Neisti


Neisti - 25.10.1947, Side 1

Neisti - 25.10.1947, Side 1
NEISTÍ tJtgefandi Aiþýðuflokksfélag Siglufjarðar Ábyrgðarmaður: ÓLAFUR H. GUÐMUNDSSSON Sigluf jarðarprentsmiðja li. f. 22. tbl. Laugardaginn 25. okt. 19'/7 15. árgangur. 'V Siglfirdíngar fagna komu Ellida Er fram líða stundir mun 19. okt. marka tímamót í atvinnusögu Sigluf jarðar. Aldrei hafa Siglfirðingar fagnað jafn innilega komu nokkurs skips, sem nýsköpunartogarans okkar Siglfirðinga, Elíiða, er hann fánum skreyttur og glæsibúinn lagðist upp að Hafnarbryggjunni sunnudaiginn 19. okt. s.l. kl. 6 síðd. — Móttökuathöfnin hófst með söng Karlakórsins Vísis. Gunnar Jóhannsson, forseti bæjarstjórnarinnar og j Gunnar Vagnsson bæjarstjóri fluttu þar ræður. Mikill mannfjöldi var þar saman kominn. Um kvöldið hélt bæjarstjórn kaffisamsæti í Sjómannaheimilinu. Var hóf þetta hið virðulegasta í alla staði og til sóma. RÆÐA BÆJARSTJÓRA Allt frá upphafi tímanna hefur maðurinn, hinn svokallaði herra jarðarinnar, orðið að sætta sig við það hlutskipti, að þurfa að neyta brauðs síns í sveita síns andlitis. Þrátt fyrir yfirburði sína ýfir aðrar lífverur jarðar, þrátt fyrir vizku sína og alla andlega hæfi- leika umfram dýr merkurinnar, hefur hann þó enn ekki komizt á það stig að þurfa ekki að heyja baráttu fyrir daglegu brauði. — Þannig hefur þetta verið, og ekk- ert bendir til, að framtíðin beri nokkuð það í skauti sínu, er breyti þessu iifslögmáli. Hitt er þó jafn- víst, að maðurinn hefur á hinum v ýmsu tímum staðið mjög misjafn- lega vel að vígi í baráttu sinni við náttúruna. Náttúrun er nízk þrátt fyrir alla auðlegð hennar og hún sleppir ekki gæðunum, nema fyrir þeim sé haft. Hún krefst þess, að maðurinn beiti andlegum og líkam- legum hæfileikum sínum til þess ýtrasta, við að afla sér lífsviður- væris, og hún launar líka þeim, ( sem bera sig eftir björginni, eins 1 og hún refsar þeim, sem draga af sér. Þetta hefur reynzlan kennt manninum, og hún hefur líka kennt honum að nota vitsmuni sina jafnframt hinum líkamlegu hæfileikum í viðleitninni tii sjálfs- bjargar. Þetta hefur m.a. birzt í því, að maðurinn öðlaðist þann hæfileika að nota tæki í lífsbar- áttunni. f Mjór var sá vísir hinnar miklu framþróunar, þegar okkar fyrsti forfaðir lærði þá list, að taka upp stein og varpa að bráðinni. Hann hefur kannske ekki hæft í fyrsta skipti, en óðar en varði, sá hann, að hið ófullkomna tæki, óunninn steinninn, gripinn af jörðinni, mátti nota með góðum árangri. Við vitum ekki hversu margar aldir eru liðnar síðan þetta gerðist, en hitt vitum við, að hendingin, sem réði því, að frummaðurinn lærði að beita vopni, er orsökin til þess, að það eru mannverur, sem hlutskarpastar urðu um yfirráðin yfir okkar jörð- En nú byggja jörðina menn, sem láta sér ekki nægja, að beita frum- stæðum tækjum í lífsbaráttunni, þvi notkun hinna frumstæðu tækja frummannsins varð orsök þess, að hann fór að brjóta heilann um, hvort ekki myndi mögulegt að búa til önnur fullkomnari. Það leið heldur ekki á löngu, áður en það tókst, og síðan hefur hver upp- fyndingin rekið aðra. í dag gefst ykkur, góðir samborgarar, að sjá eitt hið fullkomnasta tæki oikkar tíma, sem notað er af nokkurri þjóð, íbúum til lífsbjargar, tæki, sem er að því leyti hliðstætt hinu frumstæðasta vopni, að hvort- tveggja eru til þess fallin, að vera vopn í lífsbaráttunni. En hversu stó.rfenglegur er mismunurinn! — Hvílikar undraverðar framfarir hafa hér átt sér stað! En allt um það er þó eðlismunurinn ef til vill síst minni en kemur fram í ytra útliti. Það hefur sem sé gerzt, að tækið er til orðið og því beitt af samstilltum átökum margra ein- staklinga, með það að markmiði, að fullnægja sameiginlegum þörf- um þeirra allra. Það dýrðlega hef- ur skeð, að mönnum hefur lærzt að sameina kraftana, fella þá sam- an við orku vélarinnar til þess að auka afköstin, til hagsbóta fyrir heildina. Nú berst maðurinn ekki einn; verkið verður léttar unnið af mörgum höndum. En vandinn hefir ekki minnkað við það. Nú reynir á, að hver hlekkur haldi, að hver einstaklingur í keðjunni geri skyldu sína. Einn ónýtur hlekkur í akkerisfestinni getur stofnað skipi og mönnum í hættu. Alveg á sama hátt getur starf ákveðins hóps manna verið gert ónýtt ef einn úr hópnum bregzt, dregur af sér, hl'ifir sér á kostnað samverka- mannanna. Þetta hefur reynslan og tæknm líka kennt okkur og eftir því ber að breyta, vera á verð- inum og sofa þar ekki, Skilja hlut- verk sitt, framkvæma það, sem fyrir er lagt og miðar að öruggum árangri af samstarfinu. Góðir áheyrendur! Hér hafið þið fyrir ykkur eitt hið glæsilegasta tæki, sem okkar þjóð hefur eignazt í harðri og strangri lífsbaráttu við eld og ísa í nær 1100 ár, og hið fyrsta af þessari tegund, sem íbúar þessa kaupstað- ar hafa eignazt. Þeim ber að þa'kka sem haft hafa forgöngu fyrir smíði þessá skips. Einnig ber að þakka, að Siglufjarðarkaupstað var gefinn kostur á að ganga inn í kaup á því, og að í þau kaup var ráðizt. í kaupin var a'f bæjarins hálfu ráðizt í öruggu trausti þess, að verið væri að stíga heillaríkt spor í áttina til aukinnar velmeg- unar fyrir íbúa kaupstaðarins. í öruggu trausti þess, að frá Siglu- firði væri ekkert s'iður en frá öðr- um kaupstöðum og kauptúnum á landinu, hægt að gera út togara, og þá þeim mun frekar, sem hér var um að ræða hina fullkomnustu gerð fiskiSkipa, sem til þessa lands hefur komið- Siglfirðingar, allir sem einn, óska þess, að þær vonir, sem við þetta skip eru tengdar megi ræt- ast. Sjórinn hefur lengst af fært Siglfirðingum,i eins log öðrum ibúum (Framhald á 4. síðu). Velkominn Ellidi Elliði, velkominn hingað til hafnar, heilsar þér lýður með f agnaðarsöng. Fóru um þig mjöklega faðmlögin Drafnar? Féll þér vel skriðið í bylgnanna þröng ? Þáttur einn ertu í farsælli framtíð, faðma þig vonir um batnandi hag, vertu til blessunar sérhverri samtíð, sólgeisli bæjar hvern einasta dag. Heillir þér fylgi um hafið ið breiða, hrynjandi öldur ei færi þér grand, fá þú, um ártugi, götuna greiða gjafmildu af haf i, að bryggju við land. H. J.

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.