Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.1910, Qupperneq 5

Freyr - 01.04.1910, Qupperneq 5
FREYR. 51 Af þessu, sem þegar er sagt, má sjá, að þau verkfæri, sem útheimtist við kartöflurækt, eru ekki önmir, — að undanteknum hreyking- arplógnum — en þau sem þörf er fyrir til svo margs annars, þessvegna reikna eg ekki verk- færakostnað sérstaklega í'kostnaðaryfirliti þessu: 1. Landsskuld. Þann kostnað, er gengur til að girða landið og vinua að því svo að hæfi- iegt verði til kartöfluræktar, verður að telja stofnkostnað og sé landið keypt, verður kaup- verðið með stofnkostnaðinum. Eins og vér vit- ura, er landið í misjafnlega háu verði hér í fteykjavík og grend og er því erfitt að finna nokkurn fastan taxta. Það er fremur hægt að gera sér grein fyrir hversu hátt árlegt eftir- gjald muni verða og kemur það í sama stað niður, því vextir af stofnkostnaði verða að reikn- ast með árlegum tilkostuaði. Gott óræktað land ætti að mega fá á leigu ’með 15 kr. árlegu eftir- gjaldi af hverjum hektara. Að girða einn hektara með gaddavír geri eg 150 kr. Land- ið geri eg ráð fyrir að sé grjótlaust eða því sem næst, og svo þurt að ekki þurfi að þurka það. VÍDnuna við að koma sllku landi í rækt geri eg 500 kr. á hektara, Það má vafalaust gera það fyrir minna, en getur líka orðið meira. Það eru því árlegar rentur af 650 kr.; með 5°/0 verða það 32,50. Gaddavírsgirðingin krefur dálitils viðhalds árlega, geri eg það 2,50. Við þetta legst hið upprunalega jarðarafgjald 15 kr. Landsskuldin verður þá árlega 50 kr. 2. Plœging og herfing. Haustplæging og vorplæging 22 kr. i hvort sinn, á hektara og herfing einu sinni um vorið 6 kr. Samtals 50 kr. 3. Sumarhirðing. Það er ekki svo þægi- legt að gjöra sér glögga grein fyrir hversu mikið hún muni kosta. Hún er aðallega fólg- in í því að herfa lauslega 10 dögum eftir nið- ursetningu, til þess að eyðileggja arfann og svo síðan að hreykja með plóg tvívegis um sumar- ið; auk þess þarf að hreinsa og laga til með grefi. Geri eg þennan kostnað allan 60 kr. 4. Utsœði. 8 kvinta útsæðiskartöflur eru nægilega stórar. Þyrftu þá á hektarann um 20 tunnur; með 10 kr. verði á tunnu er það 200 kr. 5. Niðursetning. Sé sett niður eftir plóg væri bezt að tveir plógar væru í gangi. Þá mætti setja niður í hektara á 1 x/2 degi. Auk plægingamannanna þarf 2 eða 3 menn til að setja kartöflurnar. Niðursetningin ætti því ekki að kosta meira en 30 kr. 6. Aburður. Ekki mun af veita um 120 kerruhlössum á hektara og varla er gerandi ráð fyrir að hlassið kosti minna en eina kr. þegar það er komið á staðinn. Það eru þá 120 kr. 7. TJpptaka kartaflnanna er venjulega dýr. Eú góð regla er það, sem tíðkast mjög í Dan- mörku, að láta það í „akkorðsvinnu11 og láta vinnulaunin vera x/s af því sem upp er tekið. Geri eg þá í vinnulaun alls 125 kr. Útgjöid við ræktunina yrðu þvi alls árlega á hverjum hektara kr. 635 Eg hefi þá skoðun, að þegar menn fara að venjast þessari ræktunaraðferð, þá muni út- gjöldin verða mun lægri en hér hefir verið á- ætlað, enda þai’f svo að verða, miðað við er- lenda reynslu. Arðsemi kartöfluræktar á stór- um svæðum er bundin því skilyrði að tilkostn- aðurinn verði eins lítill og mögulegt er, þó þannig, að öll þau verk verði unnin sem nauð- synleg eru til að viðunandi uppskera fáist. Galdurinn er í því íólginn að samrýma sem minstan tilkostnað og sem mesta uppskeru. I áætlutiarreikningi þeim, sem eg set hér á eftir, geri eg ráð fyrir að uppskeran verði 125 tn. á hektara og að 8 kr. fáist fyrir tunn- una. Oft er það verð hærra, en ekki veit eg dæmi til þess að það hafi verið lægra undanfarin ár. Líklegt er að það verð muni lækka með tímanum ef kartöfluræktin ykist að miklum

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.