Okkar á milli - 01.08.1988, Side 2
Bók mánaðarins
Fulltverð: 1.875 kr.
Okkar verð: 1.495 kr.
Meiriháttar skáldsaga eftir
meistara spennusögunnar
Mánaðarbók Veraldar er að þessu sinni
heimsfræg skáldsaga eftir Robert Ludlum,
einn fremsta spennusagnahöfund sem nú
er uppi. Hart á mótihörðu heitir hún og kom
út fyrir síðustu jól á forlagi Setbergs í ís-
lenskri þýðingu Gissurs Ó. Erlingssonar.
Vinsæl í fyrra
í ágústmánuði í fyrra buðum við einnig
nýja skáldsögu eftir Robert Ludlum, Milli lífs
og dauða, og naut hún óvenju mikilla vin-
sælda. Það er síst að undra, því að hér er
um að ræða bækur sem lesnar eru um allan
heim og því óhætt að veita þeim bestu
meðmæli. í báðum þessum bókum eraðal-
söguhetjan hin sama - hinn dularfulli Jas-
on Bourne, sem öllum stendurstugguraf.
Kvíövænleg spurning
Bókin hefst á því, að í næturklúbbi í Hong
Kong hefur nafn verið skrifað með fingri á
blóðstorkið gólfið. Þetta er nafn manns sem
heimurinn vill að sé gleymdur og grafinn:
Jason Bourne. Washington, London, Pek-
ing - skelfingin fer eins og eldur í sinu um
heiminn. Þjóðarleiðtogar og undirheima-
furstar spyrja sömu kvíðvænlegu spurning-
arinnar: Er Bourne aftur kominn á kreik?
Uggvænleg vitneskja
En bandarískir embættismenn sitja uppi
með uggvænlega vitneskju: Jason Bourne
er ekki til og hefur aldrei verið til. Nafnið var
dulnefni David Webb á meðan hann var að
elta uppi Carlos, alræmdan hryðjuverka-
mann. Nú hefur einhver annar maður end-
urvakið þetta sama nafn. Og verði sá mað-
ur ekki stöðvaður, vofir yfir ógn og skelfing.
Endist lengi
Lengra verður söguþráðurinn ekki rak-
inn, svo að lesendur geti sjálfir notið efnis-
ins og hinnar ósviknu spennu, sem
einkennir allt sem Robert Ludlum skrifar.
Og síðast en ekki síst má geta þess, að
ánægjan af lestri bókarinnar endist lengi,
því að hún er hátt á fimmta hundrað blað-
síður að stærð. Góða skemmtun!
Okkar bók í efsta sæti
Þegar mánaðarbókin okkar, skáldsagan The Bourrte
Supremacy eftir Robert Ludlum, sem heitir á íslensku Hart á
móti hörðu, kom út í Bandaríkjunum vorið 1987, hlaut hún
þegar mjög góðar undirtektir. Hún var í efsta sæti á mörgum
vinsældalistum - eins og meðfylgjandi úrklippa sýnir.
Publishers Weekly
PAPERBACK BESTSELLERS
: MAY 1, 1987
MASS HtA P lYF’T' TRADE
[ J The Hourne Supremacv. Kobert 1 J Hound of the Far Side. Gai y Earson.
I.udlum. Kantam, $4.95. Andrews. McMeel & l’arker, $5.95. Eai -
son's newest has a May 15 publica
0 Hreak In. Dick Francis. Fawcett t.’rest, 3 5 tion date and a liOO.OOO-copy first print-
$4.95. injr.
2