Íþróttablaðið - 01.01.1927, Qupperneq 13
IÞRÓTTABLAÐIÐ
11
fá stundskrána öðrum í hendur en dóm-
endum.
3. Keppendur í sama fylki skulu vera eins klæddir.
4. Bannað er dómendum að bera ráð sín saman
meðan kept er, um einkunnir þær, sem þeir
gefa. Jafnskjótt og leikar eru úti, afhenda
dómendur framkvæmdarnefndinni undirritaða
vitnisburði sína.
2. Samraunir
4. Hafraunir
Dómsskrá.
Gildi
Piltar Stúlkur
1. Réttstaða....................; • 1 1
Form........................4 4
Samtök......................3 3
Kraftur (hjá stúlkum: mýkt) 4 3
3. Spenna...............................2 1
Sviffrá | | Form . 3
\ Aðrar hafr. | | Kraftur. 1
5. Jafnvægisæfingar — Form .... 3 4
6. Gangur og hlaup.....................2 2
7. Vmsar gangtegundir | 3
(með leikum og söng) |
| Form .... 2 2
\ Kraftur. ... 1 1
| Form .... 3 2
\ Kraftur. ... 3 1
| Form ... 3
| Kraftur ... 2
11. Röskleiki og léttleiki...............2 2
12. Skipulag . . . . ..................1 1
13. Leikraunaval og tímanot .... 3 3
Hæsta samtala einkunna: Piltar 430, stúlk-
ur 330.
8. Stökk án áhalda
9. Stökk við áhöld
10. Fimleikar á dýnu
Skýringar á dómsskránni.
1. Kennarinn — fylkið — ræður leikraunavali;
þó er hverju fylki skylt að senda í. S. í. leik-
skrá sína í tæka tíð.
Form skal greinilega sýnt í hverri leikraun.
2. Til hafrauna teljast hverskonar leikraunir,
þegar líkamsþunginn hvílir að mestu eða öllu
leyti á upplimum.
3. Jafiwægisæfingar. Skylt skal að gera jafn-
vægisæfingar sem samraun, en á bita eftir
vild. Sé bitinn vel notaður, eykur það að
sjálfsögðu stigatölu þess fylkis.
4. Stökk við áhöld og án þeirra. Skylt er hverju
fylki að hafa hástökk á leikskrá sinni. Einnig er
krafist láréttra og lóðréttra stökka. En fjaður-
pallur (stökkbretti) er bannaður.
5. Fimleikar á dýnu. Hver keppandi skal sýna
kollstökk á láréttum fleti.
6. Einkunnir þær, sem hvert fylki hlýtur hjá hverj-
um dómanda, eru lagðar saman og tekið jafn-
aðartal af. Af því aðal-jafnaðartali reiknast
ío/o fyrir hvern mann fylkisins, sem er fram
yfir lágmarkstölu keppenda. Þegar sú tala,
sem þannig fæst, hefir verið lögð við áður-
nefnt jafnaðartal, kemur út aðaleinkunn fylkisins.
Skylt er dómendum að aðstoða við upp-
talningu einkunna. Úrskurði dómenda verður
ekki hrundið.
7. Leiktími er áætlaður: 5—10 menn: 25—35
mínútur; 10—15 mer.n: 30—45 mínútur;
15—20 menn: 40—55 mín. 21 maður o. fl.,
55—75 mín. Leiktími byrjar þegar síðasti
maður stígur á leiksviðið, og endar þegar sá
fyrsti stígur af því.
Reglugerð
um „Farandbikar Chrisiiania Turnforening".
(Nú „Osló Turnforening".)
1. gr. Bikarinn heitir »Farandbikar Christiania
Turnforening«. Hann er heiðursverðlaun fyrir fim-
leika, handa besta félaginu, sem um hann keppir.
2. gr. Um bikarinn skal keppa árlega í Reykja-
vík á tímabilinu frá 15. apríl— 1. júní eftir nánari
ákvæðum í. S. í. Skal það auglýst í janúar mán.
ár hvert. Keppendur í hverju fylki séu ekki færri
en 8. Nöfn keppendanna, kennara þeirra og fé-
laganna, sem um bikarinn keppa, skal skrá í sér-
staka bók, sem fylgir bikarnum; þar skal og færa
sundurliðaðar einkunnir fylkjanna og stigatal. Afrit
af því, sem í bókina er skráð, skal I. S. I. geyma
á eldtryggum stað. Þá fylgir bikarnum í hvert
skifti, sem kept er, fánaskjöldur handa því fylki
sem vinnur bikarinn.
3. gr. Þó að aðeins eitt félag gefi sig fram, er því