Neisti


Neisti - 05.09.1947, Side 4

Neisti - 05.09.1947, Side 4
4 NEISTI Ætla nazistarnir í Sjálfstæðisflokknum að gera bandalag við kommúnista ti að „útrýma" Aiþýðu- og Framsóknarflokknum ? Nazistapeðið Stefán Friðbjarnarson boðar þetta í ávarpi, sem hann flutti á skemmtifundi F.U.S. og birtist í 15. tbl. Siglfirðings. Hér í Sig'lufirði kemur engum það á óvart þótt nokkrar ,,fínar“ taugar séu milli kommúnistanna og hins einræðissinnaða hluta Sjálf stæðisflokksins. Allir muna hina nánu vináttu og baktjaldamakkið, sem á sinni tíð var á milli Herter- vigs-liðsins og kommúnista. Þá gleyma menn ekki heldur hinum tíðu launfundum, sem átt hafa sér stað milli Kjartans Friðbjarnar- »onar og Þórodds Guðmundssonar, sennilega jöfnum höndum í sam- bandi við verzlun og pólitik. Hinir hyggnari meðlimir Sjálfstæðis- flokksins og þeir þeirra, sem lýð- ræðí unna hafa þó fordæmt þessa samvinnu og samhug. Nú um skeið hafa einræðisöflin aftur orðið ofan :á í FUS, Siglufirði. Að vísu hafa verið smá hnotabit milli þeirra og kommúnistanna, en sennilega er það gert til þess að dylja samvinnuna, sem þessir aðilar vilja og þrá að komist á þeirra í milli. En bert kemur í ljós hvert stefnt er þegar lesið er ávarp það, er Stefán Frið- bjarnarson flutti 24. ágúst. s. 1. Neikvæð eða jákvæð barátta. Það hefur jafnan þótt harla lítil háttvísi að veitast með dylgj- um eða ósönnum áburði að félög- um eða einstaklingum á þeim vett- vangi, þar sem viðkomandi ekki gefst kostur á að svara til saka. Þetta lætur þó Stefán Friðbjarn- arson sér sæma í nefndu ávarpi. Ihugun hans um stjórnmálaval æskumannsins er réttmæt. En á val æskumannsins að byggjast á neikvæðum upplýsingum um við- •komandi flokk, upphrópunum, röngum ásökunum, eða því hver eru stefnumál flokksins, og hverju hann hefur áorkað? Vissulega á val æskumannsins að byggjast á þvi sem jákvætt er. Að fara með fleypur og draga fram einungis það, sem að áliti þess sem hlutina segir, er gagnlaust, andstyggilegt og jafnvel svivirðilegt, bendir á þvílíkan sora í hugsunarhætti, að velhugsandi manni hlýtur að blöskra að æskumaður skuli geyma þv’ílíka hugsun, og ekki fyrirverða sig fyrir að birta hana. En einmitt ávarp Stefáns sýnir, að enn er við lýði á íslandi, hugs- unarhátturinn, sem allar þjóðir hafa fordæmt seinustu árin. Hugs- unarhátturinn um að upphrópan- irnar dugi. Fullyrðingar og skamm aryrði. Þeim flokkum, sem lýð- ræði unna, beri að útrýma, en þeir tveir, sem að einræði hníga eigi að lifa og berjast um völdin. Það er þetta, sem gerðist í Þýzkalandi áður en nazistar komust til valda. Kommúnistar og nazistar voru ein- att sammála um það að vinna sam- an gegn þýzka Sósíaldemókrata- flokknum, þó að þeir væru ekki sammála um neitt annað. Og nú á, að dómi Stefáns, að útrýma Al- þýðuflokknum, sem einn allra flokka hefur þorað, -án nokkurrar hræðslu eða undanlátssemi, við sigurför nazistanna í byrjun styrj- aldar, að láta í ljósi fylgi sitt við lýðræðið og ósk um sigur þess. Að vísu mætti spyrja Stefán: Var það nauðsynlegt að tala svona illa, svívirða og sverta Alþýðuflokkinn og Framsóknarflokkinn, til þess að ungir menn og konur, gætu komið auga á þá hugsuðu yfirburði Sjálf- stæðisflokksins, sem þeir félagar vilja vera láta ? Ja, mikið má Sjálf- stæðisfl. vera aumur!! ef þessar aðferðir þarf með að afla honum fylgis. Hverju hafa flokkarnir komið til leiðar og hver er stefnia þeirra? Ofanritaða spurningu hlýtur hver hugsandi maður að leggja fyrir sig, ef hann ætlar að velja milli flokka. Enginn skyniborinn maður byggir ákvarðanir sínar á því, hver hrópyrði eru um hönd höfð eða hvort einhverjum and- stæðingi detti í hug að kalla þenn- an eða hinn lélegasta flokkinn. Þessvegna hlýtur spurningin að verða sú,' hverju hefur Alþýðu- flokkurinn áorkað seinustu 30 árin. I þessari litlu grein gefst ekki tækifæri til þess að rekja þau um- bótamál til neinna hlýta, eða held- ur að grandskoða afstöðu Sjálf- stæðisflokksins — sem reyndar hefur heitið mörgum nöfnum á því tímabili — til umbótamálanna. En minnst skal aðeins hér á örfá stór- mál: Afnám sveitaflutninga, lög um hvíldartima sjómanna á botn- vörpuskipum, rýmkun kosninga- réttar niður í 21 árs aldurs, Slysa- tryggingarlögin, orlofslögin, skipu- lagningu afurðasölunnar, Alþýðu- tryggingarlögin og yfirleitt aliar þær stórkostlegu félagslegu um- bætur, sem gerðar hafa verið hin seinustu ár. En hver hefur verið yfirleitt á hverjum tíma afstaða Sjálfstæðisflokksins til þessara mála? YFIRLEITT NEIKVÆÐ. Og á móti mörgum þessum um- bótamálum hefur Sjálfstæðisflokk- urinn barizt með oddi og egg. I ágætri grein, sem hinn aldni frum- herji alþýðusamtakanna, Svein- björn Oddsson frá Akranesi, ritaði nýlega og birtist í þessu blaði, var bent á óheilindi Sjálfstæðismanna í þessum efnum, andstöðu þeirra áður fyrr, en breytingu, sem orðið hefur á hinum síðari árum. Það er skiljanlegt að Stefáni Frið- bjarnarsyni finnist sárt að hugsa til þessa, og þyki fyrirhafnarminna að strika yfir allt, sem fortíðin hefur að geyma, en afgreiða Al- þýðuflokkinn aðeins með yfirborðs mennsku og oflætishætti, sem „fylgisminnsta, og lítilfjörlegasta stjórnmáiaflokkinn.“ En stórmann legt er það ekki, og bendir ekki á sannleikselskandi sál, sem leitar að þvi rétta, heldur á pólitískan oflátung, sem þegar hefur skipað sér sess í stjórnmálunum og ætlar að vinna stóra vinninga með upp- hrópunum og slagorðum, sam- kvæmt þekktum en lítt virtum fyrirmyndum úr stjórnmálaheim- inum. Það hefur oft áður verið reynt að vega Alþýðuflokkinn með orðum. Hingað til hefur það ekki tekizt, og það tekst ekki heldur, þótt kommúnistum berist nú liðs- styrkur frá hugsanabræðrum sín- um innan Sjálfstæðisflokksins. Hversvegna fara rangt með? Tvennt nefnir Stefán í ávarpi sínu, sem á að vera til lasts Al- þýðuflokknum. Annað er útvegun rólegra! embætta til handa flokks- mönnum og hitt er að Alþýðuflokk urinn hafi verið á móti stofnun Lýðveldisins 1944, en þá kom hinn allsbjargandi Sjálfst.fl. og tók for- ystuna. Hvorttveggja er rangt. Er hér með skorað á Stefán að sanna ágang Alþýðuflokksins umfram aðra flokka í rólegar stöður eða opinber embætti, og það án verð- leika þeirra manna, er embættin hafa hlotið. Staðreyndir eru fyrir hendi um allt að þvi tilbúning oþinberra embætta, ef á hefir þurft að halda fyrir flokksmenn annara flokka. Frásögnin um að Alþýðu- flokkurinn hafi barizt gegn lýð- veldisstofnunninni er alröng, en um undirlægjuhátt við Dani ætti enginn Sjálfstæðismaður að tala hátt, forsaga flokksins í þeim efn- um er of kunn. Alþýðuflokkurinn vildi að skilnaðurinn við Dani færi fram lögum samkvæmt, og sam- kvæmt lýðræðislegum venjum og viðskiptum þjóða í milli. Þessa sömu afstöðu tók fjöldi af beztu *, og mestmetnu mönnum þjóðarinn- ar, án nokkurrar afstöðu til póli- tískrar flokkaskiptingar. Enda átti þetta mál að vera og var hafið yfir allar flokksskiptingu, þó að minniháttar spámenn Sjálfstæðisfl. hafi viljað gera það að flokksmáli. Þessi stefna, hinna ýmsu mætu ♦ manna, sigraði. Með stofnun lýð- veldisins og skilnaðurinn við Dani, var farið að þeim hætti, sem þjóð- inni varð til sóma. Og það var gert með fullum stuðningi Alþýðufl., og sú eina undantekning, sem var um mann. sem er í Alþýðuflokkn- um, var gegn vilja flokksins. — Þetta er svo kunnugt og ný- lega um garð gengið, og því mesta furða, að þessi sjálfkjörni forystu- maður FUS, skuli leyfa sér svo grófa fölsun staðreynda sem hér á sér stað. Sýnir það, að ekki er svifizt að beita því vopninu, sem óvönduðum hefur þótt vel duga hingað til. En Stefán Friðbjarnar- son ætti að athuga hverjir það 1 voru af þáverandi alþingismönnum og hvar þeir voru í flokki, sem gerðu þjóð sinni það til vansa, á stofnhátíð lýðveldisins, að taka ekki þátt í forsetakjörinu. Það kynni þá að fara svo, ef hann er sannur sjálfstæðismaður, að blett- ur kynni að falla á þá flokka, sem honum þóknast að telja ekki „lítil- fjörlega.“ Til vamaðar Ávarp Stefáns, sem gert hefur verið að umtalsefni, ætti að geta orðið þeim til varnaðar, sem vilja taka þátt í pólitik eða umræðum um stjórnmál á þann hátt, sem sæmir siðuðum mönnum í lýðræðis þjóðskipulagi. Vegurinn til þess, að gera stjórnmálin sæmilega heiðar- leg, er ekki sá, að ráðast með hróþ yrðum og heiptyrðum að þeim, er ekki eru til staðar, eða fara með rangt mál og kveða upp sleggju- dóma, en það er vegurinn til þess að draga íslenzk stjórnmál enn dýpra ofan í sorpið en þau nú eru, og mun þó mörgum finnast sízt á bætandi. TIL SÖLU Hvít emeleruð KOLAELDAVÉL Afgreiðslan vísar á. STOLKA óskast í vist á gott heimili á Akur- eyri næstkomandi vetur. Upplýs- ingar gefur Helgi Danielsson, Laugarvegi 27, Siglufirði.

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.