Neisti


Neisti - 06.06.1931, Blaðsíða 3

Neisti - 06.06.1931, Blaðsíða 3
NEISTI 3 Alþingiskosningarnar i Si^lulírði 12. júní 1931 fara fram í Kvenfjelagshúsinu og hefj- ast kl. 12 á hádegi. Siglufirði 4. júní 1931 Kjörstjórnin. ing að sameina kjördæmin og að viðhafa blutfallskosningar, sem að hann og floklcur hans telur nú bana- ráð við „bændaveldið"? Pegar að hr. J. J. skrifaði „Kom- andi ár“, var hann forvígismaður bÍBtidanríá í baráttunni fyrir umbót- um í stjórnmálastarfseminni í land- inu, og meðal þeirra umbóta er hann krafðist og barðist fyrir í nafni bændanna, var breytinj* á kjördcema- skifiuninni. — En hvað hefir breyst? Er það nú orðið rangt, sem þá var rjett? Nei, ranglæti og rjettlæti er það sama nú og áður, en tímarnir breytast og mennirnir með, og nú telur „Framsókn" sjer hag í því að viðhalda núverandi kjördæma- skipun og berst því á móti rjett- tœtinu. Siglfirðingar! Pann 12. júní sam- einum við okkur öll met) rjettlœtinu og kjósum Gubmund Skarfihjeðinsson. J. .1. V e 1 1 a u n a ð. 900 kr. fyrir ekki neitt. A fundi í Grindavík á annan í hvítasunnu sagði Olafur Thors: „Já, það er satt að jeg hefi bitlinga en það vill svo vel til að háttvirtur forsætisráðherra hefir líka bitlinga Jeg sit í gengisnefnd með forsætis- ráðherra og fæ jég þar 900 kr. á ári fyrir ekkert. Framsóknarstjórnin vill ekki leggja þessa nefnd niður, og þó hefir hún ekkert gert í nokk- ur ár. Jeg get ekki losnað við þennan bitling”. — Svona er ríkis- fjenu úthlutað, hver nefndarmaður fær 900 kr. en vinnur ekkert fyrir því, en alhýðan vinnur og borgar með hcerri og hœrri sköltum. Parna er íhald og Framsókn sameinað. r Ur ýmsum áttum. Rússar og Finnar. Utvarpsfrjettir herma, að þar sem Rússar flvtji mikiðaf bændum nauð- uga á samyrkjubúin, og að þeir vinni þar hvaða verk sem að hönd- um ber sem óbreyttir verkamenn, þá hafi bændurnír flúið í stórhópum yfir til Finnlands, einkum sjeu það bændur af Finskum ættum. Eftir að þeir höfðu sagt sögu sína fór stórhópur heim til Rússneska sendi- herratis og mótmæltu framkomu MATVARA, ílestar tégundir, altaf fyrirliggj- andi. Verðið og gæðin marg- þekt. KAUPFJELAGIÐ. Rússanna við bændurnar. Jafnframt sendi Finska stjórnin Ráðstjórninni mótmælabrjef, en Rússar brugðust reiðlr vlð og hótuðu Finnum því allra versta fyrir margskiftnina. Landaskattur. I Enska Parlamentinu var nýlega samþykt frumvarpstillaga um Vcrð- skatt á löndum með 289 atkv. gegn 230, Frumvarpið mælir svo fyrir að meta skuli allar landeignir jafnt bygðar sem óbygðar og greiðist 1 Pcnny skattur af hverju sterlings- pundi en jarðeign sem að matin sje ekki meir en á 120 sterlingspund sje skattfrjáls, endurmat sje 5 hvert ár. A móti frumvarpi þessu var Enska íhaldið. Jafnaðarmenn fluttu það, en Frjálslyndir studdu það. Ráðningarskrifstofu hefir Verkamannafjelag Siglufjarðar sett á stofn, og er það starfssvið hennar að ráða verkamenn og verka- konur til hvaða starfa sem er, og hvar á landinu serh er. Hún gerir vinnusamninga við vinnukaupendur og hjálpar verkalýðnum til að ná inn kaupkröfum sínum samkvæmt gildandi taxta. Verkamenn og verkakonur, jafnt heimamenn sem aðkomumenn, þið skuluð láta Ráðningarstofuna annast fyrir ykkur alt það, sem að ráðningu lítur, hvort heldur að það er lengri eða skemri tími sem að ráðið er til. Utgerðarmenn, sildarsaltendur og aðrir vinnukaupendur, snúið ykkur til Ráðningarstofunnar ef ykkur vant- ar vinnukraft jafnt fyrir lengri sem skemmri tíma. Sumarkápurnar margeftirspurðu og ódýru eru * nú komnar aftur í Kaupfjelagið. Niðursuðuvörur Blandaðirávextir, 111 o£ dósir Perur, — Aprikósur, Ferskjur, — Jarðarber, Ananas, — Plómur, Kjöt, ‘|i og 112 dósir, Kæfa, — Bjúgur, Gaffalbitar, Grísarsulta, Sardínur í olíu og tomat, Fiskabollur, — Asparagus, Pickles, — Marmelade, Sósur, Kaupfielagið. T ó b a k s - og sælgætisvörur eru bestar í KAUPFJELAGINU. Tilkynning. Peir, sem ókunnir eru forystu hæfileikum og stnrfsháttum Komm- únista, ættu að kynna sjer sögu Rauðatorgsins. A. B. Verkamenn, sjómenn og verka- konur, treystið samtök ykkar á öllum sviðum! Útgefandi: Jafnaðarmannafjelag Síglufjardar. Ábyrgðarmaður: Kr. Dýrfjörð.

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.