Austurland - 03.10.1985, Page 4
FLUGLEIÐIR S Gott fólk hjá traustu félagi Ný bílaleiga HITTUMST í
Austurland Neskaupstad, 3. október 1985. HELGARPAKKAR Bílaleiga Benna SPARISJÓÐNUM
VIKUPAKKAR © 7119 S 7476 & 7420 Sparisjóður Norðfjarðar
Vinnuvernd og astand
Um sl. helgi var haldin á Iöa-
völlum ráðstefna um vinnuvernd
og ástand vinnustaða á Austur-
landi. Alþýðusamband Austur-
lands hélt þessa ráðstefnu í sam-
vinnu við Menningar- og fræðslu-
samband alþýðu. Ráðstefnan var
vel sótt og tókst vel að dómi
þeirra, er hana sóttu.
Sigfinnur Karlsson, forseti
ASA setti ráðstefnnau, en ráð-
stefnustjóri var Tryggvi Þór
Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri MFA. Erindi á ráðstefn-
unni fluttu Asmundur Hilm-
arsson, starfsmaður Sambands
byggingamanna, Snorri Kon-
ráðsson, starfsmaður MFA,
Egilsstaðir:
Píanótónleikar
Öm Magnússon heldur píanó-
tónleika í Valaskjálf miðvikudags-
kvöldið 9. okt. nk. kl. 2100.
Á efnisskránni eru m. a. verk
eftir Schubert, Beethoven,
Debússy o. fl.
Örn er fæddur í Ólafsfirði
1959, og hóf þar tónlistarnám 8
ára gamall. 1979 lauk hann burt-
fararprófi í píanóleik frá Tón-
listarskólanum á Akureyri. Síð-
astliðin 5 ár hefur hann dvalið í
Bretlandi og Þýskalandi við
framhaldsnám.
Örn hélt sína fyrstu opinberu
tónleika í Borgarbíói á Akur-
eyri 19. des. 1981.
Að loknu tónleikahaldi á Ak-
ureyri. Egilsstöðum og upptöku
fyrir ríkisútvarpið heldur Örn til
Lundúna til vetursetu og frek-
ara náms.
Frá sundráði UÍA
Skólamót UÍA í sundi fer
fram í Sundlaug Búðahrepps
sunnudaginn 6. október 1985.
Þetta er í annað sinn sem skóla-
mót UÍA er haldið, en það fór
fram í Sundlaug Seyðisfjarðar í
fyrsta skipti í október í fyrra og
tókst vel.
Líkur eru á að 7 - 8 skólar
taki þátt í keppninni í ár og
verður keppt í 25 og 50 m sprett-
um í bringu-, skrið- og bak-
sundi. Hver skóli á Austurlandi
má senda einn keppanda af
bvoru kyni í hverja grein úr
fjórða til níunda bekk. Enn-
fremur verður keppt í 6 x 25 m
boðsundi og skal vera einn
keppandi úr hverjum þessara
bekkja.
Keppnin er stigakeppni um
farandbikar sem UÍA hefur
gefið. Sigurvegari í fyrsta skóla-
móti UÍA í sundi var Grunn-
skólinn í Neskaupstað.
Fréttatilkynning.
Hernaðarumsvifum
mótmælt
Kjördæmisráð Alþýðu-
bandalagsins á Austurlandi
bendir á, að nú er verið að
reyra ísland fastar en nokkru
sinni í hernaðarnet Banda-
ríkjanna.
Hernaðarframkvæmdir
hafa verið meiri hérlendis í
tíð ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar en áður í
sögu íslenska lýðveldisins. Til
viðbótar stórfelldri uppbygg-
ingu hernaðarmannvirkja á
Reykjanesi koma nú hernað-
arratsjárstöðvar á Vestfjörð-
um og Norðausturlandi með
sjálfvirkum boðleiðum til
höfuðstöðva Bandaríkjahers
vestanhafs. Sérstaklega
harmar fundurinn að nú skuli
ákveðið að reisa aðra hernað-
arratsjárstöð hér eystra á
Gunnólfsvíkurfjalli til viðbót-
ar herstöðinni á Stokksnesi.
Framsóknarflokkurinn ber
ekki síður ábyrgð á þessari
þróun en Sjálfstæðisflokkur-
inn, þareð utanríkisráðherrar
Framsóknarflokksins stóðu í
samningamakki við Banda-
ríkjastjórn um aukin hernað-
arumsvif í tíð fyrri ríkis-
stjórna.
Alþýðubandaiagið mót-
mælir þessari háskalegu
stefnu og öllum undirlægju-
hætti íslenskra ráðamanna við
erlent vald.
vinnustaða
Eyjólfur Sæmundsson, for-
stjóri Vinnueftirlits ríkisins,
sem ræddi um stonfunina og
Skúli Magnússon, vinnueftir-
litsmaður á Austuriandi og
Hörður Bergmann fræðslufull-
trúi Vinnueftirlitsins, sem
ræddu um framkvæmd vinnu-
eftirlits og upplýsingastarf. Er-
indi þeirra Ásmundar og
Snorra báru heitin: Maðurinn
og starfsumhverfið, Heilbrigð-
is- og öryggiseftirlit innan
fyrirtækja og Niðurstöður
kannana um ástand vinnu-
staða. Starfshópar ræddu svo
efnið „leiðir til úrbóta."
Loðnan:
Nálgast 60 þús. tonn á Austfjörðum
Blaðið mun gera þessari ráð-
stefnu nánari skil á næstu vikum
með því að birta viðtöl við for-
svarsmenn ráðstefnunnar og
þátttakendur. B. S.
Blaðið aflaði sér upplýsinga
um, hversu mikil loðna hefði
nú borist til Austfjarðahafna og
fara þær tölur hér á eftir og get-
um við kallað það grófar tölur:
Krafíst mannsæmandi launa
Fundur Kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins í Austur-
landskjördæmi haldinn á Reyð-
arfirði dagana 28. og 29. sept-
ember 1985 bendir á þær hrika-
legu afleiðingar óheftrar auð-
hyggjustefnu ríkisstjórnarinnar
að nú eru almenn launakjör í
landinu Vs rýrari en þau voru er
hún tók við völdum. Ríkis-
stjórnin hefurbreytt tekjuskipt-
ingunni launafólki í óhag og fært
þann ránsfeng til gróðastétt-
anna, sem stunda ómælt verð-
bólgu- og verðbréfabrask með
hörmulegum afleiðingum, eink-
um fyrir húsbyggjendur. Frelsi
fjármagnsins og okurvextir eru
að sliga alla alþýðu manna og
undirstöðuatvinnuvegina í land-
inu. Meðal annars eru afleiðingar
þessarar óheillastefnu ríkis-
stjórnarinnar þær að fólksflótti er
nú af landsbyggðinni til þéttbýlis-
ins á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og framleiðsluatvinnugreinarnar
li'ða fyrir vinnuaflsskort.
Alþýðubandalagið hefur
margsinnis lagt fram tillögur til
að snúa þessari þróun við, með-
al annars þær að launakjör og
vinnuaðstaða verði stórbætt
þannig að fólk laðist að þessum
atvinnugreinum.
Höfuðkrafa Alþýðubanda-
lagsins er sú að horfið verði frá
andbyggðastefnu ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar og
að stöðvuð verði eignaupptaka
í sjávarútvegi í formi okurvaxta
og óraunhæfrar verðtryggingar.
Framleiðslugreinunum verði
gert kleift að greiða mannsæm-
andi laun en það er forsenda
þess að fólksflótta af lands-
byggðinni linni.
Færa þarf félagslega aðstöðu
landsbyggðarfólks til jafns við
það sem gerist á suðvesturhorni
landsins. Sérstaklega er bent á
menntunarmál, heilbrigðismál
og menningarmál og aðra fé-
lagslega þætti. Einnig þarf að
jafna húshitunarkostnað, sím-
kostnað og almennt vöruverð.
Vinnustéttirnar þurfa að nota
sér það tækifæri sem gefst í
sveitarstjórnarkosningum á
næsta ári og í komandi alþing-
iskosningum til að knýja fram
breytta stefnu og leiða sem víð-
ast félagshyggjuöfl til áhrifa.
AB Héraðsmanna:
Magnús Magnússon formaður
Alþýðubandalag Héraðs-
manna hélt aðalfund sinn 25.
sept. sl. Var það góður fundur
og mikill hugur í mönnum.
Voru þar rædd ýmis félagsmál
og m. a. útgáfumál Gálgáss.
Magnús Magnússon var
endurkjörinn formaður félags-
ins, en aðrir í stjórn eru: Guð-
laug Ólafsdóttir, Friðjón Jó-
hannsson, Elna K. Jónsdóttir,
Jón Loftsson og Kristinn Árna-
son.
Eru þau Friðjón og Elna ný í
stjórninni, en úr stjórn gengu
nú Svandís Rafnsdóttir og
Dröfn Jónsdóttir. B. S.
Lestir
Eskifjörður . . . rúml. 29.000
Neskaupstaður . . um 2.200
SR, Seyðisfirði . rúml. 20.000
ísbj,, Seyðisfirði . um 6.700
Bræðsla hófst í Neskaupstað í
fyrradag. Börkur landaði þar úr
sínum fyrsta túr 29. sept. um
1.150 lestum og Beitir landaði í
fyrradag rúmum 1.000 lestum,
en hafði landað einu sinni áður
á Seyðisfirði.
Loðnuafli Austfjarðaskipa er
nú sem hér segir um það bil:
Lestir
Guðrún Þorkelsdóttir . 7.000
Jón Kjartansson . . . 3.200
Sæberg ................. 2.750
Magnús................ 3.800
Beitir................ 2.300
Börkur ................. 1.150
DAGUR dagblað
Fyrir stuttu urðu þau tímamót
í íslenskri blaðaútgáfu, að fyrsta
dagblað utan Reykjavíkur hóf
göngu sína. Er það Akureyrar-
blaðið Dagur, sem komið hefir
að undanförnu út þrisvar í viku,
sem nú er orðið að dagblaði og
mun koma út fimm daga vik-
unnar.
AUSTURLAND óskar
DEGI til hamingju á þessum
tímamótum og sendir ritstjóran-
um, Hermanni Sveinbjörnssyni
og öðru starfsliði blaðsins bestu
kveðjur vitandi það, að blöð
okkar eiga það sameiginlegt að
vilja hlut landsbyggðarinnar og
landsbyggðarblaðanna sem
mestan.
Til gamans fylgir hér staka
eftir okkar ágæta hagyrðing,
Einar H. Guðjónsson á Seyðis-
firði, er hann heyrði frétt um
það, að DAGUR væri orðinn
dagblað.
Ekki er Framsókn ennþá lin,
alltaf styttast kvöldin.
Pegar tapast tímans skyn,
tekur Dagur völdin.
B. S.