Neisti


Neisti - 08.03.1946, Page 4

Neisti - 08.03.1946, Page 4
NEISTI t Aðalfundur Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður lialdinn í Kaupþingsalnum, í húsi félagsins í Reykjavík, laugar- daginn 1. júní 1946 og hefst kl. 1,30 e. h. DAGSKRÁ 1. Stjóm félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á iiðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári og ástæð- um fyrir hendi og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikmnga til 31. desember 1945 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjómarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra, sem úr gánga samkvæmt félagslögunuip. 4. Kosnlng eins endurskoðenda í stað þess, sem frá fer, og eins varaendúrskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla mn önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngu- miðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa í skrifstofu félagsins í Reykjavík dagana 28. og 29. maí næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn í aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 5. febrúar 1946 STJÓRNIN , Þvotta- og efnalaug Sigluf jarðar h. f. TILKYNNIR Efnalaugin opnuð í dag Tekið á móti fötum til kemisk hreinsunar og gufupressunar. Opið frá kl. 1— 6 e. h. Bæjarstjórn Siglufjarðar liefur á hendinni eitt 80 smálesta skip, af skipum þeim, sem atvinnumálaráðuneytið hefur samið um kaup á frá Svíþjóð. Skipið er með 215 hestafla vél. Bæjarsjóður mun gegn sérstökum skilyrðum veita 50 þúsund króna lán. Umsóknarfrestur er til og með 8. marz. Nánari upp- lýsingar á skrifstofu bæjarins. >.». , Siglufirði, 2. marz 1946 O. HERTERVIG Ráðskonu og aðstoðarstúlku vanta að Hólsbúinu frá 15. maí næst komandi. Uppl. hjá bústjóranum. Sími 184. mKVNNING frá Verkamannafélaginu Þrótti, Siglufirði. Þar sem ekki hafa verið hafnar samningaumleitanir á milli Verkamannafélagsins Þróttar og atvinnurekenda hér á staðnum um kaup og kjör meðlima félagsins, gildir sami kauptaxti áfram þar til annað verður ákveðið. Þó áskilur Verkamannafélagið Þróttur sér fullan rétt til að krefjast þess, að væntanlegir kaup- gjaldssamningar gildi frá 1. marz þetta ár, og að verkamönnum verði greidd kaupuppbót á unna vínnu yfir tímabilið frá 1. marz og til þess tíma, er samningarnir verða gerðir, ef um kauphækkun verður að ræða í hinum nýju samningum, og verði sú uppbót reiknuð út eftir hverjum einstökum lið kauptaxtans, allt eftir því undir hvaða lið kauptaxtans að vinnan fellur, sem unnin liefur verið. - Siglufirði 1. marz 1946. Fyrir hönd Verkamannafélagsins Þróttar Siglufirði. Gunnar Jóhannsson Gunnl. Hjálmarsson Gísli Sigurðsson Óskar Garibaldason Guðm. Jóhannesson Dagsbrún hef ur samið Samningar hafa nú náðst milli Dagsbrúnar og Vinnuveitendafélag íslands um kaup og kjör, og er þar með lokið verkfalli því, ðem staðið hefur undanfarið í Reykja- vík. Eftir blaðafréttum eru helztu kjarabreytingar þessar. Grunnlaun í almennri dagvinnu hækka úr kr. 2,45 á klst. í kr. 2,65 og grunnkaup þeirra, sem höfðu kr. 2,75 upp í kr. 2,90. Þeir, sem stjórna stórvirkum vinnutækjum, svo sem ýtum og vélskóflum, eru- séttir í nýjan launaflokk og fá kr. 3,30 í grunkaup á klst. Mánaðar- kaup þeirra, sem vinna í pakkhús- um, svo og verkamanna á olíu- stöðvum, sem var kr. 450,00' í grunnlaun fyrstu tvö árin og því næst kr. 475 hækkar upp í kr, 500 frá upphafi. Ýmsir vinnuflokkar, sem áður höfðu 2,45 í gnunnkaup, hækka í kr. 2,90 á klst. Þá eru ýms ákvæði um aðbúnað á vinnu- stöðvum og fríðindi verkamanna. Samningurinn gildir til 1. marz 1947. ORÐSENDING TIL „SIGLFIRÐIN GS“ Það hefur aldrei staðið til að forustumenn Alþýðuflokksins hefðu með tunnusmíðina að gera í vetur. Þrír menn munu hafa spurst fyrir um það hjá Alþýðu- flokknum fyrir kosningar, hvort hann réði einhverju um tunnu- verksmiðjuna, en fengið þau svör, að Alþýðuflokkurinn hefði ekkert með slíkt að gera. Hafi flokkurinn því fengið atkvæði í sambandi við það mál, eins og „Siglfirðingur“ segir, hefur hann öðlast þau á því að segja spyrjendum satt frá mál- inu, sem og öðrum málum. Hins- vegar er „Siglfirðingi" velkomið að jórtra þessa lygasögu í bróður- legri einingu við Mjölni og sósía- lista, enda geta þeir sjálfsagt kom- ið sér prýðilega saman um tugguna ROOSEVELT (Framhald af 3. síðu) rtianna, í Norður- og Suður-Amer- íku, í VesturEvrópu og Rússlandi, Afríku, Kína og Australíu, I Ind- landi og Burma og á hinum mörgu eyjum í Kyrrahafinu, allstaðar voru menn, sem bundið höfðu vonir sínar við starf Roosevelts og vænst þess, að hans fengi að njóta við, þegar semja skyldi um hin vanda- sömustu mál að unnum sigri. Frú Roosevelt, hin mikilhæfa kona, er var stoð og stytta' manns síns á gleði- og erfiðleikaárum, sagði hljóðlátlega, þegar hún frétti lát hans til Washington: „Ég er hryggari vegna ámerísku þjóðar- innar og vegna alls mannkynsins, heídur en vegna mín og barna minna. Þetta var sannleikur. Mann kynið hafði misst góðan vin og einn þeirra mannvina, sem óþreyt- andi var að vinna að frelsi mann-- kynsins og bættum kjörum þeirra bágstöddustu, svo að unnt væri að lifa lífinu í friði og sátt, samhyggð og kærleika. — Roosevelt er dáinn, en orðstír; deyr aldregi hveim sér góðan of 'getur. Minningin um mikilmennið lifir á spjöldum sög- unnar. Þangað sækja góðir menn og batnandi, öruggt fordæmi um viljastyrk, þrek og karlmennsku, sem ásamt góðum og farsælum gáfum, var alítaf notað til þess að þoka því góða áfram, fet fyrir fet. Skammsýni samferðamannanna gerði þessa baráttu of harða og tafði fyrir skjótum árangri, en minningin vísar á fagra fyrirmynd, mikinn anda og góðan dreng. þegar um álygar á Alþýðuflokkinn er að ræða. Siglfirðingur hefði gott af því, að bera saman útkomuna hjá Sjálf stæðisflokknum og Alþýðuflokkn- um við bæjarstjórnarkosningarnar og reikna út.frá því, hver flokkur- inn sé að tapa. i

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.