Neisti - 19.10.1949, Blaðsíða 6
f,
N E I S T I
/
Ræða Gunnars Vagnssonar
Framíhald af 5. s'íðu
sjálfsögðu áður en greiðsla hefur
farið fram, nema upphæðin hafi
beinlínds verið á fjárhagsáætlun,
svo sem laun fastra starfsmanna,
þá hafa stundum verið greiddar
upplhæðir áður en uppáskrift nefnd
arinnar hefur komið, enda æ,va-
gömul venja og enginn fundið að
því, ekki einu sinni Schiöth.
iSchiötlh hefur viðurkennt á bæj-
arstjórnarfundi að hann myndi,
þar sem ég hef stefnt honum fyrir
þessi ummæli, vera viss um að fá
sekt, en lét þau orð falla að hann
vildi vita fyrst hvað sektin yrði
há áður en hann stefndi Neista,
blaði Allþ.fl., fyrir einhver ummæli
um hann, svo hann gæti gert til-
raun til að innheimta sektarupp-
hæðina þar. Á þetta hlýddu marg-
ir bæjarfulltrúar og þykir mér
meira að segja trúlegast, að
Schiöth haf i manndóm til að kann-
ast við, að hér fer ég alveg með
rétt mál, enda skora ég á hann að
gera það í þessara votta viðurvist.
Þá væri hann vissulega maður að
meiri. Hinsvegar hefur Schiöth
þá skoðun, að allsherjarnefnd hafi
ekki heimild til að samjþykkja
greiðslur utan fjárhagsáætlunar
og beiníst þá þessi gagnrýni hans
að bæjarstjórninni í heild, en ekki
mér. (f síðari ræðu sínni viður-
kenndi Söhiöth fyrir fullu húsi á-
heyrenda, að það sem ég hefi um
þetta sagt væri í alla staði rétt).
Rök íhaldskommúnista eru
öll haldlaus.
Hér með hef ég tekið til með-
ferðar þau „rök“ sem eru, að því er
ég fæ séð, þau einu, sem færð eru
fram fyrir brottvikningu minni.
Öll eru þau haldlaus, ýmist lítil-
mannlegar blekkingar eða ómerki-
legar tylliástæður. Kynni því ó-
breyttan borgara að gruna, að
eitthvað væri annað og meira á
fyrir og hann hefur gert sína
játningu mér í vil í inargra bæjar-
fulltrúa viðurvist.
Erfiðleikar yfirstandandi tíma
ýmist arfur frá eldri tímum eða
afleiðing síldarleysisins
Siglufjarðarkaupstaður á við
fjárhagslega örðugleika að stríða.
Fimm s'ildarleysisár í röð hafa
þjakað þjóðina. Enginn einn kaup-
staður á eins mikið undir síldveið-
unum og Siglufjörður. Þrátt fyrir
s'ildarleysið hefur um 5—6 ára
skeið verið um að ræða mjög mikla
fjárfestingu hér, framan af að
mestu fyrir lánsfé. Þegar ég kom
hér fyrir 3 árum, um þetta leyti
árs, voru hér stórkostlegir fjár-
hagsörðugleikar. Húndruð þús-
unda króna í vanskilaskuldum lágu
í óreiðu, nær 200.000 krónur við
Höjgaard & Söhultz,’ nær 100.000
krónur við Sendiráð íslands í Was-
hington, ógreiddur en mjög hart
krafinn kostnaður við gerðardóm
vegna Skeiðsfossvirkjunar, ó-
greidd vinnulaun svo tugum þús-
unda króna skipti, auk margs ann-
ars. Þá hafði engin nákvæm at-
hugun verið á því gerð hvernig
f járhagur bæjarins i raun og veru
var. En fyrir alþingi lá beiðni um
hálfrar milljón króna lán til raf-
veitunnar vegna stórkostlegra
greiðsluvandræða hennar, sem
jafnframt kom niður á öllu bæjar-
félaginu. Sú lánbeiðni varð árang-
urslaus og ætla ég engan um það
að saka. En það máttu bæjariull-
trúar allra flokka eiga, að þeir
sameinuðust um það eitt að ráða
fram úr erfiðleikunum og bjart-
sýni bæjarstjórnarinnar var meira
að segja það mikil, að hún lét sig
ekki aðeins dreyma um að halda
fjárfestingunni áfram, kaupa tog-
ara og leggja í hann nær 900.000
króna, byggja sundlaug og leggja
í hana nær 600.000 króna, byggja
hafnarmannvirki og leggja í það
frá hafnarsjóði nokkuð á aðra
milljón króna, leggja hundruð þús-
unda króna í nýja vegi og ný tæki
til að vinna með, leggja tugi þús-
unda króna í að standa við gaml-
ar skuldbindingar um kaup á bát-
um í bædnn o.s.frv., með öðrum
orðum byggja undir atvinnulífið
með ýmsu móti, jafnframt þv'í að
bæta skilyrðin í heilbrigðis-, menn-
ingar- og samgöngumálum. I þessu
efni hefur mikill árangur náðst,
þar sem allir hafa staðið saman.
Þrátt fyrir það að enginn meiri-
hluti hefur á bak við mig staðið.
Þegar á milli hefur borið hefur
verið reynt að afla málinu fylgis
milli flokka á víxl, eftir því sem
unnt hefur verið og grundvöllur
fyrir hverju sinni. Og oft hefur
þetta tekizt árekstral'ítið.
Niðurrifsöflin yfirbuguðu skyn-
semina.
En svo fer það saman, að s'ildin
bregst fimmta árið í röð, og að
kosningar fara í hönd. Þá stand-
ast ekki þau öfl lengur mátið, sem
öllu vilja fórna í von um stundar-
ávinning, tímabundinn og meira að
segja óvissan, pólitískan hagnað.
Þa-ð er af þeim rótum, sem síðustu
atburðir í bæjarmálum í Sig'lufirði
eru runnir og engu öðru. Niður-
rifsöflin töldu, að einhverju þyrfti
að fórna, kenna einhverjum um
hvernig komið væri, til að gera
með þv'i tilraun til að hreinsa sitt
eigið skinn og losa sig við þann
vanda, að mæta erfiðleikunum.
Og Sjálfstæðismenn undir forystu
Péturs Björnssonar og sósíalistar
sem svo kalla sig, undir forystu
Gunnars Jóhannssonar, komu sér
saman um að kenna mér um ófar-
irnar. Rökin, sem þeir haifa fyrir
þeirri sekt minni fært, þau hef ég
hrakið. En þeir félagar, sem nú
hafa myndað bæjarstjórnarmeiri-
hluta með samþykkt um að reka
mig, hafa með því engan vanda
leyst. Og mér sýnist, eins og horf-
ir, að sú lausn gangi þeim erfið-
lega, og væri þó óskandi, bæjarins
vegna, að úr rættist.
bak við, sem enginn vildi kveða
upp úr með af hl'ífð við mig. En
svo er heldur ekki, og leiði ég það
af því, að í Siglfirðingi stendur
hinn 11. þ. m. orðrétt:
„Enginn maður, svo vitað sé,
hefur brugðið Gunnari Vagns-
syni mn nokkurn þann verknað,
er skert gæti æru hans, enda
myndi engum Siglfirðingi detta
slik f jarstæða 'í hug.“
Virðist mér þessi yfirlýsing taka
af öll tvímæli um það, að engin
dýpri rök, eitthvað sem af hlifð
við mig sé ekki látið koma fram,
liggi til grundvallar, enda myndi
líklega veitast erfitt að sanna slíkt
þótt reynt væri. Þarf ég heldur
ekikert undan því að kvarta að
nokkur hafi gert tilraun til slíks,
nema Schiöth, ég stefndi honum
Kjörfundur
til Alþingiskosninga í Siglufjarðarkaupstalð, verður settur
í leikfimihúsi barnaskólans kl. 10 f. h., simnudaginn 23. október
1949. — í k.jöri eru:
Fyrir Alþýðuflokkinn: Erlendur Þorsteinsson, framkv.stj.
— Framsólcnarfolkkinn: Jón Kjartansson, framkv.stj.
— Sameiningarflokk alþýðu —
Sósíalistaflokkinn: Áki Jakobssom, alþingismaður
— Sjálfstæðisflokkinn: Bjarni Bjarnason, bæjarfógeti
KJÖRSTJÓRNIN
RÆTIH SKRIF
1 síðasta tbl. „Siglfirðings“ birt-
ist grein sem ber fyrirsögnina
„Gísli Sig ber að illkvittni.“ —
Þó að Siglfirðingar séu mörgu van-
ir frá fóðurmeistara íhaldsins í
Siglufirði, keyrir þó hér alveg um
þverbak. Það er eins og þeir sem
í „Siglfirðing“ skrifa eigi allflestir
engan snefil af sómatilfinningu, og
að öll þeirra hugsun beinist að þv'í
lægsta og auðvirðilegasta í mann-
legri hugsun. Lygina hafa þeir
fastráðið í þjónustu sína, og ill-
girnin virðist vera í fastri tíma-
vinnu hjá þeim. Hvorttveggja
þetta nota þeir í .ríkum mæli í á-
minstu greinarkorni. Þar er Gisla
Sigurðssyni borið það á brýn að
hann vilji auglýsa Pétur Björnsson
sem ,,lubbalegan“ og ,,glóp“
frammi fyrir bæjarbúum. Komm-
únistarnir, fyrstur Óskar Gari-
baldason, lýsti því yfir á fjölmenn
um bæjarstjórnarfundi, að tillaga
Péturs Björnssonar væri ,,lúaleg“
og ,,lubbaleg.“ — Um þessar nafna
giftir geta því Pétur og „Siglfirð-
ingur“ snúið sér til hinna pólitísku
rekkjunauta s'ína, Kommúnistanna.
Út yfir alla þjófabálka tekur þó
það, að fóðurmeistarinn telur Gísla
J Sigurðsson hafa verið að ós’ka eft-
ir heilsuleysi Péturs Björnssonar.
Það hlýtur að þurfa sérstakan
þankagang til þess að halda slíku
fram. Hitt er svo annað mál, að
fóðurmeistarinn sýnir með þessu
eins óg svo oft áður þá dæmalausu
lítilsvirðingu sem hann ber fyrir
siglfirzkum lesendum.
Það eina sem G'isli Sigurðsson
sagði mn þetta var það, að engan
skyldi undra þótt afrekiun Péturs
Björnssonar væri lokið með brott-
vikningartillögunni. Allir skynbær-
ir menn vita og skilja, að þetta
á í engu skylt við heilsufar Péturs
Björnssonar, nema ef vera skyldi
pólitískt heilsufar.
Pétur hefur gerzt verkfæri í
höndum öfgamannanna við „Sigl-
firðing" Stefáns fóðurmeistara og
Schiöths apotekara. — Þeirrar
glópsku verður hann að gjalda. •—
Almenningur mun sjálfur um það
dæma af framkomu og skrifum
Péturs Björnssonar í þessu máli
hve stór sú glópska er.
En gerð fóðurmeistarans við
„Sigilfirðing“ er hin sama. Hann
lætur sér sæma að vera með lúa-
legar getgátur og stráksleg skrif
í blaði sínu. Verði honum að góðu.
TIL LEIGU
eru tvö herbergi, eldhús og
geymsla, til 14. maí.
Jóhann Kristinsson
Túngötu 41.
I