Neisti


Neisti - 19.10.1949, Qupperneq 7

Neisti - 19.10.1949, Qupperneq 7
GULLBRÖÐKAUP eiga þau hjónin Guðmundur Jónsson og kona hans Guðrún Magnúsdóttir, nú tíl heimilis að Þormóðsgötu 21 hér í bæ, 20. þ.m. Þau voru ung hjónaefnin, sem giftu sig 20. okt. 1899. Brúðguminn var 22ja ára en brúðurin 19 ára. Og eins og að l'ikum lætur, hefur margt drifið á dagana síðan. Þau hjónin bjuggu fyjst í Hrút- húsum 1 ár, síðan í Haganesi til 1904, þá í Neðra Haganesi til 1918, þá á Syðsta Mói til 1932, og hér í Siglufirði síðan, fyrst í leigu- húsnæði en s'íðan í húsi sinu við Þormóðsgötu 21. Börn áttu þau 9, og eru 7 lif- andi. Eitt barn dó ungt, en sonur þeirra Jón drukknaði 18 ára á skip- inu ,,Marianna“, ásamt fóstra Guð- rúnar, Jóhanni. Eftirlifandi börn þeirra eru Jóhann F., fulltrúi, Reykjavík; Anna, gift Sveini Þor- steinssyni hafnarverði; Ólafur, bæjarfulltrúi, Siglufirði; Guðrún gift í Reykjavík; Herd'is, gjaldkeri rafveitunnar, gift Páli Pálssyni, Stefán bifreiðastjóri, Siglufirði og Soffia, gift á Akureyri. En auk þessa barnahóps ólu þau upp 2 fósturbörn, Guðibjörgu Benedikts- dóttur og Stefan'íu Frímannsdótt- ur. Skipstjóri var Guðmundur í 18 ár. Lengst var hann skipstjóri á Voninni frá Akureyri, eða þar til þáverandi eigandi hennar Kr. Haf- steen seldi hana og flutti af landi burt. Eins og af þessu yfirliti sést, hefur ýmislegt á dagana drifið. — Miklu og farsælu dagsverki er lok- ið með uppeldi hinna fjölmörgu barna og fósturbarna. Má nærri geta, hvort auðvelt hefur verið á þeim timum að sjá fyrir svo stórri fjölskyldu. En þetta iánaðist fyrir mikla þrautseigju ogsamhentaelju Forráð hússins hafa auðvitað lent að miklu leyti á hinni ungu hús- móður, er bóndinn var fjarvistum að leita fanga í skaut Ægis. Enn eru hjónin bæði sæmilega ern. Guðrún hefur að v'isu verið heilsuveil undanfarið, en Guðmund ur gengur enn að vinnu með sama glaðlyndinu og óbilandi kjarki og áður fyrr. Þau geta á þessum merku tímamótum glaðst yfir ágætu ævistarfi í þágu lands og þjóðar. Mannvænleg börn þeirra og fjöldi vina sendir þeim heiila- óskir með hlýjum huga og þakk- læti fyrir skemmtilega samferð. — En sjálf munu þau gleðjast mest yfir minningunni um samveru- stundirnar í blíðu og striðu; sam- verustundir, þar sem heill barna og fósturbarna var látin sitja í fyrirrúmi fyrir eigin þægindum. ,,Neisti“ óskar þessum sæmdar- hjónum allra heilla á þéssum merkisdegi og gleðiríkrar framtið- ar. FRAMBOÐSFUNDUR verður haldinn í Nýja bíó fimmtudaginn 20. október Jd. 8,30. Umræðunum verður útvarpað um loftskeytastöðina hér á ca. 210 metra öldulengd. Frambjóðendurnir. KARTOFLUR! KARTOFLUR! Þeir, sem pantað hafa hjá oss kartöflur og óskað eftir, að þær yrðu látnar á kartöflugeymslu bæjarins, þurlfa að greiða pöntun sína fyrir 10. nóv. n.k. til Matvörudeildarinnar. Verði pantanir ekki greiddar fyrir þenna tíma munu kart- öflumar verða seldar öðrum. % Siglufirði, 18. okt. 1949. Kaupfélag Siglfirðinga SEMENT SEMENT! Fimmtíu tonn af sementi eru væntanleg í næsta mánuði. Þeir, sem óska að tryggja sér sement af þessu magni, eru beðnir að leggja pantanir sínar sem fyrst inn í Byggingardeild vora. ■ | Kaupfélag Siglfirðinga TILKYNNING Hér með tilkynnist þeim, er olíu liaupa til húsahitunar, að panta þarf oliuna fyrir hádegi þann dag, sem hún á að afgreiðast, ella bíður afgreiðslan næsta dags. Greiðsla fari fram við pöntun olíunnar, nema öðruvísi sé um samið. Olíuverzlun Islands h. f. H.f. Shell á íslandi Siglufjarðarumboðin. Eitt eru orð, annað athafnir GULLBROÐKAUP Á morgun, 20. okt., eiga 'þau heiðurshjón Aðalheiður Þorsteins- dóttir og Aðalbjöm Björnsson á Steinaflötum gullbrúðkaup. Þann dag fyrir 50 árum voru þau gefin saman í kirkjunni á Barði í Fljót- um, sama daginn og þau Guðrún Magnúsdóttur og Guðm. Jónsson. Árið eftir fluttust þau hjónin að Máná í Dölum. Þar bjuggu þau í 25 ár og þar fæddust öll börn þeirra, 8 að tölu. Af þeim eru 6 á lífi, eitt dó nýfætt og stúlku, Guðrúnu, misstu þau um tvítugt. Börn þeirra á lífi eru þessi: 1. Jóna, gift Þorsteini Gottskálks- syni. 2. Guðbjörg, gift Rögnvaldi Gott- skálkssyni. 3. Jóhann, kvæntur Petrínu Frið- björnsdóttur. 4. Þorsteinn, kvæntur Guðbjörgu Valdadóttur. 5. Sigriður, gift Þórði Jónssjmi, 6. Kristín, gift Þorsteini Einars- syni. '; Öll eru börn þeirra hjóna búsett hér í Siglufirði, og öll eiga þau mannvænleg börn, sum uppkomin. Eru afkomendur gullbrúðkaups- hjónanna, þeir sem á lífi eru, nú orðnir 35 að tölu. Frá Máná fluttu þau hjónin að Steinaflötum, og þar hafa þau búið í nær 25 ár. Framan af stundaði Aðalbjörn sjómennsku ásamt búskapnum. Var hann í nær 30 ár á hákarla- skipum, og lengst með þeim Sveini Péturssyni á „Fljóta-Víkingi“ og Oddi Jóhannssyni á Siglunesi á „Njáli“, ,,Æskunni“ og fleiri skip- um. Konan annaðist þá bústörfin á meðan, ásamt eldri börnunum, þegar þau fóru að komast á legg. Lífsbaráttan var hörð þá, og byrj- aði snemma hjá unglingum. Oglþeir höfðu gott af að þurfa að vinna, það stældi þróttinn. En ýmsir fóru á mis við þau lífsþægindi, sem nú þykja og eru sjálfsögð. i Aðalbjörn hefur verið traustur meðlimur í samtökum verka- manna ‘í Siglufirði; stéttvís og heiðarlegur baráttumaður fyrir bættum kjörum verkamanna og verkakvenna, fyrir bættum hag allra 'íbúa Siglufjarðar, og fyrir bættu þjóðskipulagi, og í þeim efn- um, sem öðrum, hefur konan staðið við hlið honum og verið hans önn- ur hönd. Það er sómi hvers bæjarfélags að eiga og hafa átt jafn nýta borgara og þessi heiðurshjón. Og sannarlega er tilefnið til ham- ingjuóskanna gagnkvæmt: Að óska þeim hjónum innilega til hamingju með gullbrúðkaupið og Siglufirði til hamingju með þau. „Siglfirðingur" var hér um dag- inn ákaflega hneykslaður yfir því, að Erlendur Þorsteinsson skyldi eiga sæti í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins og Síldarútvegsnefnd. — Taldi blaðið, að þar sem bæði þessi fyrirtæki væru heimilisföst hér í Siglufirði, hefði verið nær fyrir Alþýðuflokkinn að skipa t.d. Kristján Sigurðsson 'í þessi störf, þar sem hann væri heimilisfastur hér, en Erlendur ekki. Það er dálítið broslegt, að sjá þessi ummæli á prenti í „SigLfirð- ingi“, en vera má, að það eigi að vera vísbending til Bjarna Ben. um, að Sohiöth geti vel tekið við af Sveini Ben og Stebbi af Jóni Þórð- arsyni. En hvernig er nú annars hlutur Sjálfstæðismanna í þessum efn- um. Hann er sá, a$ þeir tóku for- mannsstarfið í Síldarútvegsnefnd af Sigurði Kristjánssyni, nauðug- um, og fengu það í hendur Jóni L. Þórðarsyni. Sigurður er þó búsett- ur 'i Siglufirði og hafði tvívegis verið í framboði fyrir flokkinn í Siglufirði. Það er svo önnur saga, hvernig flokkurinn reyndist hon- um við síðustu kosningar. X ERLENDUR f’ORSlE/NSSON

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.