Neisti - 10.03.1978, Side 3
Föstudagurinn 10. marz 1978
NEISTI
3
Vlktor Þorkoltson:
Aukið lýðræði í
sveitarstjórnar-
málum og betri
tengsl við
bæjarbúa
Það sem unga fólkiðþarfnast
einna helst er húsnæði. Tima-
bært er því að byggðar séu
ibúðarblokkir með misstórum
íbúðum og á bæjarfélagið að
hafa þar forystu.
Auka þarf tengsl sveitar-
stjómamanna við íbúa bæjar-
ins. Eins og nú er komið vita
aðeins fáir útvaldir, hvað gerist
á bæjarstjómarfundum. Hvers-
konar upplýsingamiðlun um
gang bæjarmála þarf að koma
til fólksins. Við ákvörðunartök-
ur í einstökum stórmálum ætti
að leita áhts bæjarbúa með
ailsherjar atkvæðagreiðslu.
Bæjarstjómin ætti að boða til
ársfjórðungslegra opinna upp-
lýsinga- og fyrirspumafunda,
þar sem bæjarbúar ættu þess
kost að ræða málefni bæjarins
við kjöma bæjarfulltrúa.
Við endanlega ákvörðun um
skipulag bæjarins þarf að hafa
sem flesta með í ráðum.
Það er um mig eins og aðra
jafnaðarmenn, að gott atvinnu-
ástand er mál málanna á hverj-
um tíma. Annars em góð mál-
efni engum jafnaðarmanni ó-
viðkomandi.
MUNK)
PRÓF-
KJÖRIÐ
koma á fót léttum iðnaði í rik-
ara mæli, sem um leið gæti
þjónað eldra fólki til þægilegri
starfa, því störf í fiskvinnslunni
em flest erfið og þá einkum
fyrir roskið fólk.
Þau mál önnur, sem mér eru
ofarlega í huga, eru mál, sem ég
hef haft nokkur afskipti af
undanfarin ár — heilbrigðis-
málin. Þar er það einkum
tvennt, sem mér finnst áríðandi
þessa stundina, þ. e. að bæta úr
óviðunandi ástandi sorpmála
og fá betra neysluvatn. Finnst
mér þessi mál hafa verið alltof
afskipt af hálfu bæjaryfirvalda.
Fleiri mál mætti nefna, t. d.
varanlega gatnagerð, æsku-
lýðsmál o. fl.
Herdís Giémundsdóttir
Fædd 23. nóv. 1912.
Dáin 31. janúar 1978.
Þriðjudaginn 7. febr. s. 1. var
jarðsungin frá Siglufjarðar-
kirkju Herdís Guðmundsdóttir.
Foreldrar hennar voru Guð-
rún Magnúsdóttir og Guð-
mundur Jónsson, Syðsta-Mói í
Fljótum. Voru þau alkunn fyrir
dugnað og atorkusemi og var
Guðmundur kunnur skip-
stjómarmaður á sínum yngri
árum.
Hingað til Siglufjarðar flutt-
ist Herdís með foreldrum sín-
um 1936 og átti hér heima síð-
an.
Áður hafði hún dvalið í
Vestmannaeyjum og lokið þar
gagnfræðaskólanámi. Fór utan
og dvaldist við nám í Svíþjóð og
ferðaðist þá nokkuð um Þýska-
land. Eftir að hún settist hér að
vann hún lengi á skrifstofu
bæjarins og síðan fjölmörg ár á
skattstofunni.
Herdís Guðmundsdóttir var
greind og fjölhæf gáfukona.
Hvar sem hún kom geislaði frá
henni lífsþróttur og létt og
gamansöm lund. Hún þótti frá-
bær starfskraftur. Hún var
hjálpsöm og greiðvikin, enda
má með sanni um hana segja,
að öllum sem henni kynntust,
var vel til hennar.
Herdís var hagyrðingur góð-
ur og átti létt með að gera
skemmtiatriði, svo sem gaman-
vísur og skemmtiþætti, sem
vöktu kátínu og komu fólki í
gott skap.
Hún var félagslynd kona og
tók m. a. virkan þátt í starfi
slysavamafélagsins.
í stjómmálum fylgdi hún
jafnaðarmönnum að málum.
Hún var sannur jafnaðarmað-
ur. Málstaður þeirra, sem minni
máttar voru, var hennar.
Hinn 23. jan. 1949 giftist hún
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Páli Pálssyni, skipstjóra og var
hjónaband þeirra gott og far-
sælt. Þau eignuðust tvo syni,
Jón Gunnar og Guðmund.
Prýðis pilta, sem móðirin var
stolt af.
Ég hef ekki um langan tíma
verið viðstaddur kirkjulega at-
höfn, sem snortið hefur mig
jafnmikið í einfaldleika sínum
og útför Herdísar. Fyrstu sólar-
geislar vetrarins færðu birtu og
yl inn í kirkjuna. Hljómar
kirkjuklukknanna voru svo
hreinir og bjartir. Sorgin mark-
aði svipmót allra, sem vildu
með því votta henni virðingu
sína og þökk fyrir samveru-
stundimar. Kæra vinkona:
„Lýsi þér sólin
til ljósheima.
Fylgi þér fararheill
til friðarsala.
Algóður guð
geislum strái
á leiðir lifenda.“.
Vertu sæl. Ég þakka þér góðu
kynnin.
Jóhartn G. Möller.
Dísa
Herdís Guðmundsdóttir
F. 23/11. 1912
D. 31/1. 1978
Allra bíður Urðardómur
öldurfalla og rísa.
Þagnað hefur þíður ómur
þú ert horfin, Dísa.
Fellur rósin fríð að vengi
flýr mig gleðin vísa.
Við leikum ekki á Ijóðastrengi
lengur saman, Dísa.
Bjarmar fyrir brosi á vanga
bjartar stjörnur lýsa.
Þeir sem vilja veg þinn ganga,
villast aldrei, Dísa.
Vertrarbaðmur bjartur — heiður
beðinn þinn má hýsa.
Að vori munu blómabreiður
brosa við þér, Dísa.
Biynhildur H. Jóhannsdóttir
_ . ■ Æ m a m ^ « ■ ■
Symshorn KjOrseÖlll Prófkjör Alþýðuflokksfélags Siglufjarðar vegna bæjarstjórnarkosninga í Siglufirði 1978.
ATH. 1. Kjósa ber í öll sætin, ella er atkvæðið ógilt. 1. sæti Jóhann G. Möller
Jón Dýrfjörð
2. sæti Jón Dýrfjörð
Viktor Þorkelsson
3. sæti Anton V. Jóhannsson
Arnar Ólafsson
2. Kjósandi setur X við nöfn þeirra, sem hann kýs. Jóhann G. Möller
Jón Dýrfjörð
Viktor Þorkelsson
i (A !* í Anton V. Jóhannsson
3. Aðeins má kjósa einn mann í hvert sæti. Arnar Ólafsson
Björn Þór Haraldsson
Jón Dýrfjörð
Viktor Þorkelsson
4. Ekki má kjósa sama mann nema í eitt sæti á sama kjör- seðli.
5. sæti Anton V. Jóhannsson
Arnar Ólafsson
Björn Þór Haraldsson
Jón Dýrfjörð
Sigfús Steingrímsson
6. sæti Hörður Hannesson
Jón Dýrfjörð
Sigfús Steingrímsson