Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.1910, Side 9

Freyr - 01.04.1910, Side 9
ERE YR. 55 Umræður urðu allmiklar um þetta mál. Schou, steinhöggvari áleit að dýrt muudi ‘ verða að taka land til ræktunar langt burtu írá bænum og einkum mundi það óhentugt vegna áburðar. Einnig talaði bann um, að kartöflur væru hér oft svo vondar að þær væru illa borð- andi. Spurði um hvort rétt væri að skera sund- ur útsæðiskartöflur. Gísli Þorbjarnarson, búfrœðingur, kom með dæmi frá síðasta surnri um það, hversu arðvæn- leg kartöfluræktin gæti verið hér i Reykjavík. Garðblettur 350 O faðmar að stærð, hefði gef- ið af sér 14 tunnur af kartöflum og 8 tunnur af rófum. Með 8 kr. verði á kartöflunum og 6 kr. verði á rófunum væri þetta 160 kr, En allur kostnaðúr við ræktunina, þar með talin leiga eftir landið og útsæði, hefði verið 64 kr. Eanst frummælandi hafa gert hreinan ágóða of lágan. Óskaði að eitthvað kæmist til fram- kvæmda að því er þessa atvinnugrein snerti. Pétur Hjaltested, úrsmiður gat þess, að úr dálitlum bletti hefði hann fengið uppskeru 36 sinnum meiri en útsæðið. Auðvitað væri slikt dæmafátt og mundi heldur ekki fást nema af litlum blettum í sérlega góðri rækt, en þetta sýndi þó, að hér mætti rækta kartöflur til mik- ils hagnaðar. E. H. mundi hafa gert fullmikið ur kostnaðinum og fulllítið úr uppskerunni. Ef hreinn ágóði væri ekki meiri en það sem hann .tilgreindi, væri kvötin ekki mikil til að leggja stund á kartöflurækt. Þórhallur Bjarnarson, biskup mintist áhaust- TÍgningarnar, er væri svo algengar hér á Suður- landi. Þeirra vegna væri alment svo snemma tekið upp úr görðunum. Óskaði álits um það hvort haustrigningarnar mundu skemma óupp- teknar kartöflur eins mikið og orð væri á gert. Einar Helgason áleit að hér mætti fá góðar kartöflur ef rétt afbrigði væri valin. Bezt væri að setja niður miðlungsstórar kartöflur. En væri þess ekki kqstur og útsæðið væri stórt, en þörf á miklu, þá væri rétt að skera sundur. Sér hefði fundist réttara að gera fremur of lítið en of mikið úr hreina ágóðanum. Það væri heldur ekki eingöngu á hann að lita. í kostn- aðaráætluninni væri öll útgjöld reiknuð og væri það líka ágóði að fá þarna borgun fyrir vinnuna. Væri sýki í kartöflunum, þyrfti að taka þær upp áður en miklar rigningar færu að ganga á haustin, en væru þær heilbrigðar, þyldu þær rigningar talsvert, einkum í sendinni jörð. Það væri mikilsvert að taka upp í þurru veðri. Gat ræðumaður þess, að hann á ferð sinni um • Hjaltland, siðastliðið sumar, hefði komist að raun um, að Hjaltar létur kartöflur spira í mold og flýttu á þann hátt mikið fyrir vexti þeirra. Þeir létu nokkur lög af kartöflum í kassa, sem væri um 20 þumlungar á dýpt; rnold á milli laganna og yfir efsta lagið líka. Á milli kart- aflnanna hefðu þeir 2- 3 þu'ml. bil í hverju lagi. Þær eru látnar í kassana snemma í marz og teknar svo úr þeim og gróðursettar úti eins snemma og tíð leyfir að vorinu. Má svo farið að borða þær seint i júlí. Til frekari athugunar um kartöflurækt gat hann um reglur, er konunglega „Landtbruksaka- demien“ í Stokkhólmi hefði gefið, samkvæmt á- rangri af gróðurtilraunum þar. Þessar reglur hljóða svo: 1. Ræktið kartöflur í frjórri jörð, þar sem hlýtt er og skjólgott. 2. Berið vel á. Kartöflurnar borga áburðinn vel. 3. Setjið þær snemraa í vel unna jörð. 4. Látið þær spíra i hlýju og birtu áður þær eru settar. 5. Setjið meðalstórar kartöflur. 6. Setjið þær með hæfilegu millibili. Mest

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.