Eining - 01.11.1948, Blaðsíða 12

Eining - 01.11.1948, Blaðsíða 12
12 E I N I N G Nýjasti shólinn Samkvæmt íslendingasögunum hafa fornmenn verið sparir á orð, en sagt oft mikið í stuttum setningum. Við bruðlum með orð eins og annað. Eftirfarandi setningar úr nútíma máli, mundu ekki vekja neina sérstaka athygli: „Og það kemur ekki sjaldan fyrir, að nálega ómögulegt er að svara sumum spurningum barnanna“. Þetta eru 15 orð. Hve mikið má fækka þeim, en segja þó hið sama. Til dæmis: Oft er næstum ógerlegt að svara spurning- um barnanna. Þetta eru 8 orð. Þá er búið að stytta setningarnar nær því um helming og má ef til vill stytta þær meira. Slíkt getur verið holl æfing. Langt er síðan mönnum þótti einhvers konar spegill ómissandi hlutur, til þess að geta skoðað þar ásjónu sína og sannfærst um, hvort hún væri hrein, blettlaus og álit- leg. I hvaða spegli skoða menn sálarlíf sitt, breytni og skap- gerð? Hver er mælikvarðinn ? Af öllu þýðingarmiklu, sem menn læra, er þýðingarmest að læra að segja satt, breyta vel, vinna af trúmennsku, stancla í skilum, efna heit sín og vera ráövandur og grandvar í smáu og stóru. Aðeins menn vel lærðir í þessum greinum og fullpróf- aðir, geta skapað heilbrigt þjóðfélag og friðsamt mann- félag. Þessar dyggðir eru miklu vandræktaðri heldur en allt fi'æðslunám. Skólinn er ævilangur og kennarar okkar heið- ursmenn allra alda og hið ódauðlega vizkuorð, sem er mæli- kvarði alls réttlætis og mannkosta. Erum við hreinir, skoðaðir í þeim spegli? Áfengisbannið í Bandaríkjunum 1 Bandaríkjunum eru þrjú bannríki. Þau eru, Kansas, Mississippi og Olcla- homa. í Kansas eru 1,800,000 íbúar. Þar eru allir áfengir drykkir bannaðir, sem eru sterkari en 3,2% þyngdarmál. Ö1 má aðeins selja samkvæmt veitingaleyfi frá bæja- eða sveitastjórnum. 1 Mississ- ippi eru 2,200,000 íbúar og þar eru bannaðir áfengir drykkir sterkari en 4 þungaprósent, en hvert hérað í ríkinu ákveður með atkvæðagreiðslu, hvort leyft skuli að selja þessar veikari teg- undir. í Oklahomaríkinu eru 2,200,000 íbúa. Þar er einnig algert bann á áfeng- um drykkjum sterkari en 3,2 þunga- prósent, og til þess að selja slíkt öl verður að hafa leyfi hlutaðeigandi vald- hafa. f 17 ríkjum er ríkiseinkasala. Var hún tekin upp helzt í þeim ríkjum, þar sem lítill meiri hluti var með afnámi allsherjarbannlaganna. Samveldinu ber skylda til, að sjá um að lögum sé fram- fylgt í þeim ríkjum, sem hafa bann, þótt ekki sé bann í öllum ríkjunum. f Ohio er meira en helmingur ríkisins bannsvæði, og í Kentucky er 75% af ríkinu bannsvæði. Eftir atkvæðagreiðslu þar 1944 var 160 vínknæpum lokað. Nokkuð svipað mætti segja um fleiri ríki í Bandaríkjunum. Samkvæmt þessum upplýsingum, ætti að vera óþarft fyrir ferðamenn frá stór- þjóðum, að jagast á því, að það sé ein- hver molbúaháttur, að hafa ekki allt fljótandi í áfengum drykkjum. Réttara væri að snúa blaðinu við og benda á villimennsku þeirra þjóða, sem ótak- markað hella áfengi í menn, en vilja þó heita siðaðar og menntaðar. Hótel templara r í Astralíu Fyrir nokkru sagði Eining frá hótel- um templara í Ástralíu, en nú í sumar, sem leið, voru á ferð í Svíþjóð menn frá Ástralíu, þar á meðal æðstimaður Reglunnar þar. Sænska blaðið Refoima- torn birtir samtal við þá um starfrækslu þessara hótela. Það eru 19 ár síðan fyrsta hótelið var reist og síðan hefur þessi starf- ræksla bindindismanna í Ástralíu verið sigurför. Þeir eiga stærsta hótelið í Brisbane og það framleiðir 1400 mál- tíðir daglega, auk allra veizluhalda. Það er stærst af fimm hótelum, sem Reglan á í Ástralíu og er eitt af 6 stærstu hótel- um heimsins. Til þess að sanna, að slík starfræksla gæti einnig borið sig á minni stöðum, reistu þeir hótel í Toowoomba, 30 þúsund manna bæ, og það hefur gefizt ágætlega. Og nú ætla þeir að koma upp fjórum slíkum hótel- um til viðbótar. Þeir segja, að bezt gef- ist að reisa algerlega ný hótel, er svari kröfu tímans að öllu leyti. Ráðgert er, að þessar byggingarframkvæmdir muni kosta 8—9 milljónir sænskra króna. Með þessar framkvæmdir fyrir augum, höfðu þessir ferðamenn heimsótt Sviss, Belgíu, Holland, ftalíu, Frakkland, Danmörk og England, og frá Svíþjóð ætluðu þeir til Finnlands, allt til að kynna sér ný- tízku hótel. Þeim hefur þótt merkilegt að kynnast alþjóðlegri starfsemi templ- ara í ýmsum löndum og segja, að Regl- an eflist stöðugt í Ástralíu, sérstaklega sé nú framgangur mikill meðal æsku- lýðsins á sumum stöðum. Þetta mikla hótelahald bindindis- manna mætti verða öðrum til fyrir- myndar og sannar að minnsta kosti, að slíkar stofnanir þurfa ekki að lifa á áfengissölu, og að þær eru ekki lítils- virtar, þótt þær veiti enga áfenga drykki, heldur þvert á móti, eru í miklu áliti. Slíkar grillur, að áfengisveitingar séu nauðsynlegar í sambandi við starf- rækslu veitingahúsa og hótela, þyrftu að þurrkast út úr höfðum manna og allra áróðursseggja áfengistízkunnar. Hótelgróði bindindismanna í Ástralíu hefur staðið undir öllum kostnaði við útbreiðslustarf þeirra í landinu. Þannig er vel á haldið. . Samdrykkja. Gangið 10 fet frá myndinni og sjáið, hvernig hún lýtur út.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.