Austurland - 18.04.1985, Qupperneq 1
Austurland
Bílasaia - Bil&ikipti
Vantar bíla á sölutkrá
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 18. apríl 1985.
16. tölublað.
SSA fagnar tillögu
um könnun útboða
Á fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi, sem haldinn var á Egils-
stöðum 26. mars sl. var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt vegna þingsályktunartillögu, sem lögð var
nýlega fram í Sameinuðu þingi „um könnun á
hagvkæmni útboða og nánari reglur um fram-
kvæmd þeirra.“ Flm.: Helgi Seljan, Jón Kristjáns-
son, Skúli Alexandersson, Karvel Pálmason og
Steingrímur J. Sigfússon.
„Fundurinn fagnar framkominni þingsálykt-
unartillögu um þessi mál og skorar á Alþingi
að samþykkja hana fyrir þinglok í vor.“
AUSTURLAND greindi frá þingsályktunartil-
lögu þeirra félaga fyrir hálfum mánuði.
Ferðamálafélag
Ferðamálanefnd Neskaup-
staðar hyggst gangast fyrir
stofnun Ferðamálafélags Nes-
kaupstaðar og nágrennis. Til-
gangur félagsins er að efla ferða-
þjónustu á félagssvæðinu, en
segja má að þar sé um óplægðan
akur að ræða.
Víða á landinu hafa slík félög
verið stofnuð að undanförnu og
eru það samtök einstaklinga,
félaga og stofnana á viðkomandi
svæði, sem að þeim standa.
Nú kynni einhver að spyrja
hverjir eru „hagsmunaaðilar" í
ferðaþjónustu? Pví er fljótsvar-
að: Allir þeir sem vilj a efla þessa
þjónustu og gerast félagar og
vinna þar að framgangi málsins.
Möguleikarnir á þessu sviði
eru nánast ótæmandi hér á
svæðinu og verður það ekki
viðrað hér.
Að öllum líkindum verður
boðað til fundarins í lok þessa
mánaðar.
Að lokum má geta þess að á
vegum ferðamálanefndar er nú
unnið að gerð veggspjalds til
kynningar á Neskaupstað svo og
sameiginlegum kynningarbækl-
ingi um Neskaupstað og Mjóa-
fjarðarhrepp.
Væntanlega verða margir til
þess að standa að þessum sam-
tökum svo þau megi verða
stöðunum sem að þessu standa
til sem mests framdráttar.
E. G.
í Haganum er ýmislegt að sjá, jafnvel bergið tekur sífelldum breyt-
ingum við samspil Ijóss og skugga. Ljósm. Sig. Arnfinnsson.
1 '
I JOz MwL J s Ba <Wj3l rwk 1 7\m\' /•
* * * ^
Sovéskir dagar
í lok aprílmánaðar er væntan-
leg hingað til lands ein kunnasta
þjóðlagasöngkona Sovétríkj-
anna, Ljúdmíla Zykina, ásamt
hljómsveitinni „Rossía" til þátt-
töku í Sovéskum dögum MÍR
1985.
Ljúdmíla Zykina hefur um
langt árabil verið í hópi vinsæl-
ustu listamanna í Sovétríkjun-
um og einkum fræg fyrir túlkun
sína á rússneskum þjóðlögum
og rómönsum, sem og söng-
lögum eftir sovésk tónskáld.
Hefur hún hlotið margvíslega
viðurkenningu, ber m. a. heið-
urstitilinn þjóðlistamaður Sov-
étríkjanna og hún hefur verið
sæmd Leninverðlaununum,
æðstu viðurkenningu sem sov-
éskur listamaður getur hlotið.
Ljúdmíla Zykina stofnaði
hljómsveit sína „Rossía“ fyrir
allmörgum árum, en stjórnandi
hennar er Viktor Gridin, tón-
skáld og harmonikkusnillingur.
Aðrir í hljómsveitinni eru at-
vinnuhljóðfæraleikarar og leika
á ýmis þjóðleg hljóðfæri rúss-
nesk svo sem balalaika o. fl.
Listafólkið kemur til íslands
29. apríl og heldur sína fyrstu
tónleika hér á landi sama kvöld
í Þjóðleikhúsinu. Síðan liggur
leiðin til Norður- og Austur-
landsins. Tónleikar verða í Eg-
ilsbúð, Neskaupstað, 30. apríl,
í Valaskjálf á Egilsstöðum 1.
maí, í Sjallanum á Akureyri 2.
maí, að Laugum og í félags-
heimilinu á Húsavík 3. maí.
Ljúdmíla Zykina og hljóm-
sveitin Rossía munu einnig
koma fram víðar, m. a. í Gamla
bíói sunnudagin 5. maí, þar sem
sérstaklega verður minnst 40 ára
Ljúdmíla Zykina.
afmælis sigursins yfir herjum
nasista í Evrópu. Einnig verður
listafólkið við opnun sýningar á
svartlist frá Rússlandi og hand-
unnum rússneskum lakkmunum
í húsakynnum MÍR að Vatns-
stíg 10 laugardaginn 4. maí. í
sambandi við þá sýningu kemur
til Reykjavíkur kunnur rúss-
neskur myndlistarmaður, Nik-
olaj Voronkov.
Sovéskir dagar MÍR eru nú
haldnir í tí unda sinn, en þeir eru
hverju sinni helgaðir sérstak-
lega einu hinna 15 lýðvelda Sov-
étrfkjanna, að þessu sinni
RSFSR, Rússneska sambands-
lýðveldinu. Aðstoðarmenning-
armálaráðherra lýðveldisins,
Vladimir Kotsetkov, kemur til
íslands í tilefni Sovésku dag-
anna.
Fréttatilkynning frá MÍR.
Félagsvist AB
er í kvöld í Egilsbúð
og hefst kl. 204B
Alþýðubandalagið
Neskaupstaður:
Fellið bjórfrumvarpið!
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Nes-
kaupstaðar var eftirfarandi tillaga
samþykkt:
„Bæjarstjórn Neskaupstaðar skorar
á þingmenn Austurlandskjördæmis að
vinna að því að bjórfrumvarp það er nú
liggur fyrir Alþingi verði fellt.
Pá mótmælir bæjarstjórn Neskaup-
staðar rekstri bjórstofa með sölu á svo-
kölluðu bjórlíki, þar sem í lögum virð-
ast ekki leyfi fyrir slíkum rekstri.“