Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 11

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 51 ER KONAN VANFÆR? Eins og kunnugt er hafa ýmsar aðferðir verið notaðar til þess að ákvarða hvort kona sé með barni eða ekki, og flestar gefist illa, þótt kanínu eða músaaðferðin svonefnda hafi verið talin einna öruggust. Yfirleitt hefir það tekið alllangan tíma að öðlast fulla vissu með áður þekktum aðferðum, en sænskir og ítalskir vísindamenn þykjast nú með 99% öryggi geta skorið úr því hvort kona sé van- fær eða ekki. I líkama konunnar hefst viss hormónafram- leiðsla strax eftir getnað, og er hægt að finna hormón í þvagi hinnar tilvonandi móður. Þegar þvagi vanfærrar honu hefir síðan verið sprautað í tilraunadýr, t. d. mýs, hafa „mótefni“ myndazt í líkama músanna, til þess að vega upp á móti hormónunum, sem spýtt var inn. Þannig var sannreynt að konan var vanfær ef þessi ,,mótefni“ uiynduðust. Þetta er sama aðferð, sem notuð hefir verið svo árum skiptir við framleiðslu á bólusetningarefnum. Tilraunadýr hafa verið smituð með bakteríum sjúkdóma þeirra, sem verjast átti, og mótefni síðan myndast í hkama dýranna. Úr þessum mótefnum hefir síðan verið unnið bóluefni. Nú hugkvæmdist sænskum lækni fyrir fáum árum að sprauta þessum hormónum frá vanfærum konum í fjölda tilraunadýra, og ná síðan mótefnunum. Ef þessum mót- efnum væri síðan blandað saman við hormón vanfærra kvenna hlaut að koma í ljós greinileg efnabreyting og þar með sönnun þess að konurnar væru barnshafandi. ítölskum læknum tókst að sigrast á erfiðleikum, sem voru a framkvæmd þessara tilrauna. Hægt er nú að ganga úr

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.