Freyr - 01.08.1910, Blaðsíða 8
102
FREYR.
Að öllu samanlögðu er bókin fróðleg og
eiguleg, og ættu menn því að kaupa iiana og
lesa. Hún liostar 1 kr. S. S.
«
Kynnisför norölenzku bændarma.
Eins og ráð var fyrir gert og minnst var
á hér í blaðinu fyrir nokkru, tókust nokkrir
bændur og bændaefni úr Norðurlandi ferð á
hendur til Suðurlands að kynna sér búnaðar-
háttu og fleira hér syðra. —
Þeir lögðu á stað frá Akureyri 27. júní,
og héldu vestur sveitir nyrðra. Fóru yfir Holta-
vörðuheiði 1. júlí, að Sveinatungu. Þaðan um
Þverárhlíð, Stafholtstuugur, Borgarhrepp, yfir
Hvftá við Ferjukot að Hvanneyri.
Frá Hvanneyri var svo haldið um Hvítár-
'velli, Bæjarsveit og frara Lundareykjadal, og
skiftu sér þar niður til gistingar. Þaðan farið
yfir Uxahryggi á Þingvöll, og af Þingvöllum
til Reykjavíkur. Verið um kyrt í Reykjavík
6. júli. Dagiun eftir haldið austur yfir fjall að
Arnarbæli og Kaldaðarnesi, og þaðan að Þjórs-
ártúni. ✓
Daginn sem komið var að Þjórsártúni, 8.
júlí, var haldinn þar aðalfundur Búnaðarsam-
bands Suðurlands. Náðu bændurnir aðeins i
síðari hluta fundarins.
Daginn eftir, 9. júlí, voru þeir um kyrt að
Þjórsártúni. Þanu dag var íþróttamót Ung-
mennafélaganna austanfjalls og smjörsýning
Srajörbúasambands Suðurlands.
Sunnudaginn 10. júlí var haldið austur Holt
og Rangárvöllu um Kirkjubæ að Efrahvoli, og
skift sér niður til gistingar í Hvolhreppnum,
en nokkrir fóru að Breiðabólsstað í Fljótshlíð.
Daginn eftir var farið inn Hlíð, og síðan aust-
ur að Seljalandi, og skoðaður Seljalandsfoss og
Markarfljótsfyrirhleðslan hjá Seljalandi. Farið
svo um kveldið að Móeiðarhvoli, Odda og
Selalæk.
Frá Selalæk farið út í Safamýri, og það-
an vestur Holt, um Rauðalæk að Þjórsártúni.
Þaðan haidið upp Skeið og Hreppa, og sumir
fóru upp Tungur, og hittust síðan allir við
Geysi að kveldi þess 14. júlí.
Daginn eftir skoðaður Gullfoss, og því
næst haldið norður Kjalveg.
Ferðin hepnaðist fremur vel. Viðtökurn-
ar alstaðar ágætar og veðrið oftast gott, og
suma dagana ágætt. Lakast var það daginn,
sem farið var yfir Flóann. Var þá regn og
stormur framan af deginum, og þoka allan dagr
inn, svo ekkert sást frá sér.
Yfir höfuð létu norðlenzku gestirnir vel
yfir förinni. Leist þeim sérstaklega vel á sig
í Borgarfirðinum, enda er búskapur þar yfir-
leitt góður og héraðið fallegt og búsældarlegt.
Þá þótti þeim og mikils um vert að sjá
ýms búvirki austanfjalls, þar á meðal Mark-
arfljótsfyrirhleðsluna, og verk það, er Sigurður
Ólafsson sýslum. hefir með höndum; en það er
fyrirhleðsla til varnar vetrarflóðum úr Olfusá.
Mikið fanst þeim einnig um framkvæmdir Ól-
afs ísleifssonar á Þjórsártúni, og yfir höfuð
duldist þeim ekki, að raikið mundi hafa verið
starfað síðustu árin hór sunnaniands.
Norðlenzku gestirnir voru 26 alls, og Var
Sig. Sigurðsson skólastjóri foringi þeirra. Sig-
urður Sigurðsson ráðunautur Búnaðarfél. íslands
var leiðsögumaður hér syðra. — Nöfn og heim-
ili gestanna voru þessi:
1. Albert Kristjánsson bóndi á Páfastöðum í
Skagafirði.
2. Einar Guttormsson frá Ósi í Eyjafjarðars.
3. Eyjólfur Kolbeins á Mel í Miðfirði í Húna-
vatnss.
4. Guðmundur Davíðsson hreppstj. á Hraunum
í Skagafjarðars.