Reykvíkingur - 06.12.1928, Blaðsíða 6
798
REYKVIKINGUR
„Sunna”
er bezta ljósaolían, sem til landsins ílyzt, hrein og tær,
gefur skæra birtu og er drjúg í notkun. IJessi tegund er
ein notuð á ljósker brezku járnbrautanna og ,hina skæi'U
vita umhverfis Bretland. Púsundir íslenzkra heimila geta
borið hennar vitni.
Biðjið um »Sunnu« í búðunum.
Olíuverzlun íslands, h.f.
Hvít kona myrt í Kína.
Ensk stúlka, sem var trúboði
í Shansi-hóraði í Kína, var um
daginn skotin til bana. Hún var
á hjóli meö karlmanni, sem líka
var trúboði. Urðu ræningjar moð
skammbyssur á vegi þeirra;
stanzaði karhnaðurinn, og var
rændur hjólhestinum og öllu
verðmæti, er hann hafði á sér.
En kvenmaðurinn stanzaði ekki,
og skutu ræningjarnir hana þá.
Þeir höfðu báða hjólhestana á
brott með sér.
Tigrisdýr í rafstöd.
Ekki langt frá Ipoh á Mal-
akka bar [>aö við, að tígrisdýr
kom inn í rafmagnsstöð. Einn
0,f starfsmönnunum, sem var að
koma úr baði og ekki hafði
annað klæða en handklæði bund'
ið um sig, skaut það með skamn>'
byssu.
Einkennilegt atvik.
Einkennilegt atvik kom fyrn
í Kaupmannahöfn 1. nóv. f’a
um kvöldið fundust tveir menú
dauðir á götum borgarinnar, °S
voru þó sinn í hvorri götu, °8’
viðlíka langt á milli þeirra og
frá Eskihlið að gasstöðiniú-
Læknisrannsókn sýndi, að pe’1
höfðu báðir orðið bráðkvaddh-
En það scm einkennilegt pótti,
var að þessir tveir menn, sei"
báðir urðu bráðkvaddir á gÖtú
sama kvöldið og fundust dauöii;
höfðu verið svarnir óvinir.