Okkar á milli - 01.08.1988, Síða 4

Okkar á milli - 01.08.1988, Síða 4
NÝ AFSLÁTTARBÓK VERALDAR Afsláttur h já um 400 fyrirtækjum Allir þeir sem greitt hafa gjaldfallna reikninga ættu nú aö hafa fengið nýju afsláttarbókina heimsenda. Þeir sem ekki hafa fengið bókina fá hana um leið og þeir hafa greitt gjaldfallna reikninga. Um 400 fyrirtæki í nýju afsláttarbókinni eru um það bil 400 fyrirtæki sem veita Veraldarfélög- um 5-20% staðgreiðsluafslátt og sum þeirra veita jafnframt afborgunarafslátt. Margra mánaða vinna Margra mánaða vinna hefur verið lögð í að gera afsláttarbókina sem stærsta og fjölbreyttasta. Hringt var í öll þau fyrirtæki sem voru í bókinni í fyrra og fjölda annarra fyrirtækja og voru undirtektir hinar bestu eins og bókin sýnirog sannar. Afsláttur á 19 hótelum í afsláttarbókinni er afsláttur á 19 hót- elum, þar af 17 úti á landi, sem ætti að koma sér vel fyrir alla þá sem ferðast innanlands í sumarfríinu. Einnig má nefna að veittur er afsláttur í 40 fata- verslunum, 8 barnafataverslunum, 11 rakara- og hárgreiöslustofum, 11 hús- gagnaverslunum, 11 blómabúðum, 6 búsáhaldaverslunum, 19 matsölustöð- um og svo mætti lengi telja, því hér hafa aðeins verið nefnd 125 fyrirtæki. Það er því von okkar að afsláttarbókin eigi eftir að Sþara þér og fjölskyldu þinni dágóð- an pening í framtíðinni. Ferðataska frá Antler Þessi skemmtilegaferðataska fráhinu þekkta fyrirtæki Antlererí verðlaun nú í ágúst-getrauninni. Hún er með hólfum að framan og aftan og hægt er að hengja inn í hana jakkafötin eða kjólana. Þeir sem vilja taka þátt í getrauninni verða aö vera búnir að greiða gjaldfallna reikninga 10. september. Spurningin hljóðar svona: Eftir hvern er bók mánaðarins? Skrifaðu rétt svar á svarseðilinn á bls. 7 eða hringdu inn rétta lausn á símsvarann í síma 29055. Albúm fyrir sumarmyndimar Nr.: 5011 Okkar verð: 798 kr. Vantar þig ekki albúm undir sumarmyndirnar? Ef svo er hefur Veröld upp á að bjóða 34 opnu Henzo-myndaalbúm. Það er ekki sjálflímandi, en límstautur fylgir með. Láttu ekki bjartar og fallegar sólskinsmyndir liggja eins og hráviði út um allt. Límdu þær inn í albúm! Þá geturðu rifjað upp dýrmætar minningar um skemmtilegt sumar hvenær sem þú vilt. 4

x

Okkar á milli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.