Leo - 01.12.1986, Blaðsíða 15

Leo - 01.12.1986, Blaðsíða 15
LEO - 15 Brjálsemi má lækna, heimsku ekki UONSKLÚBBURINN HÆNGUR arfsárið 3 - 1986 Þakkir! Hvað er Leó án myndgát- unnar góðu? Níels Hall- dórsson hefur í ár sem áður séð um gerð hennar og kunnum við honum hin- ar bestu þakkir fyrir. Teikningar Sigmunds Jóhannssonar, Vestmanna- eyjum, eru einnig sérkafli, eru honum færðar miklar þakkir fyrir þær. Auglýsendum og öllum öðrum er Ijáð hafa okkur lið, og það hafa margir gert í gegnum öll árin, eru færð- ar þakklætiskveðjur. Með þeirra stuðningi og þeirra hug er okkur gert kleift að hjálpa öðrum. Lesendum og velgerð- arfólki óskum við gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Stcfán Thorarcnsen náfti bestum árangri félaga ÍFA á Hængsmótinu og iilaut að launum Hængsbikarinn. Frá kcppni í Boccia á Hængsmótinu. Bogfimi er ein þeirra greina sem keppt er i á Hængsmótinu. Kcynir Pétur Ingvarsson, göngugarpur, var heiðursgestur Hængsmótsins aö þessu sinni. Hann var hrókur ails fagnaðar að venju, og skemmti sér kon- unglcga að eigin sögn. Jólatrésskemmtun Jólatrésskemmtun var haldin á milli jóla og nýárs í samvinnu við hina Lionsklúbbana í bæn- um og var mjög vel til hennar vandað að mati jólasveinanna. Hængsmótið Hængsmótið var haldið 22. mars sl. í íþróttahöllinni og tókst mjög vel að venju. Þetta er opið íþróttamót fatlaðra íþróttamanna og var nú haldið í 4. sinn. Hængsfélagar sjá að öllu leyti um undirbúning og fram- kvæmd mótsins, en njóta til þess mikillar aðstoðar margra aðila. Fyrst ber að telja stjórn íþróttafélags fatlaðra á Akur- eyri, eiginkonur Hængsfélaga, starífsmenn íþróttahallarinnar, lyftingamenn, Magnús Ólafs- son sjúkraþjálfara og fleiri. Þessir aðilar allir leggja sig frarn til að framkvæmd móts- ins verði sem best. Heiðursgestur þessa móts var Reynir Pétur Ingvarsson, göngugarpurinn frækni. Hann veitti viðtöku afreksbikar frá okkur fyrir hið ótrúlega afrek sitt er hann gekk hringveginn og einnig veitti hann viðtöku peningaupphæð frá Hæng í Sólheimasöfnunina. Það var engin lognmolla í kringum Reyni þarna á mótinu frekar en venjulega og vakti þessi einlæga framkoma hans og málsnilld almenna aðdáun okkar Hængsfélaga sem og annarra keppenda. Hængsbikarinn var nú veitt- ur í annað skipti. Hann er veitt- ur þeim félaga í ÍFA sem best- um árangri nær á mótinu. Bikarinn hlaut að þessu sinni Stefán Thorarensen. Við Hængsfélagar erum farnir að hlakka til næsta Hængsmóts, en það verður í (þróttahöllinni á Akureyri 14. mars nk. Kjarnahátíð Starfsárinu lauk svo með grill- veislu í Kjarnaskógi, en þar komu Hængsfélagar saman ásamt fjölskyldum sínum og áttu ánægjulegan dag í góðu veðri. Hængsfélagar héldu heljarmikla grillveislu í lok starfsársins. Hún var haldin í Kjarnaskógi og þóttist takast nijög vel. Verkefnasjóður Stærstur hluti þess fjár sem við höfðum til ráðstöfunar var afhentur Jóni E. Aspar fyrir hönd þeirra félaga sem vinna að uppbyggingarstarfi að Botni í Eyjafirði. Önnur fjárframlög voru í Sólheimasöfnunina, vatns- verkefni á Indlandi og einstakl- ingur styrktur vegna læknisað- gerðar. Þá hefur klúbburinn tekið virkan þátt í verkefninu „Vímu- laus æska“, svo sem skipu- lagningu og framkvæmd götuhlaups unglinga á sam- norræna kynningardeginum 3. maí.

x

Leo

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leo
https://timarit.is/publication/847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.