Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1912, Blaðsíða 8

Freyr - 01.09.1912, Blaðsíða 8
118 FREYR. undír virtist ekki |ætla að ganga út. Enginn virtist vilja ull írá Patagoniu. Seldist hún fyrst fyrir 51 og 52 cent, síðar komst hún upp í 55 og 56 cent, og fyrir þetta verð fór mest alt af ullinni. Lítið af venjulegri' fyrsta flokks ull var til sölu, en hún seldist fyrir 58 til 62 eent. Mikil eítirspurn var eftir ódýrari kynblend- ingsull frá Lincoln. Montevido er að eius 129 enskar mílur frá Buenos Ayres og getur því duglegur ullarkaup- maður 'starfað á báðum þessum sölusöðum. í Montevido er söluaðíerðin önnur. Ullarbyrgðir eru teknar í umboðssölu og hafðar á boðstólum, en geymdar í húsum hvers einstaks seljanda. Ullin er seld þar í þeim umbúðum, sem hún er í, og kaupandinn getur að eins kynt sér gæði ullarinnar í gegnum smá göt, er hann má gera á umbúðirnar. Montevido-ullin er mest Merino ullartegundir, en auðvitað er eitthvað lítið eitt annarar tegundar. Hún er vanalega Ijósari og betri en ullin frá Buenos Ayres. Öll ullin frá Uraguay er seld þar, venjulega er það 100 þúsund sekkir á ári. Kaupendur koma snemma moi'guns, og hvert ullarsöluhús hefir hest spentan fyrir vagn allan daginn, þegar salan gengur greiðlega er ekki óvanalegt, að sjá tíu til tólf ökumenn fyrir framan hin ýmsu ullarhús, bíða eftir að vagninn sé hlað- iun af hinni seldu ull, og kaupendurnir bíða eftir að röðin komi að þeim, svo þeir fái tæki- færi til að kaupa, því er það nauðsynlegt að kaupandinn ákveði sig fljótt, þegar eftirspurnin er mikil. Þeir sem kaupa lítið, vilja fá seljendurna til þess að opna ullarumbúðirnar, og íá að flokka ullina, en stórkaupmennirnir vilja held- ur kaupa ullina eins og hún kemur fyrir, því með því geta þeir fremur náð sér niðri á þeim sem kaupa í smáum stil. I Uraguay er verðið á ullinni reiknað í dollurum fyrir hver 20 pund. Stjórnin leggur útflutningstoll á ull, og hækkar það verðið um 1 cent framyfir það, sem venjulega er lagt á fyrir að pakka og afgreiða ullina. Einn ein- kennilegur siður tíðkast þar, að verzlunarhúsið sem selur ullina tekur 1 cent af kaupandanum í umboðslaun og 1 cent af ullareigandanum. Ullargeymsluhús þessi eru afarstór og rnarg- lyft, og er ullinni staflað þar í 18—20 feta háa stafla, og lyffc upp á hinar efri hæðir með lyfti- vélum. Tvær aðferðir eru við flokkunina á ull sem fer til Bandaríkjanna. Við fyrstu flokkun ull- ar, er aðgreint hvert reifi og tekin frá öll úr- gangsull og svo er reifið bundið saman aftur i vöndul. Hin flokkunin er sú, að maður sting- ur hendinni inn í reifisvöndulinn og dregur út visk, sé það af lakara tagi, er það tekið frá og er verðið ákveðið eftir því hvor aðferðin hef- ir verið við höfð. Óáran var líka í Paraguay, þótt ekki eins mikil og í Buenos Ayres, það náði aðeins yfir nokkur héruð, svo skaðinn varð ekki meiri en 10°/0 eða nálægt 10 miljónir punda. Ullin var ekki eins góð og áður hefir tíðkast, þótt hún reyndist miklu betur en frá Buenos Ayres þetta ár, þessvegna varð salan mikln meiri í Monte- vido en undanfarin ár. Eftirspurn eftir ull af kynbótafé var mikil frá Bandaríkjunum. Þjóð- verjar og Amerikumenn borguðu bezt verð fyrir ullina þar, eins og í Buenos Ayres, þeir keyptu mest Merinoull fyrir 70—73 cent og af kyn- bótafé 62—64 cent. Lengi drógu franskir kaup- menn sig í hlé, áður en þeir byrjuðu að kaupa. Einkennilegt var að sjá það, að ullin sem Banda- ríkjamenn keyptu, steig í verði, meðan lakari ullartegundir stóðu í stað. Prá fylkinu Salto kemur mjög léleg ull, sem hefir bláleitan og dökkan blæ, en er að eðlisþyngd léttari en sumar ljósari ullartegundir. Eitt er það sem einkennir meðferð þessara héraðsbúa á ull sinni, að henni er vöðlað sam-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.