Íþróttablaðið - 01.06.1925, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
51
því búist, að metið yrði lækkað um langan aldur,
nema þessir sömu, eða aðrir tveir jafnfráir þreyttu
aftur. Því að menn töldu engar líkur til þess, að
nokkur gæti runnið 5000 st. á skemri tíma af eigin
rammleik, heldur þyrftu þá að keppa tveir jafn-
snjallir, og snjallastir allra, svo að þeir yrðu neyddir
til þess að taka á öllu því, sem þeir ættu til, alt
frá upphafi og til skeiðsenda.
Þess varð þó ekki auðið, að Kolehmainen og
Bouin þreyttu aftur. Frakkinn hlaut að láta lífið á
vígvellinum fyrir »la patrie«, en Kolehmainen fór til
Vesturheims og tók að iðka lengri hlaup.
Viðureign sú, sem hér var lýst, var mönnum í
minni þegar 5000 st. hlaupið skyldi hefjast á Ólym-
píuleikunum í Antwerpen 8 árum síðar. Nú varð
sem fyr, að tveir hlupu snemma fram úr og tóku
forystuna, Finni og Frakki. Varð þeirra fundur
ekki síður sögulegur, en hinna tveggja, en svo fóru
leikar, að Frakkinn GuiUemot hafði sigur, — Bouins
var hefnt. En metið stóð óhaggað.
Paavo Nurmi hét sá, sem annar varð í 5000 st.
hlaupinu. Þótt hann yrði að lúta í lægra haldi að
þessu sinni, sýndi hann og sannaði, að hann átti
engan sinn líka á því móti, því að hann vann sigur
í 10000 st hlaupinu, víðavangshlaupi og 3000 st.
flokkahlaupi, og var hann því ekki langt frá því
að leika það eftir Kolehmeinen að vinna 4 1. verð-
laun á þessu mikla allsherjarmóti. Kolehmeinen tók
í þetta sinn að eins þátt í Maraþonhlaupinu og
vann frægan sigur. En á Ólympíuleikunum þykir
það einna mestur frami að hljóta lárviðarsveiginn
fyrir að sigra í því hlaupi.
Eftir þetta fór frægð Nurmi víða um lönd, enda
hafði hann jafnan sigur, hvar sem hann kepti við
aðra. Vann hann það afrek haustið 1922 að setja
nýtt met í 5000 st. hlaupi, 14 mín. 35,4 sek., og
er því meir um þetta vert sem hann hljóp einn í
það sinn, þar sem keppinautur hans gafst upp, er
þeir höfðu runnið þriðjung vegarins. Sumarið eftir
setti hann heimsmet í enskri mílu (1609 st.) í
Stokkhólmi, enda hljóp þá í köpp við hann maður,
sem ekki ljet hlut sinn fyrri en í fulla hnefana,
Svíinn Wide. Nurmi hljóp míluna á 4 mín. 10,4
sek., en Wide á 4 mín. 13,1 sek. Gamla metið
átti Bandaríkjamaðurinn Taber, 4 mín. 12,6 sek.
Vorið 1924 tóku Finnar að búa sig af kappi
undir Ólypíuleikana í París. Fanst það brátt á, að
Nurmi hafði ekki farið aftur, því að um þessar
mundir lækkaði hann met sitt í 5000 st. hlaupi
niður í /4 mín. 28 sek.
En þá kom annar maður til sögunnar, Wille
Ritola. Hann hafði dvalið vestanhafs árum saman
og iðkað hlaup og verið jafnan í fremstu röð. Nú
snéri hann heim til Finnlands og tók að æfa sig
og keppa á íþróttamótum, og náði hann svo góð-
um árangri, að undrum sætti. Töldu margir hann
jafnoka Nurmi, ef ekki snjallari.
Daginn sem Ólympíuleikarnir (útiíþóttir) hófust
í París var kept til úrslita í 10000 st. hlaupi.
Gerðu foringjar finska flokkins það til varúðar, að
þeir neituðu Nurmi um að taka þátt í hlaupinu.
Þóttust þeir öruggir um sigurinn, hvor þeirra sem
kepti, Nurmi eða Ritola, en vissu, að báðir voru
kappsamir mjög og hvor þóttist öðrum meiri.
Voru menn hræddir um, að þeir mundu taka svo
nærri sér, ef þeir fengju að keppa báðir fyrsta
daginn, að þeir myndu ekki ná sér aftur áður en
hin hlaupin skyldu fara fram. Undi Nurmi þessu
banni illa, sem von var, en hlaut þó að hlýða. En
Ritola vann frægan sigur og setti nýtt heimsmet,
30 mín. 23,2 sek. Annar varð Wide sá, sem fyr
var nefndur. Hljóp hann 10 rastirnar á 30 mín.
50,8 sek., og er það nú sænskt met. En það var
mál manna, að Nurmi mundi hafa getað hlaupið
á skemri tíma en 30 mín., ef hann hefði fengið
að keppa.
í 1500 st. hlaupinu skyldi Nurmi keppa, og var
mönnum mikil forvitni á að vita, hvernig það
myndi fara, því að hann var óvanur svo stuttum
hlaupum. Nurmi vann hlaupið, án þess hann virt-
ist legga nokkuð að sér, og setti nýtt Ólympíu-
met, 3 mín. 53,6 sek.
Urslitahlaupið á 5000 st. fór fram 2 tímum eftir
úrslitasprettinn í 1500 st. hlaupinu. Væntu menn
þess, að Nurmi myndi þreyttur eftir þá raun, og
væri því eins sennilegt, að Ritola yrði fyrstur, en
hann tók ekki þátt í 1500 st. hlaupinu. Þegar í
upphafi sprettu þeir fram úr hópnum, Wide, Ritola
og Nurmi og hélst þessi röð góða stund. Þegar
vegalengdin var hálfnuð tók Wide að dragast aft-
ur úr, en Nurmi var þá orðinn fremstur. En á
síðasta hringnum náði Ritola Nurmi aftur á ný,
og nú mátti ekki í milli sjá fyr en markinu var
náð. Var það Nurmi, sem fyrstur hljóp yfir mark-