Neisti


Neisti - 10.05.1946, Qupperneq 1

Neisti - 10.05.1946, Qupperneq 1
Siglufjarðarprentsmtðja 19. tbl. Föstudaginn 10. maí 1946 14. árgangur NEISTI Útgefandi Alþýðuflokksfélag Sigluf jarðar. Áby rgðarmaður: ÓLAFUR H. GUÐMUNDSSON SKILVRBI ALÞYÐUFLOKKSINS FYRIR ÞATT- TÖKU HANSINÖVERANDI RlKISSTIDRN HAFA SETT-SW SINN A STJÖRNARFRAMKVÆMDIR OG STÖRF HINS NfAFSTADNA ALÞINGIS Þegar Alþýðuflokkurinn gekk til samstarfs í núverandi ríkisstjóm, voru þeir ekki ófáir er litu til þess sámstarfs með nokkrum ugg og sumir með nokkurri tortryggni. Var það að vísu engin furða, þar sem Alþýðuflokkurinn hafði um alllangan tíma orðið að verja hend- ur sínar fyrir væntanlegum sam- starfsflokkum og standa í harðri baráttu fyrir tilverurétti sínum, sem báðir þessir flokkar vildu af- má úr pólitízkri sögu Islands. Við Sjálfstæðisflokkinn hafði Alþýðu- flokkurinn barist áratugum saman, og orðið að sækja réttmætar kröf- ur alþýðunnar í hendur þeirra sér- réttindastétta, sem löngum hafa verið kjarni þess flokks. Komm- únistaflokkurinn hafði 1930 brot- ist út úr samtökum alþýðunnar, verkalýðslegum og pólitizkum, og síðan unnið Alþýðuflokknum allt til miska, og gert ítrekaðar tilraun- ir til þess að veikja hann á allan hátt, enda oft notið til þess að- stoðar afturhaldsins, sem í komm- únistum sá langþráðan bandamann til þess að veikja samtök hins vinn- andi fólks, og baráttuvilja, og þá um leið þann flokk — Alþýðuflokk inn, sem frá upphafi hafði fylkt ís- lenzku alþýðunni til baráttu um áhugamál sín og hugðarefni. Nokkrir af hinum harðsvírustu forystumönnum atvinnurekenda- valdsins litu með velþóknun til vax andi gengis kommúnista. Þessir menn höfðu réttilega komist að raun um, að vilji íslenzkrar alþýðu stefnir ekki til einræðís eða of- beldis, heldur að því að vinna mál- um sínum fylgi á lýðræðislegan og þingræðislegan hátt. Kommúnistar fóru í fyrstu geyst af stað og komu hreint til dyra, predikuðu skefja- laust einræði og töldu það SVIK við verkalýðsstéttina að hafa nokkra samvinnu við hina borgara- legu flokka. Það varð þó ljóst, að með þessari stefnu gekk þeim illa að vinna hylli f jöldans og að litlar líkur voru til þess að þeir gætu unnið pólitízka sigra á lýðræðisleg- an hátt. Þessvegna fengu íslenzku kommúnistarnir leyfi til þess að breyta um stefnu á pappírnum og um leið um nafn. Breiddu yfir nafn og númer. Jafnframt fengu þeir liðstyrk nokkurra veiklundaðra Al- þýðuflokksmanna, sem fannst bar- áttan langvinn og erfið, og langaði í fljótunna og skjóta sigra. En jafnvel þó að kommúnistar skiptu þannig um búning var inn- rætið hið sama. Allstaðar lögðu þeir megináherzluna á, að veikja áhrif Alþýðuflokksins og fylgi hans. Hefur þetta jafnvel gengið svo langt að þeir æstustu hafa talið það höfuðtakmark vinnandi fólks á Islandi að Alþýðuflokkur- inn yrði þurkaður út. Það var því ekki að ófyrirsynju, að nokkrir báru ugg í brjósti um framtíð Al- þýðuflokksins í samvinnu við þessa ofsækendur hans. En mála sannast er þó það, að Alþýðuflokkurinn hefur vaxið af samstarfi sínu í ríkisstjórninni, hjá öllum þeim þorra íslenzkra kjósenda, sem á málin líta með þekkingu, dómgreind og viti, og láta hlutlaust mat dæma um árang ur og afrakstur. Alþýðuflokkurinn gekk inn i ríkisstjórnina með tilliti til mál- efna, og þess, hverju fram mætti koma af hugðarmálum hans og fólksins, en mat hitt minna, þó um nokkra áhættu gæti verið að ræða, að hefja samstarf við arki- féndur sína. Kommúnistar hafa oft um það talað, að ekki hafi allir verið sam- mála um það í Alþýðuflokknum að rétt væri að ganga til þessa samstarfs. Er það að vísu engin furða, þó að þeim komi það ein- kennilega fyrir sjónir að flokks- menn annara flokka skuli hafa leyfi til að láta í ljós, innan flokksins skoðun sína á málefnum og pólitízkum ákvörðunum. Það þekkja þeir ekki innan vébanda Kommúnistaflokksins. Þar er ein lína og einn vilji og vei þeim sem þar villast af réttri leið. I Alþýðuflokknum er það siður, jafngamall og flokkurinn, að félag- ar hans fái að láta í ljós álit sitt á málefnum flokksins á hverjum tíma. Meðlimirnir hafa hugsana- frelsi, skoðanafrelsi og málfrelsi. Þar fær hver að tala fyrir sinni skoðun, og að loknum málflutningi greiða menn atkvæði. Meirihluti ræður samkvæmt lýðræðisvenjum, og síðan er samþykkt meirihlutans framkvæmd. Engin lína, ekkert of- beldi. En þetta lætur fáránlega í eyrum sanntrúaðra kommúnista. Þegar samþykkt hafði verið að ganga til samvinnu um ríkisstjórn, var það vandlega rætt og íhugað á hvern hátt slík samvinna gæti orð- ið umbjóðendum Alþýðuflokksins og allri alþýðu landsins, líka þeim sem ekki höfðu við seinustu kosn- ingar kosið umbjpðendur Alþýðu- flokksins, til sem mestra hagsbóta. Að þessari athugun fenginni var ákveðið að ganga til stjórnarsam- vinnu, með eftirfarandi skilyrðum: 1. 300 miljónir króna af inneign- um bankanna í Bretlandi og Bandaríkjunum, skyldu settar á sérstakan reikning (Nýbygg- Eftir upplýsingum forsætisráð- lierra, Ólafs Thors, í útvarpsum- ræðunum síðustu, þar sem hann minntist á bræðslusíldarverðið, svo og eftir framkomnu tilboði frá Svíum, má ætla að síld á næstu vertíð, verði í miklu hærra verði en í fyrra. Svíar bjóðast nú til að kaupa 75 þús. tunnur af saltsíld á 75 kr. sænskar, og leggja til ingarsjóð), og mátti eingöngu verja þeim til kaupa á fram- leiðslutækjiun. Þar af skyldi verja 200 miljóniun til skipa- kaupa, véla og efnis til skipa- bygginga. 50 miljónum skyldi varið til véla og þessliáttar til aukningar á síldarverksmiðjum hraðfrystihúsum, NIÐUR- SUÐU- og TUNNUGERÐAR, skipasmíða o fl. 50 miljónum skyldi varið til landbúnaðarins, áburðarverksmiðju, hagnýtingu landbúnaðarafurða, jarðyrkju- véla og efnis til rafvirkjana. 2. Að sett yrðu þá á yfirstandandi Alþingi launalög í samræmi við frumvarp, sem þá lá fyrir. 3. ÁS samþykkt yrði á næsta Al- þingi svo fullkomið kerfi al- mannatrygginga, sem næði til allrar ]»jóðarinnar, án tillits til stétta og efnahags, að Island yrði á því sviði í fremstu röð nágrannaríkjanna. 4. Að samþýkkt yrði að Island gerðist aðili og þátttakandi í alþjóðavinnumálasambandinu I. L. O. 5. Endurskoðun stjórnarskrárinn- ar yrði liafin með það fyrir augum, að sett yrðu ótvíræð ákvæði um jöfn réttindi allra þegna þjóðfélagsins til atvinnu, til félagslegs öryggis, almennr- ar menntunar og jafns kosn- ingaréttar. Er hér að framan í stuttu máli gerð grein fyrir þeim höfuðskil- (Framhakl á 2. síðu). tunnur og sált. Þetta mun nálægt 30% hærra verð en í fyrra, og þó í rauninni meira, því með þessu er miðað við 95 kg. í tunnu, en 100 kg. í fyrra. Fréttir sem þessar eru gleðilegar og munu gera menn bjartsýnni á framtíöarmöguleikana fyrtr síldar- útveginum, einum okkar aðal at- vinnuveg. HÆKKAR SALTSlLDARVERDID STÖRKOSUEGA A NÆSTU VERTÍÐ ? Svíar hafa boðist til að kaupa 75 þús. tunnur, fyrir 75 kr. sænskar fob., og leggja til tunnur og salt — Er þetta um 30% hærra en sumarverðið í fyrra

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.