Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Blaðsíða 4

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Blaðsíða 4
50 TÍMARIT V. F. I. 1932. lítra íláti). Sé það mælt laust í mælikeri, án þess að hrista það neitt saman, eins og venja er þegar mæld eru efni i steypuhræru, þá er rúmþyngd þess að með- altali 1.36. Tunuþyngd (170 kg) gjörir þá nákvæm- lega 125 lítra, og 8 tunnur fylla einn teningsmetra. Af eðlisþyngdinni og rúmþyngdinni má reikna út liolrúmin i sementinu. Hér verður jafnan reiknað að eðlisþyngd sementskornanna sé 3.1. í einni tunnu eða 170 kg af sementi eru þá 170 : 3.1 = sem næst 55 lítrar af sementskornum. Þegar sementið liggur alveg þétt saman, eins og í trétunnum, eru þá 45 lítrar af holrúmi með 55 litrum af sementskornum, eða holrúmin eru 45% af allri fyrirferðinni. I lausu máli verður 70 litra holrúm með 55 lítrum sements- korna, samtals 125 1, eða holrúmin nema þá 56% en fastefnin 44% af öllu rúmmálinu. Storknun sements. Ef vatn er hrært saman við sementið, og hræran fær að vera óhreyfð, byrjar sementið að storkna eftir nokkra stund. Eigi má venjulegt Portlandsement byrja að storkna fyr en eftir 2 klst. í skemmsta lagi, en auðgert er að búa til sementstegundir, sem storlcna fyr. Storknunin stendur síðan yfir nokkrar klukkust. Venjulega er henni lokið um það bil hræran er 7 til 8 stunda gömul, og eftir reglunum skal henni að minnsta kosti vera lokið þegar hræran er orðin 15 stunda gömul. Það er afar áríðandi að hræran verði ekki fyrir neinni hreyfingu, frá þvi storknun byrjar og til þess lienni er lokið. Ef sement og vatn er látið saman í glas og hrist öðru livoru allan storknunar- tímann, þá verður aldrei neitt samhengi milli sem- entskornanna. Verði hræran fyrir nokkrum hrist- ingi, meðan á storknun stendur, þá fær steypan aldrei eðlilegan styrkleik. Ef mikið vatn liefir verið i hrærunni, þá sígur liún saman þangað til storknun byrjar, og jafnvel einnig dálítið meðan á storknun stendur. Storknunin kemur aðallega til af því, að nokkuð af hinu brennda kalki (CaO) í sementinu samein- ast vatni (H20), og myndast við það kristallar af kalkhydrati (Ca(OH)2), sem líma sementskornin saman. Ekki er þó talið að efnabreytingin við storkn- unina sé fyllilega útlisluð með þessu. Hörðnun sements. Þegar storknuninni er lokið byrjar hörðnun sementsins, og heldur venjulega áfram árum saman. Hörðnuninni eru samfara flólcn- ar og margbrotnar efnabreytingar í steypunni, og er það mál ekki fullrannsakað enn. Þó vita menn, að efnabreytingarnar eru mismunandi, eftir því hvort steypan harðnar undir vatni, eða þar sem loft kemst að henni. Húsasteypa harðnar nú nær undan- tekningarlaust þannig, að loft kemst að henni. Þá bindur stcypan í fyrslu talsvert vatn, m. a. á þann hátt, sem lýst var við storknunina. En jafnóðum og það af steypuvalninu, sem ekki bindur sig, þornar burtu, fyllast holrúmin, sem það skilur eftir, af lofti, og í þessu lofti er ávallt dálitið af kolsýru. Þá byrjar önnur efnabreyting, sem meðal annars eða máske aðallega er i þvi fólgin, að kalkhydratið, sem myndaðist í fyrstu, klofnar og gefur frá sér vatn en tekur við kolsýru i staðinn, og myndast af þvi kalksteinn (kolsúrt kalk). Jafnframt gerast aðrar efnabreytingar i sementinu. I fyrstu bindur sement- ið svo mikið af vatni, að það getur eftir 4 vikur numið 18 til 25% af þyngd sementsins. En i gamalli steypu liefir T e t m a j e r fundið að semenlið liafði bætt við þyngd sína 2.95% af vatni og 12.77% af kolsýru, eða samtals 15,72% af upphaflegri þyngd sementsins. Aftur á móti getur steypa, sem stöðugt er gegnblaut eða undir vatni, ekki tekið i sig kol- sýru svo neinu nemi, en sannast hefir að hún heldur áfrarn að binda i sér vatn árum saman, og vita menn með vissu að hið bundna vatn getur í slíkri steypu komist upp í 30% af þyngd sementsins. Menn sjá af þessu, að efnabreytingarnar i steyp- unni verða allt aðrar við lofthörðnun en við vatns- hörðnun. Mismunurinn á þessum tveirn hörðnunar- aðferðum kemur einnig í ljós á annan liátt, sem er sérstaldega þýðingarmikill við húsagerð. V i ð 1 o f t- h ö r ð n u n d r e g s t s t e y p a n s a m a n, e n v i ð v a t n s h ö r ð n u n þ r ú t n a r li ú n. Þessar rúm- málsbreytingar stafa eingöngu frá ummyndunum sementskornanna, en steinkornin í steypunni taka engan þátt í þeim. Þess vegna verða rúmmálsbreyt- ingarnar því meiri, sem steypan er auðgari af sem- enti (feitari), og i steypu úr eintómu sementi og vatni eru breylingarnar venjulega svo miklar, að sú stcypa springur og er til flestra liluta ónothæf. I sementshúð utan á húsveggjum verður samdrátt- ur steypunnar við lofthörðnun venjulega nógur til þess, að hárfínar sprungur koma í alla húðina, enda er mikið sement i henni, venjulega 1 : 2. Eina óbrigð- ula ráðið til þess að komast hjá rúmmálsbrejding- um steypu, og þar af leiðandi sprungum, er það, að láta hörðnunina fara fram til skiflis i lofti og vatni, þangað til steypan er orðin nægilega sterk til þess að þola álök þau, sem liún þar eftir kann að verða fyrir af einhliða lofthörðnun. Við efnabreytingar hörðnunarinnar eylcst þyngd sementskornanna, en jafnframt eykst fyrirferð þeirra þó tiltölulega meira, svo að þau verða léttari i sér. Talið er að eðlisþyngd hins harðnaða sements sé frá 2.3 til 2.6, og er meðaltal þar á milli 2.45. Ef vér svo gjörum ráð fyrir að í fullharðnaðri húsa- steypu hafi sementið bætt 15% við þyngd sína, þ. e. um 3% af vatni og 12% af kolsýru, þá getum vér reiknað út hið nýja eða aukna rúmmál sements- kornanna úr hverri tn. þannig: Upphafleg þyngd 170 kg -j- 15% verður sem næst 196 kg. Með eðlis- þyngd 2.45 verður þá rúmmál sementskornanna 196 : 2.45 = 80 lítrar, en upphaflegt rúmmál scm- enlskornanna í einni tn. var aðeins 55 lítrar.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.