Neisti - 11.10.1947, Blaðsíða 4
4
NEISTI
Trúðar í íslenzkum stjórnmálum
Kommúnistar liér í Siglufirði
gefa út gamansamt blað vikulega.
Gamansemi blaðs þessa birtist að-
allega í stórum fyrirsögnum yfir
innantómum greinum.
Ritstjóraskipti eru tíð við blaðið,
enda erfitt að hafa ritstjórn blaðs-
ins á hendi, því aö alltaf er verið
að breyta um „línur“ og stangast
á við staðreyndir. Sérstaka lipurð
þarf ritstjórinn að ha'fa við það að
snúa við staðreyndum og sann-
indum eins og ritstjórar annara
kommúnistablaða, — tileinka sér
baráttuaðferðir — slíkar, sem
þýzkt kommúnistablað lýsti einu
sinni þannig:
„Að nota lygina sem baráttutæki,
eins og kommúnistar gera í dag-
blöðunum, það er ekki að ljúga —
það er bláköld nauðsyn —“
Hlutverk núverandi ritstj. Mjölnis
Síðan kommúnistar urðu utan-
gátta við myndun núverandi ríkis-
stjórnar, hafa þeir hagað sér líkt
og ölóðir menn. Þeir hafa farið í
smiðju til hvers annars til þess að
framleiða róg, blekkingar og á-
lygar á núverandi ríkisstjórn
landsins, þegar mest ríður á sam-
starfi og einingu íslenzku þjóðar-
innar. Aðal stjórnarandstöðu sína
byggja þeir á ósvífnum blekking-
um og lygum um afurðasölumálin,
er þeir láta blöð s'in birta með
stórum fyrirsögnum, svo sem
Mjölnir er út kom 1. okt. s. 1. Þar
gat m. a. að líta eftirfarandi undir-
fyrirsögn: „Það er staðreynd, að
hægt er að selja útflutningsvörur
landsins fyrir miklu liærra verð en
nú er gert. Það er eininig stað-
reynd, að ríkisstjómin forðast við-
skipti við beztu mark;aðslöndin.“
(leturbr. Neista).
Hlutverk ritstjórans er svo að
sníða grein eftir þessari fyrirsögn
og sannfæra lesendur blaðsins um
að t. d. Rússland vilji kaupa ís-
ienzkar afurðir „miklu hærra verði
en nú er gefið“ eða að ríkisstjórn-
in forðist viðskipti við beztu mark-
aðslöndin, svo sem Rússland. —
Hvernig ritstjóranum tekst að fara
með hlutverk þetta verða lesendur
að dæma eftir þeim staðreyndum,
sem eru fyrir hendi um þetta.
Voniraar um mikla afurðasölu til
Rússlands.
Fyrir hér um bil ári síðan báru
kommúnistar það út, að hægt væri
að selja meiri hluta sjávarafurða
okkar til Rússlands. Kom þetta
m.a. fram hjá nefnd þeirri, sem
Áki skipaði í byrjun þessa árs,
skömmu áður en hann hrökklaðist
úr r'ikisstjórninni. Nefndin átti að
áætla útflutningsmagn og útflutn-
ingsverð á sjávarafurðum í ár. —
Gerði nefndin tillögur um að reynt
yrði að selja Rússlandi hvorki
meira né minna en 75% af allri
saltfiskframleiðslunni, 50% af ís-
fiskinum, allt að 20,000 tunnur af
grófsöltuðum hrognum, allt að
1500 smálestum af hraðfrystum
hrognum, allt að 1500 smálestum
af hraðfrystum þunnildum, allt að
3000 smálestum af hraðfrystri síld,
allt að 3000 smálestir af ísaðri síld,
allt að 30,000 tunnum af saltaðri
Faxa- og Austfjarðarsíld og allt
að 250 smálestir af harðfiski.
Vonirnar, sem brugðust
Strax og núverandi ríkisstjórn
settist að völdum skipaði hún
fimm manna nefnd til þess að'
fara í austurveg til samninga við
Rússa. Það leið ekki á löngu eftir
a.ö-. samnjnganefndin var komin
austur til Moskva í febrúar, þar til
hinar kommúnistísku blekkingar
um mikla söluhorfur austur þar
voru reknar út í veður og vind.
Er skýrsla sú, sem samninganefnd-
in lagði fram eftir heimkomu sina
undirrituð af sérfræðingi komm-
únista í utanríkisviðskiptum, Ár-
sæli Sigurðssyni meðal annara ó-
rækust sönnun þess. Þar segir: „f
fyrstu tóku þeir (þ.e. Rússar) því
ekki alveg f jarri að kaupa salt-
fisk, en nefndu firna lágt verð,
235 dollara fyrir smálestina- Þá
var það sagt enn til athugunar,
hvort þeir hefðu yfirleitt áhuga
fyrir kaupum á þessari vöru. Loks
er ákveðið svar fékkst var það
þvert nei.‘‘ (leturbr. hér).
Á sama hátt fór um flestar þær
afurðir aðrar, sem boðnar voru —
ísaðan fisk, ísaða síld,' hraðfrysta
síld, hraðfryst hrogn, hraðfryst
þunnildi, harðfisk og Austfjarða-
s'íld. — Sölumöguleikarnir á þess-
um vörum austur í Rússíá reynd-
ust heilaspuni einn'. Samningar
náðust aðeins um sölu á allt að
15000 smálestum af síldarlýsi, allt
að 10,000 smálestum af hraðfryst-
um fiski, þó svo aðeins að Rússar
fengju með hverri smálest af hon-
um, hálfa aðra smálest af síldar-
lýsi, eins og oft hefur verið sagt
frá. Ennfremur var Rússum selt
1000 tunnur af Norðurlandssíld og
2500 smálestir af þorskalýsi. Þess-
ar staðreyndir eru á annan veg en
Mjölnir vill vera láta, er hann segir
að ríkisstjórnin „forðist viðskipti
við beztu markaðslöndin.“
Kommúnistanum Ársæli Sigurðs-
sjtií stefnt gegn staðrejuidum
Mjölnis. — „Það er staðreynd, að
hægt er að selja útflutningsvörur
landsins fyrir miklu hærra verð en
nú er gert.“ (Mjölnir 36. tbl. 1947).
Það reyndist ekki alveg eins létt
og kommúnistar höfðu talið mönn-
um trú um, að fá hjá Rússum það
háa verð fyrir afurðirnar, sem við
þörfnuðumst. í skýrslu samninga-
nefndarinnar segir frá þvi, að mik-
ið hafi verið þjarkað um verðið á
hraðfrysta fiskinum og hefði Rúss-
um verið á það bent,.hve nauðsyn-
legt Islendingum ,það væri, vegna
ríkisábyrgðarinnar á fiskverðinu
að fá tilskilið verð fyrir hann. Um
þetta segir svo í skýrslu samninga-
nefndarinnar, sem undirrituð var
m.a. af Ársæli Sigurðssyni fyrrv.
form. Sósialistafélags Reykjavík-
ur, en hann er sérfræðingur komm
únista í utanríkisviðskiptum: —
„Ekki hafði þetta mikil áhrif á
viðsemjendur okkar. Þeir sögðu
sem góðir kaupmenn, að þeir gerðu
kaup j>ar, sem þau væru hagkvæm-
ust. Við yrðum að vera samkeppn-
isfærir um verð, ef við viklum
selja. Verðlagsmál á Islandi þótti
þeim vera vandi stjórnar okkar en
ekki ráðstjórnarinnar í Moskvu!“
(Leturbr. hér).
Þetta, sem kommúnistinn Ársæll
Sigurðsson og félagar hans hafa
eftir viðskiptafulltrúum Rússa er í
fullu samræmi við algild viðskipta-
lögmál þjóða á milli og er þv'i ekki
sett hér fram Rússum til hnjóðs,
heldur til þess að sýna þann skrípa
leik, sem stjórnmálaskúmar komm )
únista leika þessa dagana,
Pólitískir trúðar
Við lestur þessárar greinar og
samanburður á því, sem Mjölnir
kalla staðreyndir í afurðasölumál-
unum, kemst lesandi í raun um
hverskonar mönnum hinn svo-
kallaði Sósíalistaflokkur — Sam-
einingarfl. alþýðu — hefur á að
skipa. Kommúnistar eru orönir upp
vísir að því, að hafa haft i frammi
við þjóðina svívirðilegar blekking-
ar enda andar kalt til þessara
manna frá alþýðu þessa lands, því
að þeir hafa sýnt að undanförnu,
að þeir láta hag eigin þjóðar í
léttu rúmi liggja. Þeir eru trúðar '
í íslenzkum stjórnmálum.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
systur okkar
AÐALHEIÐAR TÓMASDÓTTUR
F.h. ættingja
Sigurlaug Tómasdóttir
Kristján Tómasson
Stórmerkur skóla-
maður hættir störfum
Sigurður Guðmundsson, skóla-
meistari við Menntaskólann á
Akureyri hefur fengið lausn frá
embætti frá 1. des. n.k. að telja.
Hinir fjölmörgu Siglfirðingar, er
stundað hafa nám við Mennta-
skólann á Akureyri, standa í mik-
illi þakkarskuld við Sigurð skóla-
meistara og konu hans, frú Hall-
dóru Ölafsdóttur. Um aldarfjórð-
ungsskeið hefur Sigurður skóla-
meistari stjórnað skólanum af mikl
um skörungsskap, svo að seint
mun sæti hans skipað. Hinir fjöl-
mörgu Siglfirðingar, er átt hafa
börn sín undir handleiðslu þeirra
skólameistarahjóna munu minnast
þeirra með virðingu, er seint
fyrnist.
Emailleraðir
Pottar
Kasserollur
Bakkar
mjög ódýrt.
Hannes Jónasson
Öruggt fyigi brezku
jafnaðarmanna-
stjórnarinnar
Tuttugu aukakosningar hafa
farið fram í Bretlandi síðan brezki
Alþýðuflokkurinn vann stórsigur
sinn 1945 og hefur hann unnið þær
allar. Þess eru engin dæmi fyrr á
Bretlandi, að stjórnmálaflokkur
hafi reynzt svo sigursælLí auka-
kosningum. Venjan hefur verið, að
stjómarandstæðingum veitti betur x.
í þeim. Franskur fréttaritari hefur
látið þau orð falla, að slíkir kosn-
ingasignar brezku Alþýðuflokks-
stjórnarinnar bæru vott um mikla
lýðhylli hennar.
HROSSAKJÖT
verður selt í sláturhúsinu
í dag og, til næsta þriðju-
dagskvölds.
Kjötbúð Siglufjarðar