Okkar á milli - 01.08.1988, Page 4
NÝ AFSLÁTTARBÓK VERALDAR
Afsláttur h já um 400 fyrirtækjum
Allir þeir sem greitt hafa gjaldfallna
reikninga ættu nú aö hafa fengið nýju
afsláttarbókina heimsenda. Þeir sem
ekki hafa fengið bókina fá hana um leið
og þeir hafa greitt gjaldfallna reikninga.
Um 400 fyrirtæki
í nýju afsláttarbókinni eru um það bil
400 fyrirtæki sem veita Veraldarfélög-
um 5-20% staðgreiðsluafslátt og sum
þeirra veita jafnframt afborgunarafslátt.
Margra mánaða vinna
Margra mánaða vinna hefur verið
lögð í að gera afsláttarbókina sem
stærsta og fjölbreyttasta. Hringt var í öll
þau fyrirtæki sem voru í bókinni í fyrra
og fjölda annarra fyrirtækja og voru
undirtektir hinar bestu eins og bókin
sýnirog sannar.
Afsláttur á 19 hótelum
í afsláttarbókinni er afsláttur á 19 hót-
elum, þar af 17 úti á landi, sem ætti að
koma sér vel fyrir alla þá sem ferðast
innanlands í sumarfríinu. Einnig má
nefna að veittur er afsláttur í 40 fata-
verslunum, 8 barnafataverslunum, 11
rakara- og hárgreiöslustofum, 11 hús-
gagnaverslunum, 11 blómabúðum, 6
búsáhaldaverslunum, 19 matsölustöð-
um og svo mætti lengi telja, því hér hafa
aðeins verið nefnd 125 fyrirtæki. Það er
því von okkar að afsláttarbókin eigi eftir
að Sþara þér og fjölskyldu þinni dágóð-
an pening í framtíðinni.
Ferðataska frá Antler
Þessi skemmtilegaferðataska fráhinu þekkta fyrirtæki Antlererí
verðlaun nú í ágúst-getrauninni. Hún er með hólfum að framan og
aftan og hægt er að hengja inn í hana jakkafötin eða kjólana. Þeir
sem vilja taka þátt í getrauninni verða aö vera búnir að greiða
gjaldfallna reikninga 10. september. Spurningin hljóðar svona:
Eftir hvern er bók mánaðarins? Skrifaðu rétt svar á svarseðilinn á
bls. 7 eða hringdu inn rétta lausn á símsvarann í síma 29055.
Albúm
fyrir
sumarmyndimar
Nr.: 5011
Okkar verð: 798 kr.
Vantar þig ekki albúm undir sumarmyndirnar? Ef svo er hefur
Veröld upp á að bjóða 34 opnu Henzo-myndaalbúm. Það er ekki
sjálflímandi, en límstautur fylgir með. Láttu ekki bjartar og fallegar
sólskinsmyndir liggja eins og hráviði út um allt. Límdu þær inn í
albúm! Þá geturðu rifjað upp dýrmætar minningar um skemmtilegt
sumar hvenær sem þú vilt.
4