Neisti - 04.03.1936, Síða 2
2
NEISTl
Petta hefir þau áhrif, að útilok-
unin neyðir menn til þess jafnvel
að segja sig úr verkalýðsfélögunum,
og þegar svo er komið, eru at-
vinnurekendur búnir að ná tilgangi
sínum, með því að lama eða eyði-
leggja samtökin. Eg býst við að all-
flestir verkamenn á Siglufirði geti
sagt sér sjálfir, hvers þeir mættu
vænta frá atvinnurekendum, ef
verkalýðsfélagsskapur væri hér eng-
inn til.
Um eina tíð var verkalýðsfélags-
skapurinn hér í Siglufirði með hvað
mestum þroska sem hann hefir
náð hér á landi. Verkamenn voru
hér aliir í einni stórri samtakaheild
og gátu ráðið hér lögum og lofum.
Pá er það, að kommúnistar hefja
sitt söguríka og sorglega sundrung-
arstarf innan samtakanna, með því
að rægja og baknaga þá menn,
sem verkafólkið hafði sér til for-
ystu valið. Arangur rógsiðjunnar
varð mikill, verkafólki til skaða,
íhaldi og atvinnurekendum til á-
nægju.
Verkalýðurinn sundraðist, félags-
skapur og samtök flakandi í sárum,
verkafóllíið var ekki lengur það
ráðandi afl á staðnum, fjárgráðugir
íhaldsspekulantar tóku völdin og
allir vita hvernig komið er undir
þeirra stjórn.
Pessi saga er ljót, en það vita
Siglfirzkir verkamenn að hún er
sönn- Petta er raunveruleikinn.
Pegar svo var komið, að samtök-
in voru sundruð og verkalýðurinn
hafði ekki lengur þrek til þess, að
standast svæsnar árásir atv.rekend-
anna er verkamannafélagið „Próttur„
stofnað.
Pað eru ekki tvö ár ennþá sem
félagið er búið að starfa, en þó
hefir það unnið þrekvirki á þess-
um tíma. Prátt fyrir kúgunartilraun-
ir atvinnurekenda og róg og sundr-
ungarstarfsemi kommúnista.
Kaup verkamanna hefir hækkað
og ýrns fríðindi fengist verkafólki
til handa.
íhaldsmenn og kommúnistar og
nú síðast hinn „mest metni og
virðulegi borgari" !! hafa reynt að
læða því inn hjá verkamönnum,
að um leið og þeir gengu í „Prótt“
eða annað félag sem í Alþýðusam-
bandinu er, væru þeir skuldbundnir
til þess að játast undir pólitíska
ttefnuskrá Alþýðuflokksins,
Petta eru herfilegar blekkingar
og til þess flam bornar af þeirra
hálfu, að sporna á móti að samein-
ing verkalýðsins geti orðið.
Pað er vitanlegt öllum þeim,
sem nokkuð um þessi mál hugsa,
að í fagfélögum eru menn af öllum
pólitískum flokkum. I fagfélögunum
starfa þeir saman að hagsmuna-
málum sínum án pólitískra skoð-
ana.
í „Prótt“ geta allir verkamenn
gengið og fengið upptöku hvaða
pólitískrar skoðana sem þeir eru,
»vo hér er ekki um neina skoðana-
kúgun að ræða
heldur er „Próttur“ að
vinna að þvi að sam-
eina siglfirzka verka-
menn til varnar gegn
árásum atvinnurekenda,
vinna að því, að koma
verkalýðsfélagsskapnum
í það horf, sem hann
var, meðan hann var
blömlegastur hér í Siglu-
firði.
„Siglfirðingur“, eða sá flokkur,
sem að blaðinu stendur, hefir aldrei
beitt sér fyrir hagsmunamálum
verkalýðsins. Petta vita verkamenn
vel og þeir vita líka. að þegar blað-
ie flytur væmnar greinar. sem eiga
að vera umhyggja fyrir hag verka-
lýðsins, þá er blaðið þar að leika
hlutverk úlfsins. sem hinn „virðu-
legi“!! Siglfirzki borgari lýsir í grein
sinni í síðasta tbl. samfylkingarinn-
ar svörtu.
Siglnrzkir verkamenn!
Látið ekki tálsnörur íhaldsins
eða rógsiðju kommúnista blekkja
ykkur frá því að gera verKalýðs-
samtökin sterk hér á staðnum.
Gangið í „Prótl“ og gerið hann
að sterku stéttarfélagi, sem verndi
ykkur gegn árásum auðvaldsins.
Pácr hagykkar betur borgið en nú er.
Jón Sigurðsson.
í Vestmannaeyjum
hafa 4 bátar undanfarið stundað
veiðar með þorskanetum. xVtest hefur
aflað Mb. Leo 4500 fiska í einum túr.
Til athugunar
Vorið 1930 gekkst Gunnar Jó-
hannsson fyrir vinnustöðvun við rík-
isverksmiðjuna, vegna þess að einn
af verkamönnunum var ekki í verka-
mannafélagi innan Alþýðusatnbands
íslands. Nú leitar þessi sami maður
aðstoðar framsóknar- og sjálfstæðis-
manna til þess að koma í veg fyrir
það, sem hann áður kom á vintiu-
stöðvun til þess að framkvæma.
*
—o—
Nokkru eflir að atvinnurekenda-
félagið var stofnað hér, var rætt um
það að knýja þá atvinnurekendur,
sem utan við stóðu inn í félagið
með því að flytja ekki út síld með
sömu skipum og þeir notuðu. Pessi
aðferð til eflingar samtökunum var
aldrei vítt af blaðinu „Siglfirðingur*.
En nú skákar þetta blað fram „virðu-
Iegasta“ manni bæjarins, til þess að
fordæma þá óhæfu! að verkamanna-
félagið „Próttui “ skuli gera þá kröfu
til ríkisverkstniðjanna, að meðlimir
verklýðsfélags innan Alþýðusambands
íslands sitji þar fyrir vinnu.
Árið 1934 ráðgerðu sjálfsiæðiS-
menn að semja „spjaldskrá", hvar í
rita skildi nöfn þeirra verkamanna.
scm játast vildu undir stefnuskrá Sjálf-
stæðisflokksins. Pessir menn áttu að
sitja fyrír allri vinnu. Pessa pólitísku
atvinnukúgun töldu sjáifstæðismenn
bæði réttmseta og sjálfsagða. Pá var
réttlætiskennd »virðulegasta og mest
metna manns bæjarins" ekki misboðið.
— o—
Kommúnistar þykjast vera miklir
kauphiekkunarmenn. En þegár þéir
koma sjálfir fram sem afvinnurekénd-
ur, er vinnan stundum bundin því
skilyrði, að varkamaðurinn fái aðerns
hálf laun.
—o—
í frumvarpi því um vinnulög, sem
Sjálfstæðismennirnir Thor TÍiors og
Garðar Porsteinsson flýtja nú á al-
þingi, er gert ráð fyrir aðeins tveim
samningsaðilum: Alþýðusambandi ís-
lands og Vinnuveitendafélagi íslands.
Nú v II hinn »virðulegi» maður, sem
f S'glf"ðing ritar 29. f. m. láta verk-