Okkar á milli - 01.06.1983, Blaðsíða 6
Sáldþiykk eftir GRAFÍKTTLBOÐ/
Asdísi Sigþórsdóttur /USTASAFN VERAUDAR
Bók mánaðarins
Jafnvel með afborgunum
Eins og við höfum áður tekið fram
mun Veröld bjóða félögum sínum
myndlist og nytjalist með jöfnu
millibili. Við höfum valið þá leið að
biðja listamenn um að vinna
sérstök verk fyrir okkur og leggjum
áherslu á að þau séu í háum
gæðaflokki.
Fyrsti listamaðurinn sem við
kynnum er grafíkerinn
Asdís Sigþórsdóttir, sem vakið
hefur verðskuldaða athygli fyrir
myndir sínar undanfarið ár.
Myndverk það sem hún hefur
unnið sérstaklega fyrir Veraldarfé-
laga.einungis í 60 eintökum, er
sáldþrykk. Asdís hefur talsvert
unnið með þeirri tækni, sem krefst
mikillar ögunar og vinnuvöndunar
af listamanninum. Varðandi efnis-
val segist Ásdís oftsinnis setjast
niður til að vinna að alvarlegum
raunsæisverkum en ævintýrið beri
sig oftast ofurliði. I þessari mynd
Ásdísar eru 13 þrykk og hefur
henni tekist afskaplega vel að
skapa sterkt, en fallegt myndverk.
Sýningar
Ásdís hefur haldið eina einkas
ingu í Gallerí Langbrók, en hún
félagi í Islenskri Grafík og hef
tekið þátt í samsýningu með
hópi. Ásdís sýndi ennfremur á
sýningu Gngra myndlistarmanna I
að Kjarvalsstöðum og seldust öll
eintök mynda hennar sem föl
voru. Jafnframt vinnu við eigin
verk hefur Ásdís verið mynd-
menntakennari við Barnageðdeild
Landspítalans. Ásdís er fædd í
Reykjavík 1954 og var við nám í
Grafíkdeild Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands þar sem hún
útskrifaðist 1980. Árið 1981
opnaði hún eigið verkstæði og
fæst nú eingöngu við myndi'
HVAÐ
ERVEROLD Ókeypis fréttablað
Hliðstætt verk kostar ekki undir
1800 kr. á sýningum en
Veraldarfélögum býðst það á
980 kr.
Fyrsta mynd Veraldar
Við viljum benda félögum okkar á
að líklegastmunu margir sækjast
eftir að eignast þessa fyrstu mynd
sem unnin er fyrir Bókaklúbbinn
Veröld. En eintökin eru einungis
sextíu svo við verðum að láta þá
sem fýrstir panta ganga fyrir.
Sérstaklega skal þeim fjölmörgu
aðilum sem sáu mynd Ásdísar á
skrifstofum okkar og föluðust eftir
eintökum, bent á að þeir verða
sem aðrir að panta á pöntunar-
seðlinum sem fylgir „Okkar á
milli". Þeir sem hafa hug á að
eignast sérstök númer verða að
taka það fram og ef hæqt er
að verða við óskum þeirra verður
það qert. Myndina er bæði
hægt að fá innrammaða og
óinnrammaða. Við römmum inn
fyrir þá sem þess óska í vandaða
danska álramma sem sérstaklega
eru litaðir hvítir fyrir þessa mynd
og ólíklegt er að hægt sé að fá
myndina innrammaða annars
staðar í jafn vandaðan ramma fyrir
jafn hagstætt verð.
Stærð myndan 50x60 cm.
Stærðramma: 55x70 cm.
Eintakaljöldi: 60
Klúbbverð (óinnrömmuð):
980 krónur
Klúbbverð (innrömmuð m/passe-
partout): 1.580 krónur
myn^f verði
viðráðanlegu
7W
• • •
Þegar þú gengur í bókaklúbbinn Veröld
greiðir þú ekkert félagsgjald og
skuldbindur þig ekki til að kaupa neina
bók né taka nokkru tilboði klúbbsins.
Eina sem þú þarft að gera er að
afpanta bók mánaðarins ef þú hefur
ekki áhuga á að eignast hana.
Þú getur sagt þig úr klúbbnum hvenær
sem er án þess að hafa keypt nokkuð,
en þér munu þá ekki bjóðast
önnur tilboð Veraldar.
I hverjum mánuði færðu heimsent
fréttablað Veraldar „Okkar á milli''
ókeypis. Hverju fréttablaði fylgir
pöntunarseðill er fylltur skal út af
þeim er vilja taka einhverju
hliðartilboðanna eða afpanta bók
mánaðarins. En þeir sem vilja
fá bók mánaðarins eina þurfa ekkert
að gera, því hún er send öllum þeim
er ekki afpanta hana.
I hverjum mánuði kynnum við
í fréttablaðinu bók mánaðarins sem
valin er með það fyrir augum að sem
flestir félagsmanna hafi af henni
gagn og ánægju. Bókin er eins og áður
sagði send til allra þeirra er ekki
afpanta hana innan tiltekins.frests, sem
að þessu sinni er 20. júní.
Ef þú gleymir að afpanta og kærir þig ekki
um bókina er þér heimilt að senda okkur
pakkann óopnaðan innan tíu daga og
greiða einungis sendingarkostnað til baka.
®VERÖLD
[l^J ÍSLENSKI RÓKAKI.ÚBRURINN
Með bókum og öðrum tilboðum Veraldar
mun fylgja sérstakur gíróseðill sem greiða
má í öllum bönkum, sparisjóðum eða
pósthúsum innan tíu daga
frá dagsetningu hans. Ef um stærri
eða dýrari verk er að ræða munu félagar
greiða með tveimur eða fleiri afborgunum.