weisshappel, Þórarinn Guðmundsson og Þórhallur Árnason. Næst söng Guðrún Á. Símonar fimm sinnum sem einsöngv- ari með Karlakór Reykjavíkur á hljóm- leikum hans í Fríkirkjunni í tilefni fimmtugsafmælis söngstjórans, Sigurð- ar Þórðarsonar. Þá hafði ungfrúin einnig tvær söng- skemmtanir á Isafirði og tvær á Akur- eyri, og svo kveðjuhljómleika í Reykja- vík í október 1945, áður en hún fór utan, alltaf og alls staðar við mikla hrifningu og hafði vegur hennar stöð- ugt farið vaxandi. Fyrsti söngkennari ungfrúarinnar var Sigurður Birkis söngmálastjóri, en 1945 fer hún utan og hefur síðan átt glæsilegan námsferil í Englandi við Guildhall skólann og lagt þar einnig stund á tungumál, ensku, frönsku og þýzku. Hún hefur lokið prófi við skól- ann og fengið prýðilegan vitnisburð. Einn kennari hennar var hinn frægi ítalski söngkennari, Lorenzo Medea. Efndi hann til einkasöngprófs með henni í London, áður en hún hvarf heim- leiðis, og bauð þangað ýmsum þekktum hlljómlistargagnrýnendum, sem dáðust að íslenzku söngkonunni. Þessi frægi kennari hefur boðið ungfrú Guðrúnu að koma henni á framfæri við söngleika- hús í Bretlandi og fara með henni til Italíu næsta vor, ef tök verða á slíku, en slíkt hefur hann boðið aðeins einni söngkonu áður. The Guildhall School of Music a/nd Drama er mjög fræg stofnun. Þar hef- ur ungfrú Guðrún Á. Símonar unnið sér til ágætis. Söng- og námsferill henn- ar er glæsilegur og héðan getur hún lagt leið sína sigrihrósandi til framandi landa til frekari sigurvinninga og frægðar. Ungfrú Guðrún er ástundunarsöm, reglusöm í bezta lagi, hún er góðtempl- ari, snertir ekki einu sinni hina skað- vænlegu sígarettu. Heillaóskir okkar bindindismanna fylgja henni, ekki síð- ur en annarra velunnara hennar. Sextugur: Friðrik Hjartar skólastjóri Mér hefur alltaf þótt gott að verða á vegi Friðriks Hjartar. Slíkir menn eru samferðamanninum jafnan nokkur léttir. Hann tekur fast í hendi manns, heilsar og kveður innilega, og það leynir sér ekki, að hann er fullur góðvilja, gengur heill og hæfileikum búinn að verki, er glaður og reifur. Friðrik Hjartar er fæddur í Arn- kötludal í Steingrímsfirði, sonur Hjart- ar Bjarnasonar af Reykjalínsætt og ) konu hans Steinunnar Guðlaugsdóttur, en ólst upp að mestu leyti hjá Friðriki Bjarnasyni hreppstjóra að Mýrum í Dýrafirði. Hann telur sig því Vestfirð- ing og getur haft það til að telja upp slíkt mannval á Vestfjörðum, frá fyrstu tíð, að tilheyranda finnst sem ekkert stórmenni sé eftir handa hinum lands- hlutanum. 4 Mýrar í Dýrafirði var fjölmennt menningarsetur og fagurt er í Dýra- firði, svo að Friðrik Hjartar getur hafa haft ýmislegt gott með sér þaðan. Menntun hlaut hann í Flensborgarskóla og hinum nýstofnaða kennaraskóla landsins, varð skólastjóri á Suðureyri 4

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.