Neisti - 11.10.1947, Síða 1
Ábyrgóarmaður:
ÓLAFUR H. GUÐMUNBSSSON
Sigluf jarðarprentsmiðja h. f.
21. tbl. Laugardagiiui 11. okt. 1947
15. árgangur.
Skömmtunin
þessu atriði brýn nauðsyn breyt-
ingar á skömmtunarfyrirkomu-
laginu, þótt aldrei væri nema fólki
yrði það í sjálfsvald sett, hvort
það vill kaupa efni eða tilbúinn
fatnað út á fatnaðarskammtinn. —
Márgar konur sauma sjálfar, og
mun þykja það mjög óhagkvæmt
að verða að kaupa tilbúinn fatnað
fyrir sig og börnin. Þá fer það og
heldur ekki leynt, að benzín-
skammturinn þykir lítill og er það
að sjálfsögðu sérstaklega tilfinn-
anlegt fyrir atvinnubílstjóra, ef
benzínskammtur þeirra reynist svo
lítill að verulegt atvinnutjón hljót-
ist af fyrir þá og mætti víst að
raunalausu minnka enn benzín-
skammtinn við eigendur lúxusbíl-
anna, ef hægt væri á þann hátt að
afstýra því.
Skömmtunin, sem framkölluð er
af svo alvarlegum gjaldeyrisskorti
sem þeim, er við eigum nú í bili við
að stríða, verður að sjálfsögðu
aldrei framkvæmd án þess, að
ýmis óþægindi hljótist af. En því
meira er þá — þegar litlu er úr að
spila — undir því komið, að út-
hlutun þeirra birgða, sem til eru,
(Framhald á bls. 3)
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun
'sína ungfrú Herdís Guðmunds-
dóttir, skrifstofumær og Páll Páls-
son skipstjóri. Neisti óskar hjóna-
efnunum til hamingju.
Fimmtugsafmæli.
Frú Freyja Jónsdóttir, Suður-
götu 49, átti fimmtugsafmæli 22.
sept. s.l. Neisti flytur þessari
ágætu alþýðulkonu hugheilar ham-
ingjuóskir með afmælið og fram-
t'íðina.
Silfurbrúðkaup.
Þann 8. þ.m. áttu þau hjónin
Þórunn Sveinsdóttir og Jakob
Einarsson, bólstrarameistari, Laug
arveg 12, 25 ára hjúskaparafmæli.
Neisti flytur silfurbrúðkaupshjón-
unum beztu hamingjuóskir.
Andlátsfregn.
Þriðjudaginn 30. sept. s.l. varð
Marvin Lárusson verkamaður
bráðkvaddur. Marvins mun verða
nánar minnzt í næsta blaði.
Stjómmálaskúmum kommúnista illa tekið
Viðskiptanefndin hefur nú ákveð
ið skömmtun á ýmsum vöruteg-
undum, og gekk hún í gildi við
síðustu mánaðarmót. Skömmtun-
in er eðlileg afleiðing þess, að
gjaldeyristekjur okkar eru nú til
þurrðar gengnar. 1 ágústmánuði
s. 1. átti þjóðin ekki nema rúmar
30 millj. króna í erlendum gjald-
eyri úr að spila til áramóta, en
Vetrarstarf F.U.J.
að hefjast
Félag ungra jafnaðarmanna
hóf vetrarstarf sitt í gærkvöldi
með fundi í Gildaskálanum.
Síðasthðinn vetur hélt félagið
uppi öflugri félagsstarfsemi, enda
hefur félagið ágætum starfskröft-
um á að skipa. Ungir jafnaðar-
menn í Siglufirði eru nú ákveðnir
að auka starf sitt í haust og kom-
andi vetri, enn meir en áður.
Hugsjónir jafnaðarmanna geta
skapað öllu fólki bjartari framtíð
ef þær fá að rætast. Fram til starfs
og baráttu fyrir þeim, siglfirzk
æska!
Miikill kv'iði er meðal verka-
manna í bænum um atvinnuleysi
hér í haust. Vegna aðgerðar
stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins,
gengur hópur verkamanna at-
vinnulaus þessa daganna. Annars
er mikil vinna í bænum við íbúðar-
húsa-byggingar, útskipun síldar,
og hjá bænum, en þrátt fyrir þessa
vinnu eru slæmarhorfurfyrir nóga
atvinnu hér í haust. Á slikum tím-
um dýrtíðar og verðbólgu er það
fljótt að segja til sín á heimilum
verkamanna, hvað stuttan tíma
sem fyrirvinnan er atvinnulaus.
venjulegur innflutningur á þeim
tíma hefur numið um 170 milljón-
um króna. Þá getur engum bland-
azt hugur um það, að mjög rót-
tækar skömmtunarráðstafanir
hafi verið nauðsynlegar til þess að
spara erlendan gjaldeyri og
tryggja það að hver og einn fengi
sinn skerf af þeim litlu vörubirgð-
um, sem um verður að ræða í
landinu til áramóta.
Það er almennt viðurkennt, að
skömmtunin á-maltvælum — korn-
vorum og sykri — sé rífleg, en
kaffiskammturinn mætti vera
meiri, sérsaklega til blessaða
gamla fólksins. Mestri gagnrýni
sætir skömmtunin á fatnaði. vefn-
aðarvöru og búsáhöldum. Þykir
hún að vonum bæði kröpp og að
ýmsu ekki heppileg. Erfitt mun
fyrir margan erfiðismann, sem
slítur miklum skófatnaði og vinnu-
fatnaði, að komast af með skammt
inn á þessum vörum og þarf að
breyta þessu.
Mjög bagalegt mun og kvenþjóð-
inni þykja það, að geta ekki keypt
sér efni í kjól vegna þess, hve lítill
vefnaðarvöruskammturinn er og
verða í þess stað að kaupa dýra,
tilbúna kjóla, og þá meira að segja
tvo í einu á sama stað. Virðist í
Atvinnumálanefndir þær, sem
starfa eiga á vegum bæjarins og
Verkamannafél. Þróttar verða nú
þegar að hefja samstarf til at-
hugunar á atvinnuhorfum í haust
og komandi vetri.
Leita þarf upplýsinga hjá öllum
atvinnurekendum í bænum um at-
vinnu á vegum þeirra. T. d. þeirra,
sem eiga hraðfrystihús — Síldar-
venksmiðjunum og fl. — Neisti
mun hlutast til um, að siglfirzkum
verkamönnum gefist kostur á því,
að fylgjast vel með þv'í, sem gerist
í þessum málum.
Umferðapredilkarar kommúnista
hafa verið í yfirreið um landið að
undanförnu. Áki þingmaður okkar
Siglfirðinga hefur tekið þátt í þess-
um predikunum. Fyrir stuttu hélt
hann fund á ísafirði og hafði sér
til aðstoðar Hauk Helgason. Er
þeir kumpánar höfðu lokið ræðum
sínum, kvaddi sér hljóðs Helgi
Finnbogason verkamaður þar og
veitti Áka maklega hirtingu fyrir
framkomu hans og annarra
kommúnista að undanförnu. Síðar
á fundinum töluðu Bjarni Guð-
mundsson sjómaður og Maris Þor-
valdsson sjómaður, og deildu þeir
mjög á Áka og stefnu hans í dýr-
tíðarmálunum. Áka varð svarafátt
og er Maris kvaddi sér hljóðs í
annað sinn, kvað Áki, að það væri
orðið svo framorðið og sleit fund-
inum í flýti.
Næsta dag boðuðu þeir félagar
til fundar í Bolungavík, en á þeim
fundi lýsti Áki yfir því, að engar
almennar umræður yrðu, svo að
fundarmenn fengu ekki málfrelsi.
Áki var ekki lengur til viðræðna
við sjómenn og verkamenn vestur
þar, og' fannst mönnum lítið koma
til kappans. Svipaða sögu er að
segja frá öðrum þeim fundum, sem
umferðapredikarar kommúnista
hafa haldið úti á landsbyggðinni,
t.d. má geta þess, að á fundinum,
sem Þóroddur verkamaður og séra
Sigfús héldu í Hofsós, mættu tveir
menn, á Blönduósi 8 og Sauðárkr.
17. Islenzk alþýða er gripin kulda
til þessara manna ,sem svíkjast af
hólmi, þegar mest ríður á. Nú er
kominn tími fyrir þá menn ,sem
eru sannir sós'ialistar í Sósíalista-
flokknum að taka fram fyrir hend-
ur á réttlínu-kommúnistum. Nú
er þörf á samstarfi allra sona og
dætra íslenzku þjóðarinnar, en ekki
sundrung og illindi.
Hvora leiðina velur Sósíalista-
flokkurinn?
1 gær fóru bæjarstjóri og Eyþór
Hallsson til Kvíkur vegna væntan-
legrar komu togarans þangað uni
miðja næstu viku.
Hætta á atvinnuleysi
Atvinnumálanef ndir verkamannafélagsins og bæjar-
ins verða nú begar að taka til starfa.