Vera - 01.09.1994, Síða 24
—flTHflFnflKOnUR—
Hvaða árangri skiluðu námskeiðin?
- Það er alltaf erfitt að meta árangur af fræðslu
og upplýsingamiðlun. En það kom berlega í ljós
i samtölum við þátttakendur síðar að þeim
fannst námskeiðin stytta undirbúningstímann,
auka skilning sinn á vinnumarkaðinum og á
fjármálaumræðu í þjóðfélaginu. Þær sögðust
hafa öðlast meiri trú á sjálfum sér og
umhverfí sínu og fannst námskeiðið
auka þeim bjartsýni og vera góð
hvatning. I kjölfar námskeiðanna
komu ný eða endurskoðuð fyrirtæki,
ný störf á vinnumarkaði og nýir
möguleikar.
Hvað eru konur einkum að
fást við?
- Þær eru að gera allt mögulegt og það
er langt í frá að allar konur séu í hand-
verki. Reyndar eru fæstar í iðnaði eða
beinni framleiðslu enda þarf oft sér-
þekkingu þar. Flestar konur afla sér
menntunar í hefðbundnum kvenna-
greinum og margar reyna að nýta sér
hana á einn eða annan hátt í fyrir-
tækjarekstri. Flestar eru reknar áfram af brenn-
andi áhuga og minni atvinnumöguleikum á al-
mennum vinnumarkaði en ekki gróðavon.
Við lögðum mikla áherslu á
það á námskeiðunum að konur
skoðuðu sitt nánasta umhverfi og
veltu því fyrir sér hvað vantaði þar
og hvort þær gætu ráðið bót á því.
Það er ekki nóg að eiga prjónavél
sem virkar, það þarf að vera þörf
fyrir framleiðsluna. Sífellt fleiri konur
nýta sér tæknina, fá sér tölvu, fax og síma og
setja upp fjarvinnslustofur. Kona á Breiðdalsvík
rekur t.d. ættfræðiþjónustu fyrir Vestur-íslend-
inga, aðrar slá inn upplýsingar fyrir fyrirtæki
eða stofnanir í Reykjavík.
Konur eru mun betur menntaðar en áður og
það skilar sér m.a. í aukinni þekkingu, reynslu
og sjálfstrausti. Konur eru meira áberandi í ís-
lensku athafnalífi í dag en fyrir fimm árum og
það er mikilvægt að hafa góðar og Ijölbreyttar
fyrirmyndir því þær verka hvetjandi á aðrar
konur. Aður fyrr völdu konur sér menntun með
tilliti til þess hvað þær langaði til að gera. Það
sama gildir reyndar enn, en núna reyna konur í
síauknum mæli að laga starfsframann að fjöl-
skyldunni - því við viljum jú hvort tveggja - og
nýta þá reynslu sem fæst þar aftur úti í atvinnu-
lífinu. Sú þjónusta sem er í boði er að megninu
til hönnuð og skipulögð af körlum fyrir konur.
Konur vita hverju önnum kafnar nútímakonur
þurfa á aö halda og margar nýta sér það í fyrir-
tækjarekstri. Við þurfum bæði upplýsingar og
þjónustu og nú hafa konur t.d. stofnað fyrirtæki
sem selja heimatilbúnar kökur, veita veisluþjón-
ustu og sjá um hreingemingar. í Bandaríkjunum
er fasteignasala kvennastarf. Konur vita betur
hverjar þarfir Qölskyldunnar eru og þeim er því
betur treystandi í þessum málum en körlum. Eg
er sannfærð um að við eigum eftir að sjá sömu
þróun hér.
24
bundnum átaksverkefnum meðan verið er að
vinna þennan upplýsingagrunn. Flins vegar er
ég ekki viss um að átaksverkefnisstjórar sem
slíkir skili endilega þeim árangri sem ætlast er
til af þeim. Ein ástæðan er sú að sveitarfélögin
hafa átt erfitt með að skilgreina hlutverk átaks-
verkefnisstjóranna og því verða þau oft of viða-
mikil. Þegar verkefnin eru komin af
stað er eðlilegra að kaupa sérfræði-
ráðgjöf í ákveðinn tíma. Markaðs-
málin vilja líka oft gleymast og það
er mjög erfitt að fá sveitarfélögin til
að átta sig á því hvemig þau geta
samnýtt markaðsráðgjöf fyrir mörg
fyrirtæki innan sveitarfélagsins í
ákveðinn tima.
Hefur Jóhönnusjóöur eitthvab að
segja?
- Hann er fyrst og fremst hvetjandi. Það er já-
kvætt fyrir konur að vita að til eru sjóðir ætlaðir
þeim. Sjóðakerfið er frumskógur. Það er ótrú-
legt hve mikið af peningum er í boði en það er
sérstaklega erfitt fyrir konur að hafa aðgang að
þessu kerfi. Næstum hver einasta stofnun hefur
á sínum snærum einhvers konar lán, eða ráða
yfir sjóðum sem hægt er að fá styrki úr. Það er
hins vegar erfitt að fá upplýsingar um hverjir
ráða þessum sjóðum og að fá aðstoð við að
sækja um. Sjóðimir em aðeins fyrir sumar at-
vinnugreinar. Aðrar detta alveg út og því miður
gildir það um flestar greinar sem konur eru
áberandi í, t.d. þjónustu- og ferðaþjónustugrein-
ar. Konur geta einnig nýtt sér marga evrópska
og skandinavíska sjóði en það þarf geysilega
þekkingu til þess að átta sig á þeim og því hvar
hægt er að fá upplýsingar um slíkt. Við búum í
upplýsingaþjóðfélagi, og það var einmitt hlut-
verk Athafnakvennanámskeiðsins að veita þær
upplýsingar.
Eru ótaksverkefni árangursrík leiZ>
til aö rétta hlut kvenna?
- Meðan verkefni kvenna eru jafn smá og raun
ber vitni og meðan konur þurfa þetta mikla að-
stoð tel ég réttlætanlegt að veita þeim aðgang að
sérstökum ráðgjöfum eða upplýsingum því þær
virðast eiga erfiðara með að bera sig eftir björg-
inni en karlar. Ástæðan fyrir því er sú að þeim
finnst þær oft koma að læstum dyrum. Það er
forsvaranlegt að hafa konur í sérstökum tíma-
Athafnakona og hvaö svo?
- Athafnakonur er gott námskeið og
er nú í endurskoðun. Námskeiðin
komu á mjög góðum tíma, einmitt
þegar konur voru að hugsa sér til
hreyfings og sú þekking sem þær
fengu nýttist þeim því mjög vel. En
til að verkefnið skili raunverulegum
árangri þarf að íylgja því eftir með markvissri
fræðslu og einstaklingsráðgjöf til þeirra sem nú
þegar reka fyrirtæki eða eru í þann veginn að
heíja slíka vinnu.
Eg setti siðan saman nýtt Ijögurra stunda
upplýsinganámskeið, Þekking, þjálfun og þátt-
taka, sem Stjórnunarfélagið hefur boðið. í raun
er það afrakstur athafnakvennanámskeiðanna,
nokkurs konar framhaldsnámskeið, og hugsað
íyrir þann hóp kvenna sem er á aldrinum 30-45
ára og ætlar sér að vera á vinnumarkaði. Þetta er
fyrir konur sem eru að velta því fyrir sér hvort
þær eigi að halda áfram að reyna að ná starfs-
frama i þeirri grein sem þær hafa menntað sig í
eða unnið lengi við, eða hvort þær eigi að leita
fyrir sér á nýjum vígstöðvum. Margar konur
sitja fastar. Þeirra á meðal eru t.d. hjúkrunar-
fræðingar sem sjá oft enga aðra leið en að vinna
innan heilbrigðiskerfisins á þeim launum sem
þar bjóðast. Sama gildir um kennarastéttina og
ýmsar aðrar stéttir. Þar eru mjög fáar stöður og
umsetnar. Þróunin hjá rikinu hefúr verið sú að
sífellt færri sem útskrifast með embættispróf
komast þar að, lausleg athugun sýnir að 70%
þeirra sem útskrifuðust fyrir 20 árum fengu
stöðu hjá ríkinu, en kannski 7% núna. Mörgum
konum finnst þær hafa takmarkað vald yfir að-
stæðum sínum og eru ósáttar við það. Þær hafa í
raun meiri þekkingu en þær geta unnið með og
spurningin er hvort þær eigi meiri möguleika
annars staðar og þá hvers konar möguleika og
hvar. Það er hægt að gera ýmislegt annað en að
sitja fastur, t.d. að stofna fyrirtæki. n
Viðtal: RV
Myndir: Bára