Eining - 01.03.1970, Síða 15

Eining - 01.03.1970, Síða 15
E INING 15 Tóbaksnautnin er: r 1. Óeðlileg. 2. OIiolI. 3- Oþrifaleg. 4. Óþörf. 5. Kostnaðstrsöm. 6. Itýrír íegnrð og skerðir viljaþrek og sjálfstæði. 7. Hneppir í viðjar þrælilóms og nantna. - Einskis þræll, en alfrjáls skal hver maður vera. V. AUGLÝSING, S E M IIAEYKSLA9I Erlendur maður, búsettur hér um langt skeið, stanzaði ritstjóra blaðsins á förnum vegi og fékk honum tilkynningarmiða, sem honum fannst hneykslan- legur. Vissulega er miðinn ógeðfelldur okkur bindindismönnum, en hann er á þessa leið: Átthagafélag Sléttulirepps Átthagafélagar. Kvennanefnd átthagafélagsins gengst fyrir skemmtifundi, laugardaginn 25. okt. (1969) (fyrsta vetrardag) kl. 21.oo, í húsakynnum Hermanns Ragnars að Háaleitisbraut 58—60. Þar verður söngur, gleði og glaumur, þar glóir vín á dýrum skálum.“ Það var einmitt þessi síðasta setning, sem manninum þótti óviðeigandi: „Þar glóir vín á dýrum skálum.“ Setningin er óneitanlega óviðkunnanleg, og til annars ætlumst við af bless- uðum konunum, en að þær auglýstu áfengisneyzlu. Nú er þarna ekkert sagt um það, hvers konar vín er á boðstólum á hinum „dýru skálum," lítur út fyrir að skálarnar séu dýrar, fremur en það sem í þeim er, en óvíst að lesari tilkynn- ingarinnar hugleiði það. Setningin er glannaleg og leiðinleg, hver sem útkoman hefur orðið. Sízt er þörf á að hafa fyrirheit um vínneyzlu sem beitu á öngli til aðsóknar á mannfagnað, og slæmt fordæmi er það. Annars er nú frekar þörf í þessu máli og mun íslenzka kvenþjóðin áreiðanlega líta svo á yfirleitt. Af henni væntum við hins bezta og vel hefur hún reynst hverju góðu máli. Þess vegna verður það meira áberandi, þegar frá konum kemur samkvæmistilkynning eins og þessi hér umrædda. Á því eiga menn sízt von. Annars staðar hér í blaðinu er minnt á orð hins kunna skólamanns og ágæta uppalara og æskumannaleiðtoga, Hannesar J. Magnússonar, þar sem hann segir: „Drykkjutízka er sterkasta afsiðunaraflið í þjóðfélaginu.“ Þessa tízku þarf einmitt að brjóta niður. Hennar vegna blæða hjörtu kvenna víða. Hennar vegna verður ævi margra ungmenna auðnuleysi, og hennar vegna verður þjóðfélagið fyrir átakanlegu tjóni. Við eigum að hætta að leika okkur að eldinum, hætta að leggja tálsnörur á braut hinna óreyndu og fljóthuga æsku- manna, en vera þeim í þess stað hin sanna fyrirmynd. Afkjígissalan 1. okt. til 31. des. 1969. Heildarsala: Selt í og frá Reykjavík . - - - Akureyri ... - - - ísafirði .... - - - Siglufirði .. - - - Seyðisfirði . - - - Keflavík . .. - - - Vestm.eyjum okt.—des. 1969 kr. 155.541.651,90 — 16.402.755,00 — 4.813.525,00 — 2.745.700,00 — 3.349.120,00 —■ 11.241.260,00 — 6.317.370,00 kr. 200.411.381,90 okt.—des. 1968 kr. 121.902.294,00 — 12.571.060,00 — 3.736.240,00 — 2.526.450,00 — 3.742.060,00 — 7.568.725,00 — 4.167.686,00 kr. 156.214.520,00 Heildarsala útsölustaða: Reykjavík: Akureyri: ísafjörður Siglufjörður: Seyðisfjörður: Kef lavík: Vestmannaeyjar: Árið 1969 kr. 530.430.521,30 —• 59.728.750,00 — 18.067.440,00 — 10.565.450,00 — 11.849.310,00 — 38.336.310,00 — 23.057.135,00 Kr. 692.034.916,30 Árið 1968 kr. 448.037.684,00 — 49.822.655,00 — 15.570.950,00 — 9.763.775,00 — 11.249.920,00 — 26.923.355,00 — 19.631.070,00 Kr. 581.009.409,00 Söluaukning 1969 miðað við árið 1968, er 111 millj. króna, eða 19%. Það skal tekið fram, að útsöluverð áfengis var hækkað all- mikið í byrjun árs 1969. Áfengisneyzlan á mann miðað við 100% áfengi: Árið 1964 1,97 1 Árið 1967 2,38 1 — 1965 2,07 - — 1968 2,11 - — 1966 2,32 - — 1969 2,17 - Neyzluaukning 1969 frá fyrra ári er 2,8%. Áf engisvarnaráð. (Heimild: Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins). Nei, pabbi, ekki! segir rússneski drengurinn.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.