Íþróttablaðið - 01.01.1929, Blaðsíða 12
8
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
£3C3t3C3C3C3C3S3e3C3t3t3£3C3£3C3C3£3C3E3£3C3u;{3{3£3E30C3£3£3t3C3C3t3G
C3 O
| íþróttablaðið g
£3 kemur út í byrjun hvers mánaöar — alls 12 tölu- Ö
jj blöð. — Árgangurinn kostar 3 krónur. — Góðir, £}
áhugasamir útsölumenn óskast. Sölulaun 20% af minst q
C3 5 eintökum. 25% af 30 eint. og þar yfir. — Ritstjóri: O
{3 Skúli Skúlason Bergstaðastræti 9. C3
^ Afgreiðslumaður: Magnús Stefánsson, Sunnuhvoli, ^
C3 Pósthólf 986. O
^ Gjalddagi blaðsins er 1. júlí. — Utanáskrift er: q
ö íþróttablaðið, Pósthólf 973, Reykjavík. g
0C3£3£3£3£3£3e3C3£3C3£3C3£3£3£3£3£3£3£3£30£3C3£3C3C3£3£3£3C3£3£3C3£3O
sem til er. Miiller leggur sem sje afar mikið upp
úr stælingu kviðvöðvanna, en sá sem ritar þessa
grein veit enga leikfimisæfingu, sem komi »hupp-
unurn* að eins góðu gagni og þá, að renna ljá á
sljettum velli. Og því síður aðra skemtilegri.
Sveitamenn ættu því að vera öllu betur undir
það búnir, að verða afreksmenn í íþróttum en
kaupstaðarbúar. Og reynslan hefir sýnt að þeir
eru það. Hún hefir sýnt það, á þeim mörgu íþrótta-
mannaefnum, sem komið hafa hálfvaxnir eða til
fulls til Reykjavíkur eða hinna kaupstaðanna og
getið sjer orðstír, undir eins og þeir fengu eitt-
hvað til að keppa við.
Við eigum mörg dæmi þessa, um einstaklinga.
En um fjelög íþróttaiðkenda eigum við þau tæpast
önnur, en þar sem eru íþrótta- og ungmenna-
fjelögin í námunda við Reykjavík. ]eg geri að svo
stöddu ekki ráð fyrir, að einmitt á bækistöðvum
þessara fjelaga hafi verið betri íþróttamannaefni
en víða annarsstaðar á landinu. En í einu skildi á:
Þessi fjelög voru svo nærri íþróttahreyfingunni í
Reykjavík, að þau gátu gert sjer von um, að kom-
ast í færi við Reykjavíkurfjelögin, sem kunn voru,
og freista þess, hvort afreksinenn þeirra væri
ódrepandi. íþróttamönnum í Múlasýslum eða Skafta-
fells er eigi gefin sú örfun; til þess eru þeir of
fjarri. Og þeir, sem hyggja sig svo fjarri miðstöð
íþróttanna, að þeir geti aldrei þangað náð, fara á
mis við brýnustu eggjan alls íþróttalífs: samkepnina.
En eftir því sem íslenskt íþróttalíf nær viðgangi,
hverfur þessi þröskuldur úr götu. I hverri sveit
myndast flokkur íþróttamanna og sá flokkur eign-
ast samskonar nágranna í næstu sveit. Og þannig
steypast hlekkir í keðju, einn í hverjum einasta
hreppi landsins, en hlekkirnir lokast saman í keðj-
una með því, að hver keppir við sína granna.
Sigurvegararnir í þeim leikum eru sjálfkjörnir
til hjeraðsmótanna og sigurvegarar hjeraðsmótanna
eiga beina braut að fjórðungsmótum og landsmót-
um. Og þá er brautin rudd úr hverri einustu sveit
landsins upp til heildarafreka íslensku þjóðarinnar.
Greiddir skattar.
Fjelög sem greitt hafa shatt til Sambandsins, síðan til-
kynning um skattgreiðslu kom í 9.—10. tbl. íþróttablaðsins.
U. M. F. Huld, Nauteyrarhreppi (nýtt fjelag), 1928, 10 kr.
U. M. F. Ólafur Pá, Dalasýslu (nýtt fjelag), 1928, 10 kr.
Glímufjelagið Þór, Stykkishólmi, 1928, 10 kr.
U. M. F. Tindastóll, Sauðárkrók, 1928, 10 kr.
Leikfimisfjelag Akureyrar, Akureyri, 1926—1928, 30 kr.
U. M. F. Akureyrar, Akureyri, 1928, 10 kr.
U. M. F. Dagsbrún, Miklaholtshreppi, 1928, 10 kr.
U. M. F. Dagsbrún, Austur-Landeyjum, 1927 —1928, 20 kr.
U. M. F. Þröstur, Skagastrandarhreppi (nýtt fjelag), 1928,
10 kr.
U. M. F. Garðarshólmi, V.-Skaftafellssýslu, 1928, 10 kr.
U. M. F. Drengur, Kjós, 1928, 10 kr.
U. M. F. Afturelding, Mosfellssveit, 1928, 10 kr.
U. M. F. Laugdæla, Árnessýslu, 1928, 10 kr.
U. M. F. Geislinn, Hrófbergstungu Strandasýslu (nýtt
fjelag), 1929, 10 kr.
U. M. F. Stokkseyrar, Stokkseyri, upp í skatt fyrir 1925
— 1927, 20 kr.
U. M. F. Efling, Reykjadal S.-Þingeyjasýslu, 1928, 10 kr.
U. M. F. Breiðavíkurhrepps, Snæfellsnessýslu (nýtt fje-
lag), 1929, 10 kr.
U. M. F. Staðarsveitar Snæfellsness., 1928—1929, 20 kr.
Maraþonhlaup „Sporting Life’s" í London
var í sumar háð 29. maí. Er kept um skraut-
legan farandgrip, sem blaðið ofannefnda hefir gefið.
Vegalengdin er 26 mílur enskar og 385 yards,
eða rúml. 42 kílometrar. Þátttakendur voru nú 85.
Sigurvegari varð Sam Ferris — í fjórða sinn —
á 2° 41' 21,5". Næsti maður var 2° 50' 29".
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Skúli Skúlason.
Prentsmiðjan Gutenberg.