Okkar á milli - 01.07.1988, Blaðsíða 2
|@jBÓK LXJ MÁNAÐARINS Bók mánaðarins Verð: 2.350 kr.
Nýtt bindl í Undraveröld dýranna
Glæsilegt stórvirki
i íslenskri bókaútgáfu
Bók mánaöarins í júlí er nýtt bindi í Undra-
veröld dýranna, stærsta fjölfræöisafni úr
ríki náttúrunnar, sem gefið hefur verið út.
Félagsmenn þekkja nú þegar þetta alþjóð-
lega verk, sem hlotið hefur frábæra dóma
og þykir hið eigulegasta sinnar tegundar
sem völ er á. Hér er um glæsilegt stórvirki
að ræða í íslenskri bókaútgáfu, og það er
eingöngu boðið Veraldarfélögum og verður
ekki selt á almennum markaði.
Hver bók sjálfstæö
Það er Fjölvaútgáfan sem gefur Undraver-
öld dýranna út fyrir Veröld, en íslenskir höf-
undar eru Óskar Ingimarsson og Þorsteinn
Thorarensen. Þótt verkið sé stórt í sniðum
og skiptist í mörg bindi, má segja að hver
bók sé sjálfstætt fjölfræðirit út af fyrir sig.
Sérstæöasta spendýrið
Nýja bókin er fjórða bindiö af sex um spen-
dýrin. Sagt er í ýtarlegum texta og fallegum
litmyndum frá nefdýrum, pokadýrum, skor-
dýraætum, leðurblökum og síðast en ekki
síst: hvölum.
Hvalurinn er lang sérstæðasta spendýr
jarðarinnar - og við segjum nánar frá hon-
um á næstu síðu.
Hinar bækumar enn fáanlegar
Takmarkað upplag á gamla verðinu
vtnoui
Veröld hefur nú gefið út fimm bindi í Undra-
veröld dýranna, en alls verða þau átján.
Fjórar eldri bækurnar eru fáanlegar á
gamla verðinu, en upplagið er mjög tak-
markað. Þetta eru bækurnar Fuglar, fyrri
hluti, og Spendýr, annar, fjórði og sjötti
hluti. Enn gefst því félagsmönnum tækifæri
til að safna þessari glæsilegu ritröð og
eignast hana alla.
Eldri bækur 1.950 kr. stk.
Nr.
Fuglar 2228
Spendýr (rándýr) 2229
Spendýr (nagdýr) 8709
Spendýr (hófdýr) 8711
2