Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1910, Side 3

Freyr - 01.08.1910, Side 3
Kynbótatilraunir meö útlendu sauöfé. Eftir P. Stefánsson frá Þverá. Það er ekki anðvelt að segja um það, hve •oft sauðfé hefir verið flutt hingað til lands til kynbóta. — I daglegu tali er aðeins talað um tvær tilraunir, sem þjóðinni hafa orðið miunis- stæðar, ekki vegna hins góða árangurs, heldur hins gagnstæða; með fyrri tilrauninni 1760—70 kom fjárkláðinn hihn fyrri — svokallað „fjár- faraldur“, en með þeirri síðari, um 1850 kom seinni fjárkláðinn. En auk, þess mun út- lent sauðfé hafa verið flutt hingað ekki svo sjaldan, og oftar en eg hefi getað aflað mér vitueskju um. En hér skal nú skýrt frá þeim tilraunum, sem eg hefi haft spurnir af. 1. Eyrsta tilraun er sögur íara af, og mér er kunn til að gera hér kynbætur með útlendu sauðfé, var sú, er Baron Hastfer gerði 1760— 70 að tilhlutun Dauastjórnar. Þessi Baron Hastfer var sendur hér upp að tilhlutun stjórnarinnur, og átti að kynna sér fjárrækt á Islandi og um leið að standa fyrir kynbótum þeim, er stjórnin mælti fyrir að gera skyldi, og voru til þessara kynbóta valdir hrút- ar af ullarfínu fjárkyni, hinu svo nefnda spánska „Harinos“. Um sama leyti var einnig að til- hlutun stjórnarinnar byrjað á samskonar til- raunum f Danmörku. Aðaltilgangur stjórnarinnar með þessum kynbótura mun hafa verið sá, að bæta ullargæði hins íslenzka sauðfjár, og var hið spánska Herinosfé einna nafnkendast af öllu fínullarfé um það leyti. Hagnús Ketilsson segir í P]ár- riti sínu Bls. 9—10: „Hvað er sú útlendska framtíngun (upprifning) annað en þetta? Ull- góða hrúta vantar, en þeir koma með tíð og með guðs hjálp.“ Og ennfremur vitnar hann í Baron Hastfer á bls. 65 og bendir sú tilvitnun til hins sama, að það eru ullargæðin sem beri að kappkosta að bæta. Hvern árangur þessi tilraun hafi haft til ullarbóta, á hið íslenzka sauðfé, er vart hægt að segja um, enda eru þau áhrif, nú að minsta kosti horfin, þau er þýðingu geta haft. Samt munu sjást hér enu leifar frá þessari tilraun, og er það ætlun mín, að þær finnist í Rangárvalla- og Skaftafellssýslum. í þessum sýslum báðum er talsvert af kollóttu sauðfé, og er það að nokkru ólíkt öðru kollóttu sauðfé, sem finst víðsvegar á landinu. Aðaleinkenni þess eru mikill þel- kendur ennisbrúskur, og vangaskegg — oft svo að nær því hylur augu — toglitil ull og fífukend. Þessi einkenni hittast alla leið austur í Húlasýslur, og munu þangað komin úr Skafta- fellssýslu. Eé á þessu svæði er yfirleitt rýrt, og kostasnautt, þvi fina ullin sem það hefir má fremur teljast ókostur, en kostur. Á þessu svæði eru úrkomur • tíðar, og er slikt ullarlag óheppilegt, þar sem svo viðrar. Þar á grófa ullin bezt við. Það er víst, þótt þessi kynbóta- tdraun stjórnarinnar hefði náð tilgangi sinum og komið hér upp reglulega ullarffnu fé, þá hefði það alls ekki orðið íslenzkri fjárrækt til

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.