Neisti - 10.01.1947, Blaðsíða 3
NEI STI
S
I
*
k
I
\
/
1
t
Jóhanna Sigurborg
Sveinsdóttir
Fædd 3. marz 1925
Dáin 19. des. 1946
Þann 2. jan. s.l. var til moldar
borin Jóhanna Signrbjörg Sveins-
dóttir, dóttir hjónanna Sveins Sig-
urðssonar og Rósumundu Eyólfs-
dóttur Norðurgötu 11. Jóhanna
heitin var aðeins 21 árs, og því á
blómaskeiði lífsins, er hún var
kvödd burt. Hún ávann sér traust
og ást allra, sem kynntust henni,
fyrir glaðværð og ástúðlega fram-
komu. Hún var söngvin mjög og
hafði bjarta og fagra rödd. Alltaf
glöð og kát og því hvers manns
hugljúfi. Því var það, að marga
setti hljóða, er þeir heyrðu á
vængjum ljósvakans, andlátsfrétt
hennar. Foreldrum og systkinum
hennar svo og unnusta er djúp
sorg kveðin með burtför þessarar
góðu stúlku, en mikil huggun er
í sorg þeirra, hin fagra minning,
er allir, sem kynntust Jóhönnu
hafa um hana.
„Ást og traust þú ávannst hér
alla, sem að kynntust þér.“
t
SVERRIR PALSSON
Að kvöldi hins 21. des. s.I. flaug
helfregn um bæinn. Sverrir Páls-
son var dáinn. Alla setti hljóða.
Hann, sem var á fegursta æsku-
skeiði; hann sem hafði verið glað-
ur og heilbrigður í starfi þennan
sama dag með starfsfélögum sín-
um; hann, sem gengið hafði fyrir
stundu út úr foreldrahúsum heill
og hraustur; hann var dáinn; —
horfin á svipstundu ýfir hina
miklu móðu.
Sverrir heitinn var 16 ára
gamall. Fæddur 28. maí 1930. —
Hann var sérstaklega dagfars-
prúður unglingur og. álitlegt
mannsefni. Hann var mjög efni-
legur íþróttamaður, en skíðaíþrótt
ina lagði hann þó einna mesta alúð
við og hafði sýnt mjög eftirtektar-
verð afrek á því sviði, þó ekki
væri hann eldri en þetta. Gerðu
íþróttaunnendur sér mi'klar vonir
um framtíð hans á vettvangi íþrótt
anna.
Foreldrar og systkini höfðu aliö
sínar björtu framtíðarvonir um
hann. Foreldrarnir höfðu séð hann
vaxa í faðmi sínum að þekkingu
og manndómi. Umhyggja þeirra
fyrir velferð hans á bamsárunum
virtist ætla að bera blessunarrík-
ann árangur. Fjölhæfur og efni-
legur sonur var að verða fulltíða
maður. Bjartar og ásthlýjar vonir
foreldranna voru fullbúnar til að
fylgja prúðu ungmenni fram á
veg fullorðinsáranna, fram til
þroska og dáða. Systkini hans
horfðu björtum augum á land
framtíðarinnar, þar sem starfað
skyldi og glaðst í samfélagi við
hann. Ættingjar og leiksystkini
sáu í huganum þroskaríka fram-
tíðarbraut hans framundan.
En að kvöldi hins 21. des. hjó
dauðinn sundur allar þessar vonir
og framtóðardrauma. Hann kom
öllum að óvörum. Hann sveipaði
ungmennið hinni köldu blæju sinni,
og hjó hin dýpstu sár í föður og
móðurhjartað, og leiddi sára sorg
og söknuð inn á heimilið, sem alið
hafði ungmennið vlð brjóst sitt.
Framtíðardraumsýnirnar, sem
bundnar voru við unga manninn,
huldust tárum og ómælisþögn
dauðans.
Það er þungur harmur kveðinn
að foreldrum og systkinum og
vinum við fráfall hins unga manns
en saga og mynd 16 ára drengs er
jafnan skráð og máluð með litum
saklausrar æsku, og litir þeir
skapa fögur og margvísleg geisla-
brot í tárúðgu auga syrgjandans,
þegar setið er við hlýjar lindir
minninganna í þagnarríki hinnar
hljóðu sorgar.
Það er stórt skarð höggvið í
ungmenna og íþróttamannahópinn
hér, við fráfall þitt Sverrir! En
um það þýðir ekki að fjölyrða. Þú
ert horfinn okkur, ítur og ungur,
yfir hin huldu landamæri. Þú varst
góður og efnilegur félagi í FUJ.
Þar er þín einnig sárt saknað og
sæti þitt vandfyllt. Vertu sæll,
Sverrir Pálsson, og beztu þakkir
fyrir allt.
Vinur.
Þrettándadagsfagn-
aður á Hvanneyrar-
skálar-brúninni
Þrettándadagskvöld um hálf níu
leytið uppljómaði Hvanneyrar- ■
skálar-brúnin skyndilega og var
upplýst af 32 blysum. Vegurinn
niður úr skálinni var varðaður
litlum blysum. Var þetta fögur og
tignarleg sjón.
í fyrstunni hélt almenningur að
þarna væru á heimleið einhverjir
jólasveinar, en svo var ekki. —
Nokkrir starfsmenn Síldarverk-
smiðja ríkisins, aðallega úr S.R.’30
óg SRN undir forystu Guðmundar
Einarsson voru þarna á ferðinni,
en ekki jólasveinarnir.
Þetta frumlega tiltæki þeirra fé-
laganna hefur án efa verið kostn-
aðarsamt og krafist nokkurrar
vinnu og eiga þeir því fyllsta þakk
læti skilið fyrir frammistöðu sína.
Hafið þökk fyrir skemmtunina.
Jólasveinn
■ • ■*■-*'* "'■V’H ví'.f|pp.
Siglfirzkir skíðamenn
fara utan
Iþróttabandalag Siglufjarðar
hefir ákveðið að senda utan til
náms og þjálfunar í skíðaíþrótt-
inni, þá Harald Pálsson, Ásgrím
Stefánsson, Jón Þorsteinsson, og
Jónas Ásgeirsson og ef til vill
fleiri.
Einnig kemur til greina þáttaka
í Holmenkollenmótinu 1947; en
það er fimmtugasta Holmenkollen-
mótið og er fullvíst, að Isiand
verður boðin þátttaka í því.
Öllum Siglfirðingum er enn í
minni utanför þeirra Haraldar
Pálssonar og Jónasar Ásgeirssonar
í fyrra og hin ágæta frammistaða
þeirra þar.
Nú verða Siglfirðingar að bregð
ast vel við og veita nauðsynlega
peningahjálp, hver eftir sinni getu
og mun verða komið til þeirra með
fjáröflunarlista næstu daga. Sigl-
firðingar mega ekki láta sinn hlut
verða lakari en Akureyringa og
Reykv'ikinga.
Látum öll eitthvað af hendi
rakna.
TIL LESENDA
Blaðinu hefir borizt fjöldi
áskorana um að taka til birtingar
bréf og fyrirspurnir. Blaðnefndin
vill verða við þessum áskorunum,
að svo miklu leyti, sem rúm Neista
leyfir, og hefir fengið „Þórð
Þögla“, til þess að sjá um rit-
stjórn á bréfa- og spuminga-dálki
í blaðinu.
Blaðnefnd Neista
Blaðnefnd Neista hefir óskað
þess, að ég veitti móttöku bréfum
og fyrirspurnum, sem blaðinu ber-
ast, varðandi daglegt líf og störf,
með það fyrir augum, að birta þau
ásamt athugasemdum og svörum
ef ástæða þykir til.
Eg hefi nú ákveðið að verða við
þessari ósk, þvi ég hefi lengi talið,
að í Neista ætti að vera dálkur,
þar sem birt væri hitt og þetta frá
„Pétri og Páli“ — og engu síður
frá „Siggu og Gunnu“ — um það,
sem þeim finnst aflaga fara hér
hjá okkur, eða tillögur þeirra um
dægurmálin, athugasemdir þeirra,
ráðleggingar o.s. frv.
Þar sem ég hef færst þetta í
fang, væri mér kærast að fá sem
atlra flest bréfin — sæg af bréf-
um. Alveg sérstök ánægja væri
mér að því að fá mörg bréf frá
blessuðu kvenfólkinu, bæði vegna
þess, að ég hef alltaf gaman af að
fá bréf frá kvenmanni, og svo
hef ég grun um það, að það kunni
að vera æði margt, sem kvenfólkið
hefði ástæðu til að gera athuga-
semdir við. Tillögur þess met ég
mikils, því þó það sé haft að orð-
taki, að „köld eru jafnan kvenna-
ráð“, hefir mér reynzt annað.
Bréfin og fyrirspurnimar verða
heÞt að vera sem stytzt, eða í
„samanþjöppuðu formi“. Mun óg
birta hvorttveggja undir dulnefni
ef þess er óskað, en því aðeins
verða þau birt, að ég viti hið rétta
nafn sendanda. Það fer ekki
lengra.
Að endingu vil ég svo aðeins
taka það fram, að ég get lesið
svo að segja hvaða hrafnaspark
sem er, og réttritunina sjáum við
Eiríkur um, ef henni kynni að
vera eitthvað ábótavant. — Ykkar
er að skrifa.
Þórður Þögli
Pósthólf 86»,
Siglufirði.
NlRÆÐ
Á morgun á Vilborg Þorleifs-
dóttir, til heimilis í Suðurgötu 37,
níræðisafmæli. Vilborg er fædd 11.
janúar 1857 að Stórholti, Holts-
hreppi í Fljótum. — Foreldrar
hennar voru Þorleifur Þorleifsson
bóndi og Þuríður kona hans, en
Þorleifur var bróðir Björns í Vík
og þeirra systkina. Er Vilborg var
fjögra ára drukknar faðir hennar.
Bróðir Vilborgar var Bessi gamli,
skipstjóri, sem er dáinn fyrir
nokkrum árum og margir af hin-
um eldri Siglfirðingum kannast
við.
Ung giftist Vilborg Gísla Gísla-
syni og bjuggu þáu lengi að Bakka
í Austur-Fljótum og eignuðust
7 börn. Þrjú þeirra eru á lífi, þau
Jón, til heimilis í Suðurgötu 37,
Guðlaug til heimilis í Suðurgötu
26 og Kristrún til heimilis í ólafa-
firði. Árið 1897 missti Vilborg
mann sinn Gísla. Árið 1924 fluttist
hún hingað til Siglufjaróar og
hefur síðan dvahð lengst af hjá
syni sínum Jóni Gíslasyni.
Vilborg ber hinn háa aldur vel
og fylgist vel með öUu, sem gerist
í kringum hana. Neisti óskar a-f-
mælisbarninu til hamingju með
morgundaginn með von um, að
hinir komandi dagar megi verða
henni bjartir og ánægjulegir.
DOMUR
féll fyrir jól í öðru af tveimur
málum Erlendar Þorsteinssonar
gegn Ásgrími Albertssyni, út af
meiðyrðunum í Mjölni 23. jan. s.l.
í greininni: „Hversvegna er Er-
lendur Þorsteinsson andvigur
byggingu niðursuðuverksmiðju ?“
Meiðyrðin voru dæmd dauð og
ómerk og rétt að birta dóminn í
opinberu blaði á kostnað Ásgríms;
hann er dæmdur í 600 kr. sekt
fyrir þau í ríkissjóð og í 2000 kr.
hneisubætur til Erlendar og auk
þess í 581 kr. málskostnað.