Neisti


Neisti - 18.02.1936, Side 1

Neisti - 18.02.1936, Side 1
r Utgefandi: Jafnaðarmannafélag Siglufjarðar. IV. árg. Siglufirði, þriðjudaginn 18. febrúar 1936 4. tbl. I. febrúar. Fyrir starf ungra námsmanna í bindindisfélöguni í skólum landsins og samstarf Goodtemplara við þá, hefir það áunnist, að 1. febrúar ár hvert hefir verið ákveðinn baráttu- dagur bindindismanna um land allt.— Baráttudagur gegn allri áfengisnotkun og því margvíslega böli sem af áfeng- inu leiðir, — baráttudagur fyrir auknu heilbrigfii einstaklinganna, auknu sið- ferðisþreki þeirra, aukinni starfsþrá og þoli og um leið baráttudagur fyrir nýrri kynslóð, sem er laus við alla þá sérkennisgalla, sem er talandi ein- kenni allra þeirra, er áfengi nota. Hér á Siglufirði, sem annarsstaðar á landinu, leystu bindindisfrömuðir af hendi mikið starf 1. febr. s. I, en hann var þeirra fyrsti baráttudagur. Bindindisfél. Gagnfræðaskólans hér, stúkan Framsókn nr. 187 og áfengis- varnarnefnd Siglufjarðar stófiu sam- eiginlega að deginum. Gáfu þessir aðiljar út blað, sem hét 1. febrúar. Var það bæði efnismikið og prýðilegt að öllum frágangi. í blaðinu var ljóð eftir Hannes Jónasson og alvöruþrungn- ar og rökfastur greinar um bindindis- mál eftir: Hannes Jónasson, bóksala, jón Kjartansson, verkstjdra, síraÓskar J. Porlákssoni og Jón Jóhannesson fiski- matsmann. Kl. 5 síðd. héldu svo sömu aðiljar fund í Bíó. Ræðumenn voru: Jón Jónsson, skólastjóri, frú Þóra Jóns- dóttir, RagnAr Guðjónsson, kennari, Kristján Dýírfjörð, rafvirki, Friðrik 1 Hjartar, skólastjóri og Pétur Björns- son, kaupmaður, sem er af atvinnu- málaráðuneytinu skipaður formaður áfengisvarnanefndar hér og einnig er forseti stúkunnar Framsókn. Allir voru ræðumenn hinir áheyrilegustu. Mikill og sígildur sannleiki, sagður í fáum orðum og rökstuddum með eftirtekt- arverðum dæmum og staðreyndum, var einkennandi fyrir alla ræðumenn og mun hafa valdið því, að ræður þeirra. hvors eins, gátu ekki farið fram hjá neinum áheyrenda. Auk þess var skipting efnisins ágæt hjá ræðu- mönnum. Eitt er víst, sem sé það, að allir forgöngumenn þessara þriggja aðiljs, svo og allir aðrir starfandi bindindis- menn, jafnt hér á Siglufirði og ann- ars staðar, eiga það fullkomlega skilið að ná verulegum árangi af starfi sínu. Enda er bér einkis að örvænta og megum við Siglfirðingar vel við una, þá menn, sem hér hafa forust- una. Pað fer t. d. vel á því að sókn- arpresturinn ásamt báðum skólastjór- 10. janúar síðastl. samþykkti bæjarstjórnin hér að setja á lagg- irnar nefnd, er rannsakaði á hvern hátt heppilegast væri að auka út- gerð og atvinnurekstur hér í bæn- um. unum hér gangi á undan með góðu eftirdæmi. Pað er ekki þar með sagt að þeir geri meir en skyldu sína, því að sjálfsögðu er það skilyrðis- laus skylda, fyrst og fremst allra starf- andi starfsmanna ríkis og bæja, svo og allra góðra drengja og kvenna, a& styðja með ráðum og dáð bindindis- starfið, en þeir ganga hér á undan mörgum stéttabræðrum sínum og vísa þeim þannig leið og fyrir það eiga þeir óskift þakklæt'. Flestir kennararnir hér eru líka starfandi innan bindindissamtakanna og auk þeirra margir ágætir menn, sem eiga óskipt traust alls fjölda bæj- arbúa, Pað er því óhætt að endurtaka það, að hér er einkis að örvænta, svo framt, að bæjarbúar almennt loki ekki augunum fyrir sorglegum staðreynd- um vfnnautnarinnar. Að lokum vill Neisti bjóðast til að flytja greinar og fregnir um bindind- ismál fyrir þá aðilja, sem hér um ræðir og aðra, er styðja vilja bindindi. Nefndin er þannig skipuð: Frá bæjarstjórn: Arnþór Jóhannsaon, Gunnar Jóhannsson, Andés Hafliðason, Tillögur um atvinnuauknin£u.

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.